Skessuhorn


Skessuhorn - 22.06.2000, Blaðsíða 11

Skessuhorn - 22.06.2000, Blaðsíða 11
§S1SS1ÍH©M FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 2000 11 Aflal Aflabrögb irö^ í síðustu ?ð viku Far vf f tonn Rifshöfn 11/6-17/6 Rifsnes botnv 3 34,6 Bára dragn 3 7,3 Esjar dragn 3 24,1 Fúsi dragn 2 3 Rifsari dragn 2 11,2 Andri handf 1 0,9 Armann handf 2 1,3 Boði handf 2 2,8 Diddi SH handf 2 3,4 Kári 11 handf 5 7,1 Kristbjörg handf 1 1 Krían handf 1 1,6 Leifur handf 3 3,1 Múli handf 1 1,3 Sæhamar handf 2 3,3 Þerna handf 2 5,2 Bjössi lína 3 2,5 Guðbjartur lína 2 5,6 Heiðrún lína 2 9 Jóa lína 2 1,8 Siggi Guðna lína 2 1,2 Sæbliki lína 2 5,5 Sæfinnur lína 1 2 Emma II net 1 0,5 Hafhartíndur net 2 1,2 Orvar net 2 6,7 samtals 148,4 Stykkish 11/6-17/6 Grettír botnv 1 15,2 Denni handf 2 1,4 Fönix 98 handf 2 2,7 Glitský handf 1 0,8 Heppinn handf 1 0,6 Hrísey handf 2 1,2 Karl Þór handf 2 4,2 Kári handf 2 1 Lára handf 1 1 Litli vin handf 2 2,2 Jónsnes lína 1 1,2 Kári lína 2 2,2 Kristinn Friðr. rækjuv 1 11,8 samtals 46 Amarstapi 11/6-17/6 Dofri handf 2 2,2 Draupnir handf 2 1,5 Dritvík handf 4 1,2 Fúlvíkingur handf 2 3,9 Gjafi handf 1 0,7 Gladdi handf 2 0,5 Hafdís handf 2 1,4 Huld handf 3 2 Isborg handf 2 2,2 Jóhanna St. handf 2 1,4 Kneifarnes handf 2 0,9 Krosssteinn handf 2 1,3 Már handf 2 2,5 Rikey handf 2 2,9 Rún handf 3 2,9 Salla handf 2 2,3 Skarfur handf 1 0,7 Straumur ii handf 2 1,2 Svalan handf 2 0,4 Sælaug handf 2 1,3 Tryggvi Jónss. handf 2 1 Von handf 1 0,6 Von handf 2 2 Þerna handf 3 2,2 Þytur handf 2 1,8 Brimsvala handf 1 0,7 Sæfari handf 3 2,7 Númi lína 1 0,6 Oli Gísla lína 1 1,3 samtals 47,7 Listrænn spaugari! Þess er skemmst að minnast að nokkur listaverk voru afhjúpuð við sjávarsíðuna á Akranesi fyrir nokkru. Þrjú þeirra eru á Elínar- höfða, ofan Kalmansvíkur. Ekki ber á öðru en að uppsetning verkanna hafa kallað fram lista- manninn í fleirum því einhver spaugsamur hefur bætt fjórða verk- inu við, baðkari. Eins og sjá má á þessari mynd sómir baðkarið sér vel í höfðanum. Höfundurinn hefur meira að segja gefið sér tíma til að setja upp snoturt skilti, svo vegfar- endur velkist ekki í vafa um tilgang og eðli verksins! -SSv. Fyrsti bátiirinn kominn á sinn stað. Mynd: GE Búðardalshöfn tilbúin Framkvæmdum við nýju smá- bátahöfnina í Búðardal er nú að fullu lokið að sögn Einars Mathiesen sveitarstjóra Dalabyggð- ar. Þar hafa grjótgarðar verið endur- hlaðnir og komið fyrir flotbryggju og umhverfið lagfært og snyrt. Einar segir að með þessari nýju hafharaðstöðu sé fyrst og fremst verið að stíla inn á skemmtibáta. “Við erum að vinna að markaðs- setningu sveitarfélagsins á sviði ferðaþjónustu og höfhin leikur þar stórt hlutverk,” segir Einar. Smábátahöfnin verður formlega tekin í notkun næstkomandi laugar- dag um leið og víkingaskipið Islend- ingur leggur upp í ferð sína til Grænlands og Norður-Ameríku. GE Opið bréf til Akumesinga: Hingað og ekki lengra Ég er sár og ég er reið. Ég er sár vegna þess að látið er að því liggja í viðtali við Hilmar Björnsson eig- anda Hótels Barbró í síðasta Skessuhorni að ég þurfi sérstaka fyrirgreiðslu og aðstoð annarra til að reka fyrirtæki mitt. Ég er reið vegna þess að fjölskylda mín er dregin inn í málið á ósmekklegan hátt og öllu hrært saman í eina hringavitleysu. Hver er tilgangur- inn með þessu og hvað vakir fyrir manninum? 1. Haustið 1997 var Hótel Ósk auglýst til leigu. Ég var sú eina sem bauð í reksturinn og fékk hann. Astæða þess að ég bauð í reksturinn var einfaldlega sú að ég hef unnið við hótel og veitingarekstur í fjölda ára og hafði áhuga á því að gera það áfram. Einfalt mál - ég rek hótel- ið og ég þarf enga fyrirgreiðslu til þess og er íullfær um það þó ég sé kona. 2. I vetur var Café 15 auglýst til sölu. Ég fékk bróður minn og mág með mér til að kaupa kaffihúsið. Og ástæðan: Ég vildi skapa mér vinnu yfir veturinn líka. Ég tel mig hafa rekið þessi fyrir- tæki vel og staðið mig í mínu starfi jafnvel betur en margir karlmenn. Kaffihúsið hefur gengið vel og það þakka ég frábærum viðtökum Skagamanna sem hafa tekið mér á- kaflega vel því ég tel mig veita góða þjónustu í góðri sátt við viðskipta- vini og starfsfólk. Mér er efst í huga þakklæti til Skagamanna fyrir að hafa viljað nýta sér þá þjónustu sem Café 15 býður upp á. Viðskipti við Akranesbæ Viðskipti mín við Akraneskaup- stað eru í alla staði eðlileg en ef bærinn vill eyða peningum í að gera útboðsgögn vegna kaupa á nokkrum samlokum sem keyptar voru af mér vegna fundar atvinnu- málanefndar þá er ég tilbúin að gera tilboð. Ég minnist þess hinsvegar ekki að ein einasta af þeim fjölmörgu veislum og mótt- tökum bæjarins sem voru á Barbró þegar ég vann þar hafi verið sam- kvæmt útboði. Oeðlileg samkeppni? Ég vil að Akurnesingar og aðrir eigi við mig viðskipti á sínum for- sendum en ekki vegna einhvers annars því viðskiptavinir verða ekki neyddir til að skipta við einn fremur en annan. Þau viðskipti eiga að vera vegna góðrar þjónusm, þægilegs viðmóts og góðrar vöru og af engum öðrum ástæðum. Tveir bræður eiga helming veit- inga- og gististaða á Akranesi. Ég hleyp ekki í Samkeppnisstofhun eða Samgönguráðherra út af því. Ég er tilbúin í samkeppni og ef það fer að ganga illa hjá mér þá er það mér einni að kenna og engum öðrum og segir það mér, að ég þurfi að gera betur því “árinni kennir illur ræð- ari”. Það á ekki að leita sökudólga út um allan bæ og skjóta allt sem fyr- ir verður og sjálfan sig í fótinn. Starfshópur um atvinnumál Ég sóttist ekki effir setu í starfs- hópi bæjarins um stefhumótun í at- vinnumálum því ég hef nóg annað við tímann að gera. Formaður at- vinnumálanefndar hafði samband við mig og hvatti mig til þess að vinna með hópnum og ég lét und- an. Það hefði aldrei hvarflað að mér að taka það að mér ef mig hefði rennt í grun að karlmaður teldi sig eiga það sæti vegna mikillar reynslu og hæfileika að eigin mati. Að lokum Ég þoli ekki öfund sem er ná- frænka græðginnar. Ég vil fá að reka mitt fyrirtæki í friði og í sátt við alla í heiðarlegri samkeppni. Fyrirtæki í veitinga- og hótelrekstri eiga að geta unnið saman því sam- keppnin kemur annars staðar ffá. Veitingastaðir á Akranesi eru ólíkir staðir sem eiga að geta stutt við hvorn annan í samkeppni við höf- uðborgarsvæðið. Það á ekki að vísa gestum frá Akranesi ef ekki er hægt að uppfylla óskir þeirra, held- ur vísa á annan stað á Akranesi. Ég er ósátt við viðtalið í Skessuhorni og þá afstöðu sem þar kemur ffarn til samkeppni og samskipta fólks. Ég ffábýð mér slíkt í lf amtíðinni og segi hingað og ekki lengra. Það er von mín að Skagamenn fyrirgefi mér það að bera hönd fyr- ir höfuð mér í ómaklegri árás á mig og mína. Anna Kjartánsdóttir Gestgjafi, Cafe' 15 Afsökunarbeiðni til Borgnesinga Reykjavík, 17.júní2000 Með bréfi þessu vil ég biðjast af- sökunar á ffamkomu minni á kvöld- skemmtun í íþróttamiðstöð Borg- nesinga 16. júní 2000. - Ég vil sér- staklega biðja afsökunar Einar Braga, sem var ábyrgur fyrir tækni- málunum og hljóðkerfi þetta kvöld, en í bræði minni kallaði ég hann ýmsum fukyrðum þannig að allir heyrðu. Ég hef nú þegar beðið hann afsökunar persónulega og vona að því sé hér með opinberlega komið á ffamfæri. Ég veit það núna (sem ég vissi ekki þá) að það sem var að ger- ast í tæknimálunum þetta kvöld, var ekki á hans valdi. Ég gekk út af sviðinu í íþróttahús- inu efrir að hafa sungið tæplega helminginn af lögunum sem ég ætl- aði að syngja. Astæðan var einföld - ég heyrði ekkert í sjálfum mér, né hvað ég var að gera. Þess vegna gat ég engan veginn sungið þannig að kæmi vel út. Alltaf lærir maður eitt- hvað nýtt, og ég lærði eina mikil- væga lexíu á þessu: Að íþróttahús eru hönnuð til að vera í boltaleik og stunda aðrar íþróttír, en ekki til tón- listarflutnings. Tónlistin, sem áhorfendur heyrðu í hátölurunum, endurvarpaðist á steinvegg, og bergmálaði því aftur tíl mín uppá svið. Á endanum var allt komið í einn hrærigraut, og ég hreinlega vissi ekki á hvaða hljóð ég átti að treysta. Það hefði ekki gert neinum greiða að halda áfram við þessar kringum- stæður, hvorki mér né áhorfendum. Þess vegna bið ég alla þá afsökunar, sem komnir voru í íþróttahúsið sér- staklega til að fylgjast með mér, ef ég hefi valdið þeim sárum vonbrigðum. Að lokum vil ég þakka Borgnesing- um kærlega fyrir allar góðu stund- imar sem við höfum átt saman und- anfarin ár, enda þekki ég ykkur af góðu einu saman. Virðingarfyllst, Páll Óskar

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.