Skessuhorn - 08.03.2001, Blaðsíða 10
10
FIMMTUDAGUR 8. MARS 2001
^Kisaaunu..
Vín -
Broadway
Sunnudaginn 11. mars kl. 20.30
verða tónleikar í Hótel Borgarnesi
á vegum Tónlistarfélags Borgar-
fjarðar.
Gestir þess verða að þessu sinni
söngvararnir Sigrún Hjálmtýs-
dóttir, sópran, Bergþór Pálsson,
bariton, Sigrún Eðvaldsdóttir
konsertmeistari Sinfóníuhljóm-
sveitar Islands og Veislutríóið en í
því eru Anna Guðný Guðmunds-
dóttir, píanó, Sigurður Snorrason,
klarinetmleikari og Páll Einarsson
kontrabassaleikari.
Að þessu sinni verður blandað
saman tónlist ffá Vínarborg m.a.
efrir Strauss og Lehár og hins
vegar söngleikjum af Broadway
m.a. eftir Gershwin og LLoyd-
Webber.
T
Sigrún Asta á förum
Sigrún Asta Jónsdóttir það hollt fýrir svona starfsemi að
safnvörður við Byggðasafn
Snæfellinga hefur sagt starfi sínu
lausu. Sigrún Asta hefur gengt
starfi safnvarðar með aðsetri í
Stykkishólmi í tæp 5 ár. Sigrún
Asta hefúr ráðið sig sem safnvörð
hjá Byggðasafni Suðurnesja í
Keflavík. Sigrún segir þennan tíma
hér á Snæfellsnesi vera sér
dýrmætan og margs muni hún
sjálfsagt sakna héðan. Hinsvegar sé
þar sé hæfileg endurnýjun svo
starfið staðni ekki og nýtt fólk veiti
nýjum straumum inn í starfið.
Sigrún veitti svo sannarlega nýjum
straumum inn í safnamál
Snæfellinga og hefur markað þeim
málaflokki nokkuð ákveðna stefnu.
Gert er ráð fyrir að starf safnvarðar
Snæfellinga verði auglýst á næsm
dögum.
IH
Margt skemmtilegt var gert á öskudaginn um allt Vesturland og var Akranes engin
undantekning. Þessar hressu stúlkur hitti bladamaður Skessuhoms á röltinu í miðbee
Akraness. Mynd SÓK
Hamrahlíðarkórinn á
Snæfellsnesi
Hamrahlíðarkórinn hélt um
helgina tónleika í Stykkishólms- og
Olafsvíkurkirkjum undir stjórn
Þorgerðar Ingólfsdótmr. Kórinn
hóf ferð sína með tónleikum í
Stykkishólmskirkju á laugar-
dagskvöld, þar fagnaði fólk
ákaflega og eins og einn
Hólmarinn orðaði það „Þau gáfu
okkur lag, kenndu okkur texta eftir
Halldór Laxnes við lag Atla Heimis
Sveinssonar svo segja má að við
höfum farið syngjandi út.“
Kirkjukór Olafsvíkurkirkju tók svo
á móti kórnum í hádegisverð í
safnaðarheimilinu á sunnu-
deginum. Síðan var kórinn með
tónleika í kirkjunni og tók þátt í
messu á eftir. „Það var yndislegt að
fá þennan söng í messuna og
ákaflega hátíðleg smnd”, sagði einn
kórfélaga í Kirkjukór Olafs-
víkurkirkju. Hamrahlíðar- kórinn
söng stólvers og söng síðan undir
altarisgöngu og tvö börn voru
skírð. Eftir messu þáði fólk svo
kaffisopa í safnaðarheimilinu.
IH
Óvenjuleg gjöf
I síðustu viku var haldinn
Sykkishólmi lokavarkfundur vegna
Hitaveitu Stykkishólms. A
fúndinum færði Sigvaldi Arason
framkvæmdarstjóri Borgarverks
Stykkishólmsbæ óvenjulega gjöf.
Gjöfin var myndband um sögu og
framgang framkvæmdarinnar.
Heimamönnum þykir mikið til
þessa koma og er þetta í senn
merkilegt og óvenjulegt framtak og
framlag til sögu Stykkishólms. Ari
Sigvaldason hafði veg og vanda að
gerð myndbandsins. IH
" %Uísnahornið
Fiórtánhundruð flöskutetur
Ekki hafa mér ennþá borist nein
viðbrögð við spumingum mínum í
síðasta þætti um veðurspávísur eða
viðmiðunardaga í sambandi við
veðurfar en í framhaldi af þeirri
umfjöllun mætti rifja upp vísuna um
öskudaginn:
Oskudaginn muna má
maður hvernig viðrarþá,
fróðir vita að hann á
átján brœður fdstunni á.
Og ættum við samkvæmt því ekki
að þurfa að kvíða föstunni, hver sem
raunin verður. Allavega hefur
aldrei, til þessa að minnsta kosti,
gert svo slæmt veður að það hafi
ekki skánað aftur. Jódís Jósefsdóttir
orti:
Oft í hríð og hörkufi'osti
hitgur greinir sumarský,
ekki væri að öðrum kosti
unnt að bíða vors á ný.
Eitthvað hefur veðurútlitið verið
skuggalegt þegar kveðið var:
Níí er eins ogyfir vofi óveður.
Skera matti úr skýjarofi skóleður!
Oftast leggst okkur eitthvað til sem
hressir við skapsmunina þegar á
móti blæs. Reinold Richter gaf
vinnufélaga sínum eftirfarandi
umsögn:
Þér er margt til lista lagt,
lagað flest þú getur,
enginn réttir skcelt og skakkt
skapið í mér betur.
Léttlyndir og gamansamir
vinnufélagar eru alltaf mikils virði
og við einn slíkan kvað Oddgeir
Jónsson frá Drageyri:
Oft mér reynist veenleg vörn
viður amaéli,
hvað kátur er hann karlinn Björn
Kristjánsson frá Seli.
Til er það fyrirbæri sem kallað er
vinnustaðafundir og er stundum
notað í sambandi við kosningar og
er vísast uppfundið vestur í henni
Ameríku enda hafa þeir fundið
margt upp þó þeir geti ekki lært að
telja atkvæði en eftirfarandi vísa
gæti hafa orðið til af því tilefúi:
Erindi heldur Eisenhower
út um flestar koppagnmdir,
það er verst hvað hæsin háir
honum nú um þessar mundir.
Þegar Eisenhower kom við á
Keflavíkurflugvelli fyrir fjölda-
mörgum árum komu stöðugt fréttir
í útvarpinu af komu hennar og varð
það tilefni þessarar vísu Jóns
Péturssonar:
Ymsar plágur ennþá henda
okkar smáu þjoð:
Eisenhower er að lenda,
ekki er spáin góð.
Utvarpsmenn og fjölmiðlamenn
hafa alla tíð notið mismikilla
vinsælda og meðan sumir tæma
götur og samkomustaði virðast
aðrir virka fráfælandi að minnsta
kosti á suma en ekki veit ég hver
orri:
Hér sit ég á sálinni hrelldur
yfir saltlausum graut haframéls
vil það þó helmingi heldur
en hlusta á Grétar 0. Fells.
Svafar Gests var án efa með
vinsælustu útvarpsmönnum um
árabil en þegar hann var eitt sinn
sem oftar með vinsælan útvarpsþátt
orti Sveinbjörn heitinn
Beinteinsson:
Veina hundar, vælafress,
vondir bolar öskra.
Svo er líka Svafar Gests,
sumumfer að blöskra.
Ekki hef ég getað áttað mig á hvaða
mannpersóna það var sem Benedikt
Gröndal orti um en þætti gaman ef
einhver gæti frætt mig á því:
Mér er sem ég sjái hann Kossúth
á sinni gráu reka hross rít.
Sína gerir hann svipu upp vega
sérastefánsámosfellilega.
Eitt af því sem hagyrðingar hafa
leikið sér að er að yrkja
sérkennilegar vísur og er hér ein
með allmörgum T-um:
Eitt sinn þeyttust út um nótt
átta kettir hratt og létt,
tuttugu rottur títt og ótt
tættu og reyttu á sléttri stétt.
Fyrir stuttu rak á fjörur mínar
seinnipart af sambærilegri vísu með
nokkuð mörgum P-um og langar
mig nú að spyrja lesendur hvort
einhver kannist við fyrripartinn af
þessu erindi:
Heppinn seppi hoppar upp
happ í lappir klappar.
Svona orðaleikir æfa menn í notkun
íslenskunnar og væri kannske ekki
úr vegi að láta hæstaréttardómara
æfa sig í vísnagerð ef það gæti orðið
til þess að þeir kæmu frá sér
skiljanlegum dómi. Fyrir nokkrum
árum varð töluvert umtal út af
talsverðu magni af áfengi sem
forseti hæstaréttar hafði keypt á
hagstæðum kjörum og varð það
Sigurdóri Sigurdórssyni tilefúi
eftirfarandi vísu:
Fjónánhundruðflöskutetur
fékk'ann sér og ekki léttar.
Skyndilega skil ég betur
skrýtna dóma hæstaréttar.
Sá bráðsnjalli hagyrðingur Bjarni
Jónsson frá Gröf í Víðidal orti
einhverntíma og gasti svo vel hafa
gert það í orðastað einhvers sem var
nokkuð sannfærður um eigið ágæti:
Endalaust ég alltaf finn
annarra sálir grunnar.
Ég er sjálfur tnanni minn
miðja tilverunnar.
Að endingu kemur hér gömul og
góð vísa með frómum óskum sem
ég tileinka hverjum og einum
lesanda mínum persónulega:
Bregðist þér aldrei bein úr sjá
né bresti þigfiskivöm.
Reki margan afla á
auðnu þinnar fjöru.
Með þ ökkfyrir lesturinn.
Daghjartur Dagbjailsson
Refistöðum S20 Reykholt
S435 1367
ffieygflrðshornið
Völuspá
2. útgáfa
Eins og flestum mun kunn-
ugt hefur hugsanlegur innflutn-
ingur á erlendu kúakyni verið
mjög til umþöllunar að undan-
förnu. Um er að ræða mikið
hitamál og í það blandast ótti
við ógnvænlega sjúkdóma, til-
finningar og fleira skemmtilegt.
Þessi umræða öll hefúr valdið
landbúnaðarráðherra áhyggjum
og svefntruflunum og ekki bætir
úr skák að þetta skuli dynja yfir
akkúrat þegar hann ætlar sér að
verða varaformaður Framsókn-
arflokksins. Af því tilefni gerði
góðbóndi nokkur í Borgarfirði
lítilsháttar “endurbætur” á
Völuspá Guðmundar Böðvars-
sonar, í takt við málefni líðandi
stundar.
Eitt verð ég að segja þér ekki seinna
en nú
-illa mun þeim farnast sem að rengja
fræði mín
Sagði mérþað álfakóngur og hans
frú
Sögðu mér það hamratröll við
Heljarbrú,
Sóru þau við heilög vé og heiðna tni
Og hiustaðu nú:
Hefiiist þeim sem svíkitr sína huldu-
kú.
Honum verður erfitt að verða vara-
formaður.
Hnjask
Það er alkunna að á ári hverju
verða fjölmargir ungir og efni-
legir menn íþróttabölinu að
bráð. Iþróttir þjóna sem kunn-
ugt er þeim eina tilgangi að
skapa heilbrigðiskerfinu næg
verkefúi. Einn af þeim sem orð-
ið hefur fyrir barðinu á íþrótta-
bölinu er Asgeir Asgeirsson,
bóndi, leikari og körfúknatt-
leiksmaður á Þorgautsstöðum í
Hvítársíðu. Ekki alls fyrir löngu
varð hann fýrir því á körfubolta-
æfingu að snúa eitthvað upp á
aðra afturlöppina. Komst hann
af eigin rammleik á heilsugæslu-
stöðina í Borgarnesi þar sem
hann var, eins og lög gera ráð
fýrir, meðhöndlaður við flestu
öðru en að honum var. Aður en
yfir lauk var Asgeir kominn með
fótinn í gifs og hækju sér til að-
stoðar.
A leiðinni heim í Hvítársíðu
mun þessi staka hafa hrotið af
munni Asgeirs, (að sögn Bjart-
mars Hannessonar):
Lings við bing á grænni grund
glingra og syng við slifsið.
Þvinga ég slyngan hækjuhmid
hringinn í kringum gifsið.
Fengu höfuðið
Um síðustu helgi var Snæ-
fellingum afhentur minnisvarði
um hinn landskunna prófast á
Staðarstað, sr. Arna Þórarins-
son. Sr. Arni bjó sem kunnugt er
“hjá vondu fólki” á Snæfellsnesi
alllanga hríð og mun honum
seint fýrirgefast allt sem hann
sagði um sveitunga sína þótt
hann sé fýrir löngu fallinn ffá.
Minnisvarðinn sem var af-
hjúpaður um síðustu helgi er
brjóstmynd af sr. Arna. Sjálfsagt
hefur það glatt margan Snæfell-
inginn því þeir munu lengi hafa
óskað sér þess að fá höfuð pró-
fastsins meinyrta.