Skessuhorn - 15.02.2001, Page 1
SÍM6NNTUNAR
^j^MIÐSTðÐIN
Námsvísirinn
er kominn út
VIKUBLAÐ A VESTURLANDI - 7. tbl. 4. árg. 15. febrúar 2001 Kr. 250 í lausasölu
Vv V
Umfangsmiklar aðgerðir samgönguráðuneytisins í byggðamálum
Fimmtíu störf á landsbyggðina
Ný störf m.a. í Olafsvík, Stykkishólmi og Borgarnesi
Samkvæmt heimildum Skessu-
homs er fyrirhugað að flytja um
fimmtíu störf frá Reykjavík á
landsbyggðina á vegum Sam-
gönguráðiinevtisins. Samkvæmt
áreiðanlegum heimildum mun
Sturla Böðvarsson samgöngu-
ráðherra tilkynna um þessi á-
form á fundi í Ólafsvík á morgun,
föstudag.
I september 1999 ritaði sam-
gönguráðherra undirstofnunum
ráðuneytisins og lagði fram þá
stefnu að leita skyldi leiða tdl að
flytja störf út á landsbyggðina.
Óskaði hann eftir því að þegar störf
losnuðu yrði kannað hvort hægt
væri að vinna viðkomandi verk utan
höfuðborgarsvæðisins og þá helst á
þeim svæðum þar sem atvinnulíf er
einhæít.
Viðbrögð stofnana samgöngu-
ráðuneytsins mun hafa verið á þá
leið að á næstunni verði hægt að
flytja um fimmtíu störf á lands-
byggðina, meðal annars á tvo staði á
Vesturlandi.
A fundinum sem fyrirhugaður er
í Ólafsvík á morgun verður form-
lega opnað þjónustuver samgangna
í Snæfellsbæ. Samgönguráðuneytið,
Vegagerð ríkisins, Flugmálastjórn
Islands, Siglingastofnun íslands og
Snæfellsbær hafa gert með sér
samning um rekstur þjónustuvers-
ins. Tilgangur samstarfs þessa mun
vera að þróa starfsaðferðir til að
bæta þjónustu samningsaðila á
svæðinu, samnýta tækjakost og
starfskrafta eins og unnt er og
tryggja öryggi þjónustunnar. Stað-
setning starfseminnar verður í hús-
næði Vegagerðarinnar í Ólafsvík og
skal þjónustuverið rekið sem verk-
efni með sérstakri kennitölu. Eitt
nýtt starf verður til við þessar
breytingar.
Þá mun vera fyrirhugað að rann-
sóknarnefnd sjóslysa verði staðsett í
Stykkishólmi og hafi aðsetur í flug-
stöðinni á Stykkishólmsflugvelli.
Við nefhdina er eitt og hálft stöðu-
gildi á ársgrundvelli.
A vegum flugmálastjómar mun
vera fyrirhugað að skapa um sex ný
störf á landsbyggðinni með samn-
ingum við einstök sveitarfélög
vegna þjónustu við flugvelli.
A Isafirði er ætlunin að verði til
eitt starf á vegum Siglingastofnunar
Islands í útibúi stofnunarinnar
tengt flokkun og skráningu skann-
aðra teikninga.
Þá mun vera ákveðið að Vega-
gerðin flytji skiptiborð og hluta af
upplýsingaþjónustu við vegfarend-
ur til Isafjarðar og verði þar aðal
símsvörun Vegagerðarinnar auk
þess sem þaðan verða veittar upp-
lýsingar um færð og verður. Einnig
mun vera til athugunar að öll sím-
svörun fyrir samgönguráðuneytið
og aðrar stofnanir þess verði flutt
vestur í framtíðinni. Auk þess ligg-
ur fyrir að Vegagerðin beini sínum
viðskiptum varðandi aðkeypta
þjónustu, í auknum mæli til fyrir-
tækja á landsbyggðinni. Alls mun
vera áætlað að tólf til átján störf
skapist á landsbyggðinni á vegum
Vegagerðarinnar til ársins 2002.
Nú þegar hefur aðalskiptiborð og
þjónustuver Islandspósts verið flutt
Sturla Böðvarsson samgöngnráðherra
til Akureyrar, pökkun fyrsta dags
umslaga verið flutt til ísafjarðar, frí-
merkjavarsla í Borgarnes, vinna við
ársmöppur í Búðardal og unnið
mun vera að flutningi á smá-
vörulager fyrirtækisins til Blöndu-
óss. Þessar ákvarðanir þýða um það
bil átta til tíu ársverk sem flutt eru
út á land.
A vegum Landsímans mun vera
fyrirhugað að fjölga störfum á
landsbyggðinni um 20 - 30 á þessu
ári við þjónustunúmer símans, 118.
I dag er svarað í það númer á þrem-
ur stöðum, utan Reykjavíkur, þ.e.
Isafirði, Akureyri og Egilsstöðum.
Að lokum mun vera ráðgert að
bjóða út tilkynninga- og strand-
stöðvarþjónustuna sem verið hefur í
höndum Póst- og símamálastofh-
unarinnar. Gert er ráð fyrir að við
það flytjist allt að sex stöðugildi á
landsbyggðina.
Samkvæmt heimildum Skessu-
horns mun það vera einsdæmi að
ráðherra tilkynni um jafn umfangs-
mikla fjölgun starfa á landsbyggð-
inni í einu lagi. GE
Sviptingar í afurðavinnslumálum í Borgamesi
Goði í stað Reykjagarðs?
Nú liggur ljóst fyrir að Reykja-
garður mun ekki flytja kjúklinga-
slátrun sína í Borgarnes eins og til
stóð en sem kunnugt er festi fyrir-
tækið kaup á Engjaáshúsinu svo-
kallaða á síðasta ári undir starfsemi
sína. Elins vegar munu forsvars-
menn Goða hf. vera að endurskoða
þá ákvörðun að flytja starfsemi sína
í Mosfellsbæ og samkvæmt heim-
ildum Skessuhorns kemur til
greina að fyrirtækið kaupi Engjaás-
húsið.
“Málin hafa þróast þannig að við
munum ekki nýta Engjaáshúsið og
þegar ég sá að Goði ætlaði að fara í
Mosfellsbæinn lét ég þá vita að
húsið væri falt,” segir Bjarni Asgeir
Jónsson framkvæmdastjóri Reykja-
garðs. Aðspurður um ástæðu þess
að fyrirtækið er hætt við flutning-
inn segir Bjarni Asgeir: “Það er
fyrst og fremst vegna þess að við
sjáum fram á mikinn slag á mark-
aðnum og við treystum okkur ekki
í þá fjárfestingu sem fylgir flutn-
ingunum. Við sjáum heldur ekki
alveg fram á lausn á starfsmanna-
málum og húsnæðismálum. Við
höfúm því ákveðið að bæta við hús-
ið fyrir austan til að hægt verði að
setja inn fullkomna sláturlínu. Við
fengum Engjaáshúsið á góðum
kjörum og á góðu verði á sínum
tíma og ég hef boðið Goðamönn-
um að ganga inn í þann samning að
tilskyldu samþykki Sparisjóðs
Mýrasýslu.”
Að sögn Bjarna Asgeirs hafa full-
trúar Goða skoðað húsið og einnig
hafa þeir átt fúnd með fulltrúum
Borgarbyggðar vegna þessarar nýju
stöðu sem upp er komin.
Marteinn Valdimarsson fram-
kvæmdastjóri Sláturfélags Vestur-
lands í Borgarnesi sem er í meiri-
hlutaeigu Goða hf. staðfesti í sam-
tali við Skessuhorn að hugsanleg
kaup á Engjaáshúsinu væru í at-
hugun hjá Goða. Hann sagði að
þar sem forsendur væru breyttar
væri fyrirtækið að kanna þann
möguleika að auka sína starfsemi í
Borgarnesi í stað þess að minnka
u.1!I
Engjaás.
hana eins og ákveðið var fyrir
skömmu. Eins og fram hefur kom-
ið í Skessuhorni hafði Goði áhuga
á Engjaáshúsinu áður en ákvörðun
var tekin um að fara í Mosfellsbæ
en á þeim tíma var það ekki falt.
Marteinn kvaðst ekki vita hvenær
endanleg ákvörðun lægi fyrir en
sagði að menn ætluðu að flýta sér.
GE
KB-Hyrnutorgí
opið kl. 9-19
laugard. 10-19
'f.
ot.