Skessuhorn - 05.08.1999, Side 5
T
•i&caaunuiL.:
FIMMTUDAGUR 5. AGUST 1999
Sjónarmib Flosa
Sjálfbjarga eiginmaður
Það er ákaflega bjart yfir mér þessa dagana
þegar næturnar eru nýbúnar að vera eins bjartar
einsog þær geta bjartastar orðið.
Það er einmitt á þessum árstíma sem sálina
getur „gripið gömul kæti“ og gamlingjar einsog ég
eiga það til að hlaupa svo rækilega útundan sér, úr
viðteknu hegðunarmunstri, að undrum sætir.
Hið viðurkennda fastmótaða atferli frá degi til
dags gengur allt úr skorðum þegar skyndiákvarð-
anir um nýjar áherslur í sambúð hjóna eru teknar
og oftar en ekki vegna einskonar sumarsturlunar
sem á það til að heltaka mann á þessum árstíma.
Það var semsagt á dögunum að ég, í einhverju
annarlegu, ja mér er nær að halda yfirskilvitlegu
sálarástandi, bauðst til að vera konu minni innan-
handar við heimilisstörfin, svo hún gæti einsog hin-
ar nútímakonurnar, forsómað heimilið og verið að
vingsa sér að heiman, út og suður, í tíma og ótíma.
Heimilishjálpin sem ég veiti er fólgin í því að ég
„hjálpa mér sjálfur", og sýni með því að ég vil vera
einsog hinir ungu og mjúku mennirnir, góður við
konuna mína.
í þessum efnum er víða pottur brotinn og skelfi-
legt til þess að vita hvað menn eru margir hverjir
einstaklega vondir við konurnar sínar og víst er oft
til þess ærin ástæða en þó ekki alveg alltaf, því oft
eru þetta eigulegustu konur sem halda í sakleysi
sínu að þær eigi erindum að gegna annarsstaðar
en heima hjá sér.
Á mínu heimili erum við tvö í heimili og auðvit-
að er Ijóst að slíkt sambúðarform getur orðið afar
flókið ef heimilisfólkið verður afhuga skyldum sín-
um við makann.
Því er ég að hafa orð á þessu hér að ég kann
því illa að hádegisverður sé ekki borinn fram kl.12
og kvöldverður kl.6:30
í gær kom konan ekki með hádegismatinn fyrr
en útvarpsfréttirnar voru byrjaðar og kvöldmaturinn
kom það seint að ég náði sjónvarpsfréttunum með
naumindum.
Mér sárnaði þetta, en ákvað að erfa það ekki og
hætti við að ganga úr rúmi og sofa í húsbóndaher-
berginu í nótt.
Og þar sem ég er bæði svona sáttfús og hef
alla tíð borið gæfu til þess að vera afar Ijúfur og
sveigjanlegur í sambúð og ákaflega opinn fyrir
stefnum og straumum í samskiptum kynjanna hef
ég afráðið að semja mig að því frjálsræði í heimil-
ishaldi sem nú virðist ríkjandi meðal hinna yngri og
mýkri.
Eitt af því sem nútíma karlmaðurinn verður að
geta, er að „hjálpa sér sjálfur".
Þó ég segi sjálfur frá er ég snillingur í að
„hjálpa mér sjálfur".
Þetta getur komið sér afar vel þegar konan þarf
að bregða sér af bæ í lengri eða skemmri tíma.
Þá verður maður að „hjálpa sér sjálfur".
Um daginn fór hún í söngferðalag á Hótel ís-
land og var tæpan sólarhring í ferðinni.
Og takið nú vel eftir.
Ég gerði henni Ijóst áður en hún fór og lagði á
það mikla áherslu að ég hefði ekki náð tökum á því
að sjóða egg svo vel færi. Að sjóða egg krefst
þeirrar nákvæmni sem konur einar virðast hafa til
að bera.
Þess vegna var afráðið að hún syði fjögur egg
sem ég gæti nálgast sjálfur, semsagt hjálpað mér
sjálfur, tæki þau úr ísskápnum og borðað þau með
teskeið.
Og ég sá ekki bara framúr þessu með eggin.
Allann tímann sem hún var að heiman hjálpaði ég
mér raunar sjálfur.
Það er alveg undursamlegt hvað það er einfalt
að morgni dags að fá sér kornfleks með sykri og
mjólk útá - sjálfur - þegar maður er bara kominn
uppá lagið með það.
Kaffi hafði hún lagað áður en hún fór og sett á
hitabrúsa sem ég gat svo drukkið úr, eftir hendinni
- sjálfur.
Þá hafði hún steikt litla ketbita sett þá í brúna
sósu og soðið kartöflur og sett þessa aðskiljanlegu
rétti - ketið, kartöflurnar og sósuna í pott svo ég
gæti - sjálfur - brugðið pottinum á heita plötu og
fengið mér gúllas á matmálstímum á meðan hún
væri í burtu.
Svo hafði hún lagt kaffimeðlætið snyrtilega á
disk og plastikpoka yfir.
Og það get ég sagt ykkur, góðir hálsar, að
þennan tæpa sólarhring sem konan mín var í
söngferðalaginu lenti ég ekki í neinum ógöngum
með húsmóðurskyldustörfin, einfaldlega vegna
þess að:
ÉG HJÁLPAÐI MÉR SJÁLFUR.
Flosi Ólafsson
Bergi
far
Vesturlands
Tíu gjaldliæstu einstakling-
amir samkvæmt álagningar-
skrá skattstjórans í Vestur-
landsumdæmi
1. Magnús Guðlaugsson, db.
Hjallabrekku 3 Snæfellsbæ
kr. 8.560.441
2. Jónas Guðmundsson,verk-
taki, Bjarteyjarsandi 3
Hvalfjarðarstrandarhreppi
kr. 7.598.995
3. Logi Jóhannsson, kaup-
maður, Suðurgötu 38
Akranesi kr. 6.667.311
4. Rakel Olsen, útgerðarmað-
ur, Ægisgöm 3 Stykkis-
hólmi kr. 6.349.313
5. Jón Þór Hallsson, endur-
skoðandi,Brekkubraut 29
Akranesi kr.5.917.911
6. Einar Jón Ólafsson, kaup-
maður, Skagabraut 11
Akranesi kr.5.274.987
7. Þórður Ingólfsson, fæknir,
Sunnubraut 7 Búðardal kr.
4.574.064
8. Ágúst Guðmundsson, múr-
ari, Kveldúlfsgötu 15
Borgamesi kr.4.496.341
9. Gísli Runólfsson, skip-
stjóri, Jörundarholti 208
Akranesi kr.4.560.040
10. Pétur Pémrsson, Staðar-
bakka, kr. 4.452.120
Vestlendingar!
Skrifstofur okkar á Akranesi og í
Borgamesi hafa ávallt heitt á
;könnunni - líttu við í spjall eða
jhvað sem er.
i Starfsfólk Skessuhoms ehf,
■
BORGARBYGGÐ
Leikskólinn Klettaborg,
, n Borgarnesi
Leikskólakennara vantar frá og með
1. september 1999. Tíl að byrja með er laust
hlutastarf fyrir hádegi en fleiri stöður losna
í kringum áramót.
Leikskólinn er þriggja deilda, fyrir börn á
aldrinum 2-6 ára. Megin áhersla er lögð á
mannleg samskipti og skapandi starf.
I Umsóknarfrestur er til 15. ágúst 1999.
* Nánari upplýsingar veitir Steinunn
t Baldursdóttir í sima 437 1425.
Vakin er athygli á því að fáist ekki
leikskólakennarar, kemur til greina að ráða
starfsmenn með aðra uppelcfísmenntun
eða leiðbeinendur.
(fíin vinóælu (ýlejjk/ioltbkvöld
öU þiífyudagtkvöld
LjCdi og ágútt.
Menningarkvöldígamansömum stíl.
Hjónin í Brekkukoti og
danshópurinn Sporið,
Fjölskylduvænn matseðill.