Skessuhorn - 01.02.2001, Blaðsíða 1
VIKUBLAÐ Á VESTURLANDI - 5.tbl. 4. árg. I.febrúar 2001 Kr. 250 í lausasölu
SÍM6NNTUNAR
(X^MIÐSTÖÐIN
Námsvísírínn
er kominn út
jkráning í síma
' 437 2390
uutö
eda a
•nsimenntun.is
Stykldshólmur
neilsubær
Bæjarstjórn Stykkishólms sam-
þykkti á ftindi sínum mánudaginn
15. janúar s.l. tillögu bæjarráðs um
að ganga til samninga við 3P-Fjár-
hús um stofnun fyrirtækis um
notkun heilsuvamsins í Stykkis-
hólmi. Fyrirtækið Fleilsuefling í
Stykkishólmi er undirbúningsfélag
um uppbyggingu heilsutækniþjón-
usm í Stvkkishólmi. Gert er ráð
fyrir að Stykkishólmsbær eigi 40%
hlutafjár í fyrirtækinu. 3P-Fjárhús
er í eigu tveggja sona Pálma í Fíag-
kaup og Páls Kr Pálssonar.
Fleildarkosmaður við gerð við-
skiptaáætlunar er áætlaður um 10
milljónir króna og er undirbúning-
ur Stykkishólmsbæjar metinn þar
inn í á 1,5 miljónir króna. Gert er
ráð fyrir að vinna hefjist strax og
myndi þannig samfellu við þá
vinnu sem hefur verið unnin ffam
til þessa. Ekki er óraunhæft að
ætla, að ljúka megi við gerð fullbú-
innar viðskiptaáætlunar á u.þ.b. 4
mánuðum, þannig að fyrir á að
liggja hvaða samningum er hægt
að ná um þau atriði sem semja þarf
um og hægt verði að fara að þýða
viðskiptaáætlun yfir á ensku og
undirbúa kynningu fyrir fjárfest-
um. Aætlað er að sú vinna taki 2
mánuði.
Jafnhliða þessu yrðu kannaðir
möguleikar á því að keyra tilrauna-
starfsemi á vordögum í tengslum
við Mecca Spa, þar sem sérhæfðir
starfskraftar kæmu ffá þeim og
þangað yrði leitað efrir þekkingu
við uppbyggingu á dagskrá, mark-
aðssetningu og fleiri slíkum þátt-
um. Slík tilraun myndi geta orðið
mikill styrkur við lokagerð við-
skiptaáætlunar.
Félaginu er ætlað að vinna í
þremur skrefum að eftirfarandi
markmiðum
1. Fleilsutækniþjónusta sem nýt-
ir gistimöguleika og umgjörð alla í
Stykkishólmi, þ.e. vatnið til
baða og aðra afþreyingu sem í boði
er. Yrði það almenn heilsutækni-
og hvíldarþjónusta fyrir almenn-
ing. Þar myndu að koma stéttar-
félög og Tryggingastofnun sem
myndu í sumum tilfellum greiða
hluta af dvalarkosmaði gesta.
2. Fleilsutækniþjónusta fyrir
veikara fólk, þ.e. þá er þurfa að
sækja sér sérhæfðari þjónustu og
vera undir eftirliti sérfræðinga.
Er verið að hugsa til þeirra er þjást
af bakmeinum, hálseymslum og
jafrivel húðmeinum. Þá er horff
til St. Fransiscu-sjúkrahússins og
þeirrar aðstöðu sem þar er til að
þess að sinna þessum hópi fólks.
3. Almenn hvíldar- og spa-
þjónusta fyrir heilbrigt fólk sem
sækist eftir hvíld, slökun og afþr-
eyingu og er þar sérstaklega horft
til útlendinga í þessu sambandi.
Er uppbygging í Sundvík á smá-
hýsum og meðferðarmiðstöð
meginmarkmiðið.
IH.
Iþróttamaður Borgarþarðar
Einar Trausti Sveinsson var
valinn íþróttamaður Borgarfjarð-
ar fyrir árið 2000 en valið var
kynnt á íþróttahátíð UMSB um
síðustu helgi. Einar Trausti er
frjálsíþróttamaður og náði m.a.
góðum árangri á Olympíuleikum
fatlaðra í Sidney í haust en þar
varð hann í fimmta sæti í spjót-
kasti.
í öðru sæti í kjöri Iþróttamanns
Borgarfjarðar varð Kristín Þór-
hallsdóttir frjálsíþróttakona og
Hallbera Eiríksdóttir ffjálsíþrótta-
kona varð í þvi þriðja. GE
íþróttahátíð UMSB var haldin med pompi og prakt í Borgamesi um síðustu helgi. Meðal íþróttagreina var staifshlaup milli sveitarfé-
lagamia Borgaijjarðarsveitar og Borgarbyggðar þar sem hinir jymiefiidu sigruðu naumlega. Hér keppa tveir fulltníar sveitaifélag-
anna, þau Helga Halldórsdóttir ogjón Gíslason í servíettubroti.
Siggi Jóns til FH
Mótmæla
Raflínu
Ibúar Hvalfjarðarstranda-
hrepps hafa að undanfömu staðið
fyrir undirskriftasöfnun til að
mótmæla lagningu háspennulínu
í gegnum íbúðar- og sumarhúsa-
byggð í Svínadal. Að sögn Reynis
Asgeirssonar á Svarfhóli í Svína-
dal hafa safriast á fimmta hundrað
undirskriffir íbúa og sumarhúsa-
eigenda í Hvalfjarðarstrandar-
hreppi. Þá hefur hreppsnefnd
Hvalfjarðarstrandahrepps og
sveitarstjómir nágrannasveitarfé-
laganna lýst andstöðu við að lögð
verði lofflína þvert í gegnum dal-
inn. Einnig ályktaði stjóm SSV á
sömu lund á síðasta fundi sínum.
Að sögn Reynis munu fulltrúar
íbúa ganga á fund forstjóra lands-
virkjunar í nxstu viku og afhenda
honum undirskriffalistana og
skýra sín sjónarmið. Ibúar Hval-
fjarðarstrandahrepps krefyast þess
að háspennulögnin verði lögð f
jörð þar sem hún fer um íbúða-
byggðina og í næsta nágrenni.
GE
Nú er orðið Ijóst hvar einn dáð-
asti knattspyrnumaður Skagamanna
fyrr og síðar, Sigurður Jónsson,
spilar næsta sumar. Sigurður skrif-
aði undir samning við Fimleikafélag
Hafriarfjarðar síðastliðinn þriðju-
dag og gildir hann út næsta keppn-
istímabil. Miklar vangaveltur hafa
verið um hvar Sigurður muni leika
næsta sumar eða allt frá því að
KFIA og Sigurður komust að sam-
komulagi um að rifta samningum
sín á milli í byrjun nóvember.
Um tíma leit út fyrir að Sigurður
tæki við þjálfun Keflavíkurliðsins en
þær viðræður sigldu í strand. Auk
þess að spila með FH mun Sigurð-
ur aðstoða Loga Ólafsson við þjálf-
un liðsins. Sigurður kemur til með
að stjórna séræfingum fyrir yngri
leikmenn meistaraflokks og kemst
þar með einu skrefi nær því mark-
miði sínu að snúa sér að þjálfun eff-
ir að ferlinum lýkur sem leikmaður.
HH
Samstarfsvettvangur
Stefrit er að því að Samstarfs-
vettvangur Vesturlands taki til
starfa innan fárra vikna. Sem
kunnugt er var stofnun sam-
starfsvettvangsins ákveðin á síð-
asta aðalfundi Samtaka, sveitarfé-
laga á Vesturlandi. Samstarfsvett-
vangi Vesturlands er ætlað að yf-
irtaka starfsemi SSV að hluta en
opna það samstarf meira en verið
hefrir og auk sveitarfélaganna
munu ýmis fyrirtæki og stofrianir
eiga hlut að máli.
Að sögn Gunnars Sigurðssonar
formanns SSV var starfsmönnum
SSV falið að kynna málið fyrir
fyrirtækjum, stofriunum og fleiri
aðilum. Viðbrögðin verða síðan
metin og ákvörðun um stofriun
samstarfsvettvangsins tekin í
framhaldi af því. Stefrit er að því
að frekari áform liggi fyrir í byrj-
un mars.
GE