Skessuhorn - 05.08.1999, Blaðsíða 12
Borgarness apotek
L. Sími 437-1168
Bakvakt 437-1180
LæzrtLlvfLíLKerá
Þvoum
heimilísþvottinn
Borgarbraut 55, Borgarnest. S: 4371930
Starfsmenn Byggingarfélagsins Borgar hafa ekki fengið greitt úr ábyrgðarsjóði launa
Oskiljanleg vinnubrögð
Segir Júlíus Rafnsson trúnaðarmaður starfsmanna
Húsnœðið sem hýsti Byggingarfélagið Borg í Borgamesi.
„Skiptastjóri sagði okkur að við
fengjum greitt í síðasta lagi í
byrjun febrúar á þessu ári og við
vorum sáttir við það en síðan
höfum við ekki fengið krónu,“
sagði Júlíus Rafhsson trúnaðar-
maður starfsmanna Byggingarfé-
lagsins Borgar sem tekið var til
gjaldþrotaskipta í september síð-
astliðnum.
Tíu mánuðum eftir uppsögn hafa
fyrrverandi starfsmenn Borgar ekki
enn fengið greitt úr ábyrgðarsjóði
launa og segja þeir tafirnar vera
vegna seinagangs hjá skiptastjóra.
Skiptasjóri þrotabúss Byggingarfé-
lagsins Borgar er Jón Sigfús Sigur-
jónsson lögmaður á Sauðárkróki.
Starfsmennirnir, tuttugu að tölu
eiga inni nokkurra mánaða orlof og
laun fyrir síðustu tvær vikurnar sem
þeir unnu hjá fyrirtækinu. Þá höfðu
starfsmennirnir allir þriggja mán-
aða uppsagnarfrest og eiga rétt á
launum fyrir þann tíma að frá-
dregnum öðrum tekjum á því tíma-
bili.
Starfsmenn mæta
afgangi
Júlíus sagði að öll gögn hefðu legið
fyrir í byrjun janúar en hinsvegar
hefði verið ágreiningur um það um
tíma hvort greiða skyldi fyrir 40 eða
48 stunda vinnuviku. Hann sagði að
síðan hafi verið fallist á rök þeirra
fyrir 48 stunda vinnuviku. „Við höf-
um ekki fengið neinar skýringar frá
skiptastjóra aðrar en þær að þetta
mál taki sinn tíma og að hann þurfi
einnig að sinna öðrum störfum.
Okkur hefur gengið mjög illa að ná
í hann og er engu líkara en að hann
hafi verið að forðast okkur. Okkar
lögfræðingur hefur unnið vel að
þessu máli fyrir okkur en það hefur
ekki dugað til.“
Júlíus sagði þessar tafir hafa kom-
ið sér mjög illa fyrir starfsmennina.
„Menn voru náttúrulega búnir að
gera ráð fyrir þessum peningum á
umræddum tíma og gera ráðstafan-
ir út ff á því og hafa þess vegna lent
í basli. Mér hefúr skilist að í svona
gjaldþrotamálum sé gengið ffá öllu
í sambandi við starfsfólk á fyrstu
dögum og síðan séu eignir seldar og
gengið ffá öðrum hlutum. I þessu
tilfelli er löngu búið að ganga ffá
öllu öðru en launamálum starfs-
manna og þeir eru látnir mæta af-
gangi. Þetta eru að mínu mati
óskiljanleg vinnubrögð," sagði Júli-
us.
I samtali við Skessuhorn fyrir
helgi staðfesti Björgvin Steingríms-
son umsjónarmaður ábyrgðarsjóðs
launa að beðið væri eftir gögrnnn
ffá skiptastjóra og að þeim fengn-
um ætti ekki að líða nema fáeinir
dagar þar til hægt væri að ganga ffá
greiðslum til umræddra starfs-
manna.
Klukkan tifaði báðu
megin
I samtali við Skessuhom síðastliðið
þriðjudagskvöld hafnaði Jón Sigfús
Sigurjónsson skiptastjóri því að
óeðlilegur dráttur hefði orðið á
sinni afgreiðslu til Abyrgðasjóðs
launa. „Tíminn sem þetta hefur
tekið er ekki óeðlilegur og klukkan
hefur tifað báðu megin. Það er að
vísu rétt að um tíma var ég önnum
kafinn og gat ekki sinnt þessu máli
á meðan en það tafði það ekki lengi.
I svona málum gengur boltinn á
milli manna og það tekur tíma.
Kröfum var líst of háum og var
hafnað. Þá var það hlutverk fyrrver-
andi starfsmanna Borgar að rök-
styðja sínar kröfur. Það var ekki fyrr
en skömmu fyrir Verslunarmanna-
helgi sem ég fékk staðfestingu þeir-
ra á síðustu atriðtun málsins. Málið
er hinsvegar í höfti og verður af-
greitt til ábyrgðasjóðs launa á næstu
dögum,“ sagði Jón Sigfús.
Jón sagði það vera á misskilningi
byggt að starfsmönnum Borgar hafi
verið lofað uppgjöri í byrjun febrú-
ar. „Eg sagði þeim að það gæti orð-
ið ef öll gögn lægju fyrir og enginn
ágreiningur væri um kröfugerðina.
Það hefði hinsvegar verið hægt að
afgreiða þann hluta krafnanna sem
lá fyrir samþykktur í mars ef þess
hefði verið óskað en það var ekki
gert. Menn eru einfaldlega óþreyju-
fúllir sem eðlilegt er og átta sig ekki
á því hvaða tíma þetta tekur,“ sagði
Jón Sigfús.
G.E.
Nýju vetrarbœklingamir verða kynntir á
Umboðsskrifstofunni Kirkjubraut 3, Akranesi
Kanarí
AÍjtarnir
(,olf
Idinbor**
Mcxico
\sía
(Íh*,lllUlrterl\-
ofi T
thm(/s
Akranesumboð - Kirkjubraut 3
DRVflL UTSYN Sími 4314884, fax 4314883, netfang: thordis@uu.is
SitnniiiUiginn S. ngiís/
Kl. 13.00-16.00
Fníbærar lerðir
í sól, snjó oi» sjó: