Skessuhorn - 05.08.1999, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 1999
9
jntDðunui..
Frá dönskum dögum í Stykkishólmi á síðasta ári.
Danskir dagar
- f|ölskylduhátíð í Hólminum
Aflabrögð H-
síðustu viku
Akranes
Far vf f tonn
Erla handf 2 0,6
Fagurey handf 1 0,8
Guðný handf 1 0,2
Lea handf 1 0,1
Mundi handf 1 0,2
Pétur handf 1 0,3
Ebbi lína 2 1,4
Hinrik net 1 1,0
Máni net 3 1,7
samtals 6,3
Arnarstapi
Bjössi lína 1 1,6
Dofri handf 1 0,2
Draupnir handf 2 1,3
Dritvík handf 2 0,5
Fanney handf 1 1,3
Hafdís handf 2 0,5
Jóhanna S handf 3 1,8
Krían handf 1 0,3
Krosssteinn handf 2 0,4
Lea handf 1 0,3
Már handf 2 1,0
Rún handf 1 0,5
Salla handf 4 2,1
Straumur II handf 2 0,3
Svalan handf 3 1,3
Von handf 2 1,0
Þerna handf 2 1,1
Samtals 15,5
Rifshöfn
Hamar botnv 1 11,1
Gu&bjartur lína 1 0,8
Samtals 11,9
Stykkishóimur
Ásberg handf 2 1,1
Dúett handf 2 2,6
Fönix handf 1 1,4
Glitský handf 1 0,6
Heppinn handf 1 0,4
Hrísey handf 2 0,7
Jónsnes handf 1 1,4
Lára handf 1 0,2
Litli vin handf 2 1,5
Ólöf ríka handf 1 0,8
Rúna handf 1 0,1
Valur handf 2 0,9
Ýmir handf 1 0,8
Pegron gildr 3 6,8
Kári lína 1 2,3
Samtals 21,6
Vikan íramimdan
7.8. -8.8.-Borgarnes: Meist-
aramót Islands í frjálsum
íþróttum, 10-12 ára, á
Skallagrímsvelli.
7.8. -8.8.-Flatey: Flateyjardag-
ar.
8.8. -Akranesvöllur: Rnatt-
spyrnuleikur ÍA-Keflavík.
9.8. -Húsafell: VR mótið; opið
golfrnót.
9.8. -Reykholt: Málstofa um
Hænsna-Þórissögu í
Snorrastofu.
10.8. -Reykholt: Reykholts-
kvöld.
13.8. -15.8.-Akranes: Pep-
símót 6.fl. í knattspyrnu.
12.8. -15.8.-Stykkishólmur:
Danskir dagar.
Senn líður að Dönskum dögum,
árlegri fjölskylduhátíð í Stykkis-
hólmi. Hún verður haldin að
vanda þriðju helgina í ágúst, þ.e.
dagana 13.-15. ágúst.
Reyndar verður „þjófstartað“ að
þessu sinni, því að á fimmtudags-
kvöldið 12. ágúst verða útgáfutón-
leikar hljómsveitarinnar Stykk
haldnir á veitingahúsinu Knudsen
og á Fosshótel Stykkishólmi verða
djasstónleikar þar sem djassistarnir
Oskar Guðjónsson saxofónleikari,
Þórður Högnason bassaleikari og
Einar Scheving trommuleikari
stíga á stokk.
Annars verður hátíðin með hefð-
bundnu sniði og skemmtidagskráin
að mesu leyti heimafengin. Á
föstudag verður skrúðganga leik-
skólabarna með þátttöku trúða og
fleiri furðuvera. Fánar verða
dregnir að húni og nýja sundlaugin
verður formlega vígð. Eyjaferðir
bjóða upp á herforingjakvöldverð í
grandferð sinni. Um kvöldið verð-
ur grillað og sungið við höfnina og
síðan gengið út á bryggju þar sem
dansað verður til miðnættis við
tónlist gleðisveitarinnar Stykk, en
þá mun björgunarsveitin Berserkir
gleðja gesti með einni glæsilegustu
flugeldasýningu aldarinnar. Að
henni lokinni geta þeir sem ekki
hafa fengið nóg haldið áffam að
skemmta sér á veitingastöðunum
Knudsen og Fosshótel, eða jafnvel
haldið áffarn að syngja í tjaldinu
mikla sem sett verður upp.
Á laugardeginum verður byrjað á
ratleik að vanda, Golfklúbburinn
Mostri sér um opið golffnót í létt-
um dúr og knattspymumót verður í
umsjón Snæfells.
Markaðstjald verður opið með
fjölbreyttum sölu- og kynningar-
básum. Þá verða margskonar
skemmtiatriði við og í tjaldinu,
leiklist, söngur og dans að ógleym-
dri hinni árvissu „aksjón“ Lions-
manna. Ekki má gleyma hádegis-
verðarferð að hætti hefðarfólks
með Eyjaferðum þar sem smur-
Af óviðráðanlegum orsökum
falla næstu tónleikar í sumartón-
leikaröð Stykkishólmskirkju
niður, það eru tónleikar Jóns
Rúnars Arasonar tenorsöngvara
og Þórhildar Bjömsdóttur pí-
anóleikara, sem vera áttu nk.
sunnudag 8. ágúst.
I stað þessara tónleika bendum
við á blandaða tónleika heima-
manna sem verða í Stykkishólms-
kirkju sunnudaginn 13. ágúst í lok
Dönsku daganna. Þar verður bæði
söngur og hljóðfæraleikur, m.a.
brauðsstofan Jómfrúin sér um veit-
ingar. Sprell-leiktæki verða við
skólann. Þar geta menn spreytt sig
á ýmsum þrautum og farið í spenn-
andi leiktæki. Barnaball verður í
tjaldinu þar sem hljómsveitin Gos
mun skemmta og hún mun einnig
leika fyrir unglingaballi í tjaldinu
um kvöldið. Á laugardagskvöldið
verður stórdansleikur á Fosshótel
Stykkishólmi þar sem hljómsveitin
Sixties mun skemmta, hljómsveitin
Stykk verður á Knudsen og dansað
verður um borð í Brimrúnu sem
sigla mun í grandferð þar sem boð-
ið verður upp á herforingjakvöld-
verð.
Á sunnudag hefjum við leikinn
með göngu um gamla bæinn og
rifjaðar upp sögur ýmissa gamalla
húsa. Göngunni lýkur svo í gömlu
kirkjunni, en þar verður messað á
dönsku og íslensku. Eyjaferðir fara
í hádegisverðarferð eins og á laug-
ardag. Sprell-leiktækin opin.
Markaðstjaldið verður opið og þar
verður skemmtidagskrá sem eng-
inn má missa af. Dagskrá dönsku
daganna lýkur svo í Stykkishólms-
kirkju með tónleikum þar sem ffam
koma heimamenn með fjölbreytta
efnisskrá, söng og hljóðfæraleik.
Má þar nefna Elísu Vilbergsdóttur
sópransöngkonu, sem lauk 8. stigi
ffá Söngskólanum í vor með hæstu
einkunn og er á leið til ffamhalds-
náms í Þýskalandi.
Danskur matur verður á veit-
ingastöðum bæjarins alla helgina.
Norska húsið verður opið og með
sérstakar uppákomur. Verslanir
verða með ýmis tilboð.
Seld verða barmmerki á kr. 500
til að fjármagna skemmtunina að
hluta og verða allir 13 ára og eldri
krafðir um að hafa merki í barmin-
um, en kjörorðið er: Enginn barm-
ur án barmmerkis.
I de herlige Danske Dage vi syn-
ger og har det godt!
Med venlig hilsen,
Jóhanna Guðmundsdóttir
mun ung og upprennandi söng-
kona Elísa Vilbergsdóttir syngja, en
hún er á förum til Þýskalands í
ffamhaldsnám.
Síðustu tónleikar sumarsins
verða svo sunnudaginn 22. ágúst,
en þá mun Camilla Söderberg leika
á margskonar blokkflautur og
Snorri Orn Snorrason á lútu og
gítar.
Efling Stykkishólms,
Jóhanna Guðmundsdóttir
Sumartónleikar í Stykkishólmskirkju
Tónleikar falla niður
J
r
Ytur í lífi þjóðar
Helgina 14.-15. ágúst nk. verður
sýningin Ytur í lífi þjóðar haldin
á Hvanneyri. Tilefni hennar er
90 ára saga beltavéla og jarðýtna
á Islandi og hlutur þeirra í rækt-
un en einnig samgöngubótum í
dreifðum byggðum.
Að sýningunni standa Búvéla-
safhið á Hvanneyri og verktakafyr-
irtækið Jörvi hf, með atbeina Veg-
minjasafns Vegagerðarinnar, Vega-
gerðarinnar í Borgarnesi, Heklu hf
og fleiri aðila. Sýndar verða belta-
vélar, ýtur og fylgitæki þeirra frá
ýmsum tímum, auk þess sem göml-
um, fágætum myndum og sögu-
þáttum verður brugðið upp í sér-
stakri sýningardeild.
Laugardagskvöldið 14. ágúst
verður Ytumannavaka í Sumarhót-
elinu á Hvanneyri. Þangað eru
áhugamenn um ýtusögu og ýtu-
sagnir velkomnir til þess að rifja
upp þætti um ýtur í lífi þjóðar.
Á sýningunni verður brugðið á
leik með ýtum og ýmislegt verður í
boði. Veitingar eru fáanlegar í
Sumarhótelinu. I Ullarselinu geta
gestir spreytt sig á flókavinnslu og
Kertaljósið býður gesti velkomna
til þess m.a. að steypa sín eigin
kerti.
Sýningin Ytur í lífi þjóðar stend-
ur kl. 13-18 báða dagana.
Ytur nýta ýtar hér,
ýtur flýta verki.
Ytar! Lídð ýtuher!
Ytur nýtast hvar sem er.
(BMK)
Bjami Guðmundsson
Tvennir tímar - önnurfyrsta rœktunaijarðýtan, sem til landsins kom, buslar í Hjalta-
dalsá skammt framan Hóla líklega lýðveldisánð 1944 (IjósmÞjms. 1996:210)
skessuhom@skessuhom.is
www.vesturland.is
Vel heppnað
sj óstangveiðimót
Hið árlega Sjóstangveiðimót
Sjósnæ, Sjóstangveiðifélags
Snæfellsness, fór fram í Olafs-
vík helgina 16 - 17. júlí s.l.
Mótið fór hið besta ffam að
sögn forsvarsmanna Sjósnæ
enda var veður með besta
móti. Heildaraflinn var 20.782
kg sem er það mesta sem
veiðst hefur á mótum félagsins
til þessa.
Þátttakendur voru 56 frá
sjóstangveiðifélögum vítt og
breitt um landið. Aflahæsd karl
mótsins var Haraldur Ólafsson
SjóAk sem veiddi 825 kg en afla-
hæsta konan var Kristín Þor-
geirsdóttir frá SjóSigl með 458
kg.
Nokkrir keppenda af Skaganum lýsa með látbragði afla dagsins. Mynd: EMK