Skessuhorn


Skessuhorn - 02.11.2000, Blaðsíða 22

Skessuhorn - 02.11.2000, Blaðsíða 22
22 FIMMTUDAGUR 2. NOVEMBER 2000 jk£S3U11U>^ A skrifstofu forseta Islands: F.v. Elís Þröstur, GuSmundur Stefán, Amar Pdlmi, Olafiir Ragnar, Ami Asbj'úm, Guðmundur Itigi, Ölver Þráinn og Helgi Sveinsson. I heimsókn á Bessastöðum Vistmenn á sambýlinu í Borgar- nesi brugðu sér bæjarleið í liðinni viku og heimsóttu forseta Islands Hin árlega tónlistarkeppni NFFA verður haldin á morgun, föstudag. Hljómsveitirnar í ár eru átta talsins, en þegar hefur verið haldin undankeppni þar sem sjö hljómsveitir urðu ffá að hverfa. Að sögn Asgeirs Gylfasonar, gjald- kera NFFA, eru hljómsveitirnar jafh misjafnar og þær eru margar. “Þetta er allt ffá poppi yfír í rapp og einhverjar svona raftónlistar- pælingar hjá honum Ama Teit.” Keppnin verður að venju haldin í Bíóhöllinni á Akranesi og kynnir- inn í ár er enginn annar en Hemmi feiti ffá útvarpsstöðinni Radio X. “Keppnin í ár heitir Glysrokk og þemað er þetta fræga “eighties look”, glimmer, grifflur, blásið hár og svo framvegis. Sem fyrr verður hvergi til sparað í hljóðum og ljósum og þess háttar. Keppnin er öllum opin, hún hefct klukkan 17 og aðgangseyrir fyrir þá sem ekki eru í nemendafélag- inu er 1.300 krónur. Eftir keppn- ina er svo ball með Sálinni hans að Bessastöðum. Guðmundur Stef- án Guðmundsson, einn vistmanna, sagði í samtali við Skessuhorn að Jóns míns á sal FVA auk þess sem verða plötusnúðar í hinum svo- kallaða gamla sal skólans. Alla þessa viku verður útvarp FVA með útsendingar á FM 95,0 þar sem leikin verða Iög úr fyrri tónlistar- keppnum auk þess sem Sálarlög verða í hávegum höfð. Það er engin lognmolla í kring- um starfsemi NFFA því í kvöld, fimmtudag, verður Páll Oskar Hjálmtýsson með svokallað Dr. Love kvöld á sal skólans. Þar verð- ur hann með kvöldstund þar sem sýndar verða glærur og myndbönd og að eigin sögn mun hann breyta því hvernig fólk hugsar um kynlíf á 90 mínútum. Að sögn Asgeirs vildi Páll Óskar hvetja foreldra sem og aðra bæjarbúa sérstaklega til að mæta á þessa kvöldstund. Aðgangseyrir er 500 krónur fyrir þá sem ekki eru í nemendafélag- inu. Húsið opnar klukkan 20 og Páll Óskar stígur á svið um hálf- tímasíðar. SÓK forsaga heimsóknarinnar hafi verið sú að fyrir um mánuði skrifúðu vistmenn bréf til forsetaembættis- ins og spurðu hvort þeir mættu kíkja í kaffi! Svar barst eftir nokkr- ar vikur, þar sem þeir voru boðnir velkomnir á staðinn. Ólafúr Ragnar Grímsson tók síðan á móti þeim fé- lögum 25. október. Að sögn Guðmundar Stefáns fékk hópurinn glæsilegar móttökur. Meðal annars sýndi forsetinn þeim fomleifauppgröftinn á Bessastöð- um, gjafir sem forsetaembættið hefur fengið og að endingu var skálað í kóki og skrifað í gestabók. Ferðin var þeim félögum ógleym- anleg og ekki síst honum Helga Sveinssyni. Hann var fermdur á Bessastöðum fyrir nokkrum áratug- um og fékk við það tækifæri áritaða passíusálma að gjöf frá Asgeiri As- geirssyni þáverandi forseta. Helgi tók Passíusálmabókina með sér í heimsóknina og fékk Ólaf Ragnar til að árita hana í leiðinni. Þeir félagar vom sælir og ánægð- ir með skemmtilega og fróðlega heimsókn til forseta Islands og vildu koma kæra þakklæti til emb- ættisins fyrir höfðinglegar móttök- ur. Fararstjórar í ferðinni vora þær Eygló Lind og Sigríður Finnboga- dóttir. MM Saltkjöt Þykir þér saltkjöt gott? Þessa dagana eru saltkjötsunnendur að setja sitt kjöt í tunnur. Kristín Erna Leifsdóttir í Gröf í Eyja- og Miklaholtshreppi á í fóram sínum uppskrift að saltkjötspækli sem hún gjarnan vill miðla öðrum. Pækilsuppskriffin er eftirfarandi: 3 lítrar vatn, 375 grömm gróft salt, 375 grömm nitritsalt. Og loks 7 5 grömm sykur. Kjöt úr þessum pækli er tilbúið í pottinn eftir 3-4 daga. Verði ykkur að góðu. IH ASalstjám NFFA, Ómar, Sveinbjörii og Asgeir. Tónlistarkeppni í Bíóhöllinni Sýningí Norska Föstudaginn 3. nóvember 2000 verður opnuð sýning á myndverkum Rutar Leiftdóttur og Margrétar Sig- urðardóttur í Norska húsinu, Stykk- ishólmi. Þetta er fyrsta sýning þeirra en þær era báðar búsettar í Styklds- hólmi. Þær sýna aðallega myndir málaðar með pastel og akrýl. Sýn- ingin stendur til 21. nóvember. Framhald á Menntasmiðju? Verkefnisstjóri Menntasmiðju kvenna á Akranesi hefúr sent bæjarstjóm bréf þar sem hún hvetur bæjarstjóm til þess að halda áffam rekstri menntasmiðju á haustönn2001 fyrir 15-20 konurí 13 vikur einsogverið hefúrnúívetur. Mál- inu var vísað til afgreiðslu fjárhagsáædunar ársins 2001. Að sögn Gísla Gíslasonar bæjarstjóra kemur framhald vel tíl greina. “Það er tillaga um það að vera með námskeið á seinni hluta næsta árs og fyrri hluta árs- ins 2002. Það er hlutur sem við ákveðum endanlega í fjárhagsáædun sem er í vinnslu núna. Eg held að mér sé þó óhætt að segja að menn séu mjög jákvæð- ir í þessu.” Ekki yrði um að ræða framhald af því námi sem var boðið upp á í haust heldur sambærilegt nám fyrir nýjan hóp kvenna og að sögn Gísla er gert ráð fyrir því að affur yrði leitað efb'r styrkjum ef til framhalds kæmi. SOK Halda hópinn Snæfellingar Félag Snæfellinga og Hnapp- dæla í Reykjavík er félagsskapur burtfluttra Snæfellinga og ann- arra þeirra sem tengjast Snæfells- nesi á einhvern hátt. Tilgangur átthagafélaga er að efla tengsl borgarbúa við átthagana í sveitum landsins. Þegar haustar hefst starf þessara félaga af fullum krafti. Félag Snæfellinga og Hnappdæla var stofnað árið 1939. Nú era fé- lagar FSH tæplega 300. Félagið hefur víða komið við og starfað að mörgum framfaramálum tengd- um átthögum sínum. Félagið hóf skógrækt í samstarfi við Skóg- rækt ríkisins í Búðahrauni árið 1943 og keypti land þar til afnota fyrir félaga. Þá keypti félagið og endurbyggði gamalt verslunarhús á Búðum og rak þar Hótel Búðir frá árinu 1955 til ársins 1980. Þegar þar var komið sögu var fé- laginu orðið ofviða að reka hótel- ið og var það selt. Árið 1993 eignaðist félagið íbúðarhúsið Eyri á Arnarstapa í makaskiptum fyrir það land sem félagið átti í Búða- hrauni. Eyri er nú rekið sem or- lofshús fyrir félagsfólk. Snæfell- ingakórinn var stofnaður innan félagsins árið 1977 og starfar af miklum krafti undir stjóm Frið- riks S. Kristinssonar. Ár hvert er haldin vegleg árshátíð og er þá reynt að fá sem flesta af heima- slóðum. Árshátíð félagsins verður að þessu sinni haldin í Akoges- salnum að Sóltúni 3 í Reykjavík þann 4. nóvember næstkomandi. Von er á góðum gestum að vestan til að skemmta. Að þessu sinni mun Olína Gunnlaugsdóttir, Hellnum, syngja og leika fyrir okkur og Olöf Olafsdóttir, Stykk- ishólmi, fer með gamanmál. Heiðursgestir á samkomunni verða Skúli Alexandersson og kona hans Hrefna Magnúsdóttir frá Hellissandi. Veislustjóri verð- ur Kolbrún Björnsdóttir frá O- lafcvík. Emilía Guðmundsdóttir er formaður félagsins. “Það er von okkar að sem flestir Snæfell- ingar sjái sér fært að koma á árs- hátíðina og sjá og heyra hvað sveitungar okkar hafa fram að færa, hitta frændur og vini, og efla tengsl við átthagana”. IH Duglegir krakkar Hulda María, Kristín Björk og lnga Þóra. Ingþór og Sigurrós Páll og Kolbrún Krakkarnir á Akranesi slá ekki slöku við í tombóluhaldi ffekar en fyrri daginn. Allir þessir krakkar eiga það sameiginlegt að hafa á dögunum haldið tombólu til styrktar Akranesdeild Rauða kross Islands. Margt smátt gerir eitt stórt og framlag þessara krakka er gott dæmi um það. SÓK

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.