Skessuhorn - 02.11.2000, Blaðsíða 13
FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2000
13
uhUsunu..
Eymdarástand í Flóanum
segir Jón Traustason skipstjóri á Stapavík AK
Undanfarin þrjú ár hefúr smám
saman dregið úr veiði dragnótar-
báta í Faxaflóa og hafa útgerðar-
menn og sjómenn sem stunda mið-
in miklar áhyggjur af minnkandi
veiði. Skarkolakvótinn hefur verið
skorinn niður og sandkolaveiðin
hefur daprast umtalsvert án þess að
einhlýtar skýringar á því hafi komið
fram. Faxaflóinn er opnaður fýrir
dragnótarveiðum 15. ágúst ár hvert
en í haust brá svo við að útgerðar-
menn fóru fram á að fresta opnun
til 15. september. Þrátt fyrir frest-
unina hefur ástandið í Flóanum alls
ekki batnað og hafa sumir bátarnir
hætt dragnótarveiðum og búið sig
til veiða með önnur veiðarfæri. A
annan tug báta stunda þessar veiðar
en aðeins einn dragnótarbátur er
gerður út frá Skaganum, Stapavíkin
AK 132. Stapavíkin er hætt drag-
nótarveiðum þetta haust og núna í
byrjun vikunnar voru skipverjar að
búa sig til tilraunaveiða á hörpuskel
í Hvalfirðinum. Skipstjóri á Stapa-
vík er Jón Traustason og hann gaf
sér tíma frá undirbúningi skelveið-
anna til að setjast yfir kaffibolla í
lúkarnum með blaðamanni Skessu-
horns og ræða málin.
Frumkvæði að
friðunaraðgerðum
“Það var gert að okkar frumkvæði
að fresta opnuninni um mánuð,”
segir Jón. “Við báðum um þetta
enda sjáum við manna best hvað á-
standið hefur versnað. Allar friðun-
araðgerðir í sambandi við drag-
nótaveiðina í Flóanum hafa verið að
okkar frumkvæði og hefur mark-
visst verið dregið úr sókninni. Það
er tími á þessu og aðeins veitt á
daginn, frá sjö til sjö, veiðbann er á
laugardögum og oftar en ekki hefur
orðið samkomulag um að róa ekki á
föstudögum heldur, sérstaklega
framan af hausti,” segir Jón.
Skarkolaveiðin er nánast hrunin
og segir Jón að ekki hafi verið nægi-
lega góð nýliðun í rauðsprettunni.
“Fiskifræðingarnir segja okkur að
uppistaðan í rauðsprettuveiðinni
síðastliðin þrjú ár sé sami árgangur-
inn og meðan ekki koma inn nýir
og sterkir árgangar þá segir það sig
sjálft að þetta klárast. Það er síðan
spurning hvað er að gerast með
sandkolann, hann er mjög lítið
rannsakaður og stutt síðan farið var
að skoða hann. En það er áberandi
minni veiði síðustu þrjú ár. Þar á
undan komu tvö mjög góð ár, þá
var mokveiði hér í Flóanum. En
þetta er eymdarástand núna í Fló-
anum, það er óhætt að segja það,”
segir Jón.
Engin lausn
að loka Flóanum
I gegnum tíðina hafa sjómenn á
Skaganum verið frekar andsnúnir
dragnótarveiðum og sagt veiðar-
færið spilla miðunum. Jón telur að
ástæður minnkandi afla eigi sér
fleiri en eina útskýringu og sam-
verkandi þættir séu þarna að verki.
“Það má ekki einblína svona á þetta
eina veiðarfæri. Menn verða að vera
dálítið víðsýnni en
það. Faxaflóinn er
náttúrlega ekki lok-
að hólf og fiskurinn
hefur nú einu sinni
sporð. Merktur koli
er að veiðast austur
að Ingólfhöfða og
vestur á fjörðum.
Kolaveiðin hefur
alls staðar verið
miklu minni, ekki
bara hér heldur alls
staðar. Það er talað
um að loka Flóan-
um en ég held að
það sé engin lausn.
Aftur á móti mundi
ég vilja láta loka
vissum stöðum á
vorin þegar rauð-
sprettan gengur inn
á grunnið áður en
hún hrygnir. Flóinn
er þá lokaður fyrir
dragnót þótt megi
veiða sprettuna í
net. I Breiðafirðinum eru þeir að
veiða töluvert magn í net frá því í
endaðan mars og fram í maí. Þetta
eru vissir staðir sem menn þekkja
og mér finnst alveg athugandi að
loka þessum stöðum fyrir öllum
veiðum á meðan hrygning á sér
stað. Veiðarfærið skiptir í sjálfu sér
ekki máli, rauðsprettan er jafn dauð
hvort sem hún veiðist í dragnót,
troll eða net. Og það að vera að
drepa hana á þessum tíma finnst
mér ekki rétt. Þetta er ekki fiskur á
þessum árstíma, hún er grindhoruð
Jón Traustasm, skipstjóri á Stapavíkinni.
og lágmarksverð fæst fyrir hana.
Það er frumskilyrði að leyfa fiskn-
um að hrygna.
Heitur sjór
og suðvestan átt
Jón nefnir líka að sjórinn í
Faxaflóanum sé heitari en í með-
alári og það geti líka haft sín áhrif.
“Það er alþekkt að hitinn hefur á-
hrif á fiskirí. Það er minna af
þorski og frekar dauft í netin sem
einnig virðist tengjast ástandi
sjávarins. Fyrir austan
land er sjórinn kaldari
og þar skilst mér að
hafi verið þokkaleg
kolaveiði. Talandi um
ofveiði þá held ég að
þetta stýri sér að ein-
hverju leyti sjálft. Það
eru margir stærri bátar
hættir á dragnót og
menn stunda ekki það
sem gefur ekki af sér.
Eitt enn mætti nefna
sem gæti líka haft sín
áhrif og það er að það
hefur ekki gert al-
mennilega suðvestan
átt hérna síðan ein-
hvern tíma í fyrravet-
ur. Það hefúr ekki gert
neitt brim. Eftir góða
suðvestan átt hefur
alltaf lifnaði yfir neta-
veiðinni og veiðinni í
kolanum líka. En eins
og ég segi, það er eng-
in lausn að loka þessu.
Eg get ekki séð það því að það
yrði þá að gilda víðar. Eg tel eins
og ég sagði skynsamlegt að friða á
vissum stöðum á hrygningartím-
anum eins og tíðkast með
þorskinn. Ég er mjög ósammála
þessum röddum hérna sem tala á
móti dragnótinni, menn tala um
þetta af algjörri vanþekkingu enda
sýna rannsóknir og kannanir að
þetta veiðarfæri er ekki verra en
önnur, nema síður sé,” segir Jón
Traustason.
K.K.
Trésmiðjan Kjölur
byggir á Akranesi
Parhús við Ásabraut 15 og 17.
Hvor íbúð er 132 m2 ásamt 30m2 bílskúr, þrjú svefnh,
geymsla innaf bílskúr. Húsið er byggt úr forsteyptum
einingum sem eru steinaðar að utan.
Afhendingartími maí-júní 2001.
Raðhús við Asabraut 12-18.
Hver íbúð er 114 m2 ásamt 31 m2 bílskúr, tvö svefnh,
þvottah, og geymsla innaf bílskúr. Húsið er byggt úr
forsteyptum einingum sem eru steinaðar að utan.
Afhendingartími apríl - maí 2001.
LLlii Ijijisiili 11 ! ||il[;!i|í|ll i11
IfBi 1 ^ í _□ Lffl
Söluaðili er: uEgygm .
FASTEÍQNAMVbLUN VESTURLANÓS
SOFFÍA MAGNÚSDÓTTIR, LÖGG. FASTEIGNA- OG SKIPASALI
KIRKJUBRAUT 40. SÍMI 431 4144 & 431 4266 - FAX 431 4244 ■■■