Skessuhorn - 05.08.1999, Síða 8
T
8
FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 1999
fí uaktinni
María Sigmjánsdóttir.
Á vaktinni þessa vikuna er
María Sigurjónsdóttir vakt-
stjóri á bensínstöð Olís við
Esjubraut á Akranesi. María
hefiir unnið hjá Olís síðustu
fjögur ár.
I hvetju er starfið fólgið?
„Starfið fellst í daglegum
rekstri bensínstöðvarinnar,
bensínsölu og afgreiðslu hér í
versluninni ásamt ýmsum við-
vikum fyrir viðskiptavinina.
Við byrjum hér hálf átta á
morgnana nema um helgar en
þá opnum við kl m'u. Vinnu-
dagurinn er nokkuð langu því
við lokum ekki fýrr en hálf m'u
að kvöldi og þá á eftir að gera
upp og ganga ffá.“
Hveijir eru helstu kostir
starfsins?
Helstu kosturinn er maður
hittir rosaiega marga, það er
alls konar fólk sem keraur hér,
fóik sem maður þekkir og eins
fólk ails staðar að, háir jafint
sem lágir. Hér kemur fólk úr
öllum þrepum samféiagsins.
Allir þurfa einhvern tíma að
koma á bensínstöð. Svo getur
þetta verið mjög gaman héma
og er það oftast."
Okostir?
„Það var nú eins og núna 1.
ágúst þegar bensíhið hækkaði.
Þá er maður skammaður fyrir
það hvurslags þetta væri eig-
inlega að vera alltaf að hækka
bensínið svona mikið. Sumir
virðast standa í þeirri trú að
við starfsfólkíð bemm ábyrgð
á bensínverðinu. Það stendur
stundum svona illa á hjá sum-
um eins og gengur. Vinnutím-
inn er líka dálítið langur en
það venst ágædega.“
Einhver eftirminnileg atvik?
„Það er ýmislegt sem rifjast
upp. Mér finnst alltaf rosalega
fyndið þegar fólk kemur hér
inn og spyr mig hvort það séu
ekki einhverjir gamlir sætir
kallar héma sem getí skipt um
pem. Einhverju sinn kom svo
viðskiptavinur sem viidi endi-
lega fá að vita hvað ég væri
gömul. Eg var ekki búin að
svara manninum og var ekki
viss um hvort ég ædaði nokk-
uð að gefa upp aldurirm þegar
1S ára starfsfélagi minn snar-
aðist að manninum og sagði:
„Þú spyrð ekki konu hvað hún
er gömul. Annað hvort líkar
þér það sem þú sérð eða ekki!“
Maðurinn dreif sig út við svo
búið.“
Hvað vildir þú helst sjá breyt-
ast hér?
„Það er nú svo margt að það
er erfitt að telja það allt upp.
Reyndar er þetta ekki alveg
mitt svæði því ég bý aðeins
fyrir utan bæinn. Svo ég nefni
eitthvað þá var ég til dæmis
ekki ánægð með að sjá hross-
unum beitt í kríuvarpinu fyrir
ofan bæinn í vor.“
K.K
Frá hljóm-
sveitinni OFL
Frumgerð að merki ferðaþjónustunnar á Vesturlandi hannað afBjama Helgasyni.
Hvemig kemst
ég á Vesturland?
Upplýsinga- og kynningarmið-
stöð Vesturlands sendi í vikunni frá
sér nýjan kynningarbækling. Nefh-
ist hann „Hvernig kemst ég á Vest-
urland“. Að sögn Sigríðar Hrannar
Theódórsdóttur atvinnuráðgjafa í
ferðamálum og starfsmanns UKV
er bæklingnum ædað að vera sam-
eiginlegt uppiýsingarit um hvemig
ferðafólk kemst á Vesturland. Þar
em upplýsingar um sérleyfishafa og
sérferðir þar sem dagsferðir era í
boði. Bæklingurinn er gefinn út í
5000 eintökum og er hann eitt af
fyrstu verkum UKV en samtökin
vora stofnuð í vor sem leið.
Að sögn Sigríðar verður næsta
verk UKV að skipuleggja þátttöku
vesdenskra ferðaþjónustufyrirtækja
á Vestnorden sýninguna sem að
þessu sinni verður haldin í Færeyj-
um 23. september í haust. Sigríður
vildi koma því á framfæri að síðustu
forvöð tíl að skrá þátttöku er 15.
september.
Ferðaþjónustufyrirtæki sem
skráð eru í UKV greiða lægra gjald
fyrir þátttöku á sýningunni.
-MM
Efdr að hafa stolið senunni á
Þjóðhátíð munu ólátabelgirnir í
OFL halda áfram prakkarastrikum
sínum um helgina. Næstí viðkomu-
staður er Kristján IX í Grundarfirði
og mun sveitin leika þar á laugar-
dagskvöldið, 7. ágúst. Þess má geta
að OFL hefur aldrei áður leikið í
Grundarfirði en væntíngarnar eru
Hljómsveitin OFL „live“ á sviði.
miklar þar sem Grundó er annálað
„stuðpleis."
Mannfall var iítið um verslunar-
mannahelgina þannig að sveitín er
ennþá skipuð þeim Baldvin,
Gumma Kalla, Helga Val, Leifi og
Halla.
(Fréttatilkynning)
Sóknamefndin er kirkjugarðsstjóm:
Með lögfræðing á perunni
„Hvað þarf marga Hafnfirðinga
til þess að skrúfa peru í ljósa-
stæði?“ Þessi spurning er vinsælt
upphaf að einum Hafnarfjarðar-
brandaranum. Eitt aðalsvarið er
sex. Einn tíl þess að halda á per-
unni og fimm tíl þess að snúa hon-
um undir perustæðinu. Sóknar-
nefnd Borgarnessóknar er með
lögfræðing á sínum snærum til
þess að skrúfa yfir sig birtu og yl.
Vandamál sóknarnefndar Borg-
arnessóknar vegna Útfararþjón-
ustu Borgarfjarðar eiga þannig
ágæta framtíð, því Iögffæðingur-
inn, Ingi Tryggvason hdl., kann
ekki skrúfuganginn en tekur lík-
lega ágætislaun fyrir að láta sókn-
arnefndina halda sér uppi undir
perustæðinu eins lengi og sóknar-
nefhdin þarf einmitt á svo sér-
hæfðum manni að halda.
/__
Hver á og rekur UB?
í síðasta Skessuhorni ruglast lög-
fræðingur sóknarnefndarinnar
gersamlega í ríminu um hver eigi
og reki Útfararþjónustu Borgar-
fjarðar og heldur því blákalt fram
að fyrirtækið sé ekki í eigu og rek-
stri Borgameskirkjugarðs, heldur
sóknarnefndar Borgarnessóknar,
skv. leyfisbréfi kirkjumálaráherra
frá 07.09.95. Þetta er hyldjúp lög-
speki.
Texti leyfisbréfsins er nefhilega
þessi: „Kirkjumálaráðherra gjörir
kunnugt: Að ég hér með veiti
sóknarnefnd Borgarnessóknar
leyfi samkvæmt lögum um kirkju-
garða, greffrun og líkbrennslu nr.
36/1993, til starfrækslu útfarar-
þjónustu með öllum þeim réttind-
um og skyldum sem því fylgja að
lögum.“
8. gr. þessara laga er þannig:
„Hver kirkjugarður þjóðkirkjunn-
ar er sjálfseignarstofiiun með sér-
stöku fjárhaldi, í umsjón og ábyrgð
safnaðar undir yfirstjórn prófasts (í
Reykjavík prófasta) og biskups.
Sóknamefnd eða sémefnd kjörin
af safhaðarfundi, sbr. 9. gr., hefur á
hendi umsjón og fjárhald kirkju-
garðs samkvæmt því sem fyrir er
mælt í lögum þessum. Er hún hér
eftir nefhd kirkjugarðsstjórn."
21. gr. þessara laga er þannig:
„Útfararþjónustu mega þeir einir
reka sem hafa tíl þess leyfi dóms-
og kirkjumálaráðuneytísins. Ráð-
herra setur nánari reglur tnn leyf-
isveitinguna í reglugerð. Þar sem
kirkjugarðsstjórnir reka útfarar-
þjónustu skal sú starfsemi og fjár-
hagur henni tengdur algerlega að-
skilin frá lögboðnum verkefnum
kirkjugarðsstjórnar."
Sóknarnefndinni var sem sé
veitt leyfið sem kirkjugarðsstjóm
sjálfseignarstofnunarinnar Borgar-
neskirkjugarðs, sem aftur rekur
Útfararþjónustu Borgarfjarðar
enda engin lagaheimild til um
annað fyrirkomulag á þessum rek-
stri af hálfu Þjóðkirkjustofnana.
Brestir í skjóli
Þjóðkirkjunnar
Málflutningur lögfræðings sókn-
arnefndar Borgarnessóknar er al-
veg sambærilegur við þær sjón-
hverfingar sem beitt var í upphafi
þessarar sérkennilegu deilu um
hvort kirkjugarðsstjórnir innan vé-
banda Þjóðkirkjunnar væru að
reka útfarararþjónustu á sambæri-
legum forsendum og aðrir sem
reka fyrirtæki í þessari þjónustu-
starfsemi.
Það virðist ekkert duga nema
málarekstur fyrir hverju stjóm-
valdinu af öðra og báðum dóms-
stígum til þess að botna þessa
ótrúlegu dellu, sem hefur þegar
kostað viðkomandi stofnanir Þjóð-
kirkjunnar tugi milljóna króna í
skaðabætur og málskostnað.
Sóknarnefnd Borgarnessóknar,
sem er í þessu dæmi kirkjugarðs-
stjórn þótt lögfræðingur hennar
fatti það ekki, er á algerum villi-
götum. Það má því enn segja að
„kristílegu kærleiksblómin spretta
f kring um hitt og þetta".
Samkeppnisráð hefur birt
ákvörðun sína vegna kvörtunar
Útfararstofu Þorbergs Þórðarson-
ar, en leitað verður úrskurðar
áfrýjunarnefhdar samkeppnismála
um hana. Dóms- og kirkjumála-
ráðuneytið hefur málið jafnfiramt
til skoðunar, en það gefur út leyfi
til reksturs útfararþjónustu og hef-
ur þar með eftirlitsskyldu um að
áskilnaði leyfa sé fylgt. Biskup
Þjóðkirkjunnar er að meta málið,
enda yfirstjórnandi kirkjugarða.
Ríkisendurskoðandi er á vaktínni
vegna eftirlitsskyldu með reikn-
ingum Þjóðkirkjunnar.
Þannig getur kirkjugarðsstjórn
Borgarneskirkjugarðs haldið
áfram að snúa lögfræðingi sínum á
taxta til þess að verja þær gerðir
sínar sem hafa verið ólögmætar
um langt árabil. Líklega hefur
engin kirkjugarðsstjóm játað það
jafn afdráttarlaust og sóknarnefnd
Borgarnessóknar með umburðar-
bréfi sínu í öll hús í prestakallinu í
janúar 1997. Var þar verið að stor-
ka ríkissaksóknara vegna þess að
misfarið hafi verið með opinbert
fé?
Atvinnugrein í
þjónustu
Útfararþjónusta er í nútímanum
atvinnugrein sem mörg fyrirtæki
bjóða og veita á eðlilegum þjón-
ustugrundvelli. Viðleitni Útfarar-
stofu Þorbergs Þórðarsonar til
þess að fá starfsumhverfi sitt metið
lýmr ekki að neinu öðru en því að
fá notið réttmæts rekstrarum-
hverfis, en þar hefur mikið skort á
í 5 ára sögu fyrirtækisins vegna
misnotkunar á skatttekjum og að-
stöðu stofnana Þjóðkirkjunnar.
Þetta er sorglega satt og ótrúlegast
að Þjóðkirkjan sjálf kostí hvern
lögfræðinginn af öðram til þess að
verja vonlaus mál vegna þjónustu
sem hún hefur boðið og býður á
snið við landslög og eiginlegan til-
gang.
Rétt er að vekja athygli á því að
einungis fjögur fyrirtæki í útfarar-
þjónustu eru í eigu og rekstri
stofnana Þjóðkirkjunnar. I Reykja-
vík, þar sem loks hefur verið
hreinsað til eftir ítrekuð málaferli
og hvern dóminn af öðrum, á Ak-
ureyri og loks á Akranesi og í
Borgarnesi. Það er óneitanlega
sérstök reisn yfir atvinnurekstri
Þjóðkirkjunnar í Borgarfirði. Yf-
irlæti lögffæðings sóknarnefndar
Borgarnessóknar um að vonandi
þurfi ekki að koma til frekari at-
hugasemda af hálfu nefhdarinnar
hitta hann sjálfan fyrir við að skrú-
fa í öfuga átt.
Herbert Guðmundsson
framkvœmdastjóri Nestors.