Skessuhorn - 05.04.2001, Blaðsíða 1
VIKUBLAÐ Á VESTURLANDl - 14. tbl. 4. árg. 5. apríl 2001 Kr. 250 í lausasölu
^\íslensk
V 1 UPFLÝSfNGATÆKNI
Tölvur
uviðgerðir
Símar
ermingargjafir
Hyrnuíorgi ■ 430 2200 - verslun@islensk.is I
Hafdís
ungfirú
Vesturland
Fegurðarsamkeppni Vesturlands
fór fram fyrir fullu húsi í
Félagsheimilinu á Klifi í Olafsvík
um liðna helgi. Það var Ftafdís
Bergsdóttir 18 ára stúlka frá
Grundarfirði sem hreppti ungfrú
Vesturland. Rut Þórarinsdóttir, 21
árs frá Fllíðarfæti í
Hvalfjarðarstrandahreppi varð í
öðru sæti og Maren Rut
Karlsdóttir, 18 ára frá Akranesi í
því þriðja. Hafdís sópaðí að sér
titlunum þetta kvöld því auk þess
að vera valin fegurðardrottning
Vesturlands fékk hún titilinn
Orublustúlka Vesturlands og
netstúlka Skjávarps. Belinda
Engilbertsdóttir varð einnig
sigursæl og vann þrjá titla;
vinsælasta stúlkan,
ljósmyndafyrirsæta Vesturlands og
sportstúlka Vesturlands en sem
fyrr voru það stúlkurnar sjálfar
sem kusu þá vinsælustu í hópnum.
Þær Hafdís, Rut, Maren og
Belinda munu allar verða
þátttakendur í keppninni um
titilinn Ungfrú Island sem fram fer
á Hótel Islandi innan skamms.
Sjá allt um keppnina á bls 8 og 9
Samtök gegn
háspennuloftlínum
Þann 24.mars s.l. voru stofnuð í
Hvalfjarðarstrandarhreppi sam-
tökin „ Samtök gegn háspennu-
loftlínum í Hvalfirði „skamm-
stafað „HH samtökin“. Tilgangur
samtakanna er að vinna með
öllum tiltækum, löglegum ráðum
gegn því að lagðar verði fleiri
háspennuloftlínur um byggð í
Hvalfjarðarstrandarhreppi og að
þær loftlínur sem fyrir eru verði
lagðar í jörð svo fljótt sem við
verður komið.
Formaður FIH samtakanna er
Reynir Asgeirsson Svarfhóli en
aðrir í stjórn era Vifill Búason
Ferstiklu og Þorvaldur
Magnússon á Kalastöðum. Stjórn
félagsins hefur þegar átt fundi
með Guðna Agústssyni land-
búnaðarráðherra og Siv
Friðleifsdóttur umhverfisráð-
herra og kynnt þeim stöðu mála
varðandi væntanlega lagningu
Sultartangalínu 3 um Hval-
fjarðarstrandarhrepp og hug-
myndir og tillögur heima-
manna í þeim efnum. Þá er
fyrirhugaður fundur með stjórn
samtakanna og Valgerði Sverris-
dóttur orkumálaráðherra innan
skamms. Einnig hefur stjórnin í
hyggju að kalla til sérfræðinga til
að vega og meta þá valkosti sem
fyrir liggja.
GE
I síðustu viku var síðasta
kvöldið í undankeppni í
músíktilraunum Tónabæjar
haldið. Þar tóku þátt tvær
hljómsveitir úr Grundarfirði
x frábær ' • ÞorkéllMáni Þorkelsson, Aðalsteinn Valur Grétarsson, Gústav Alex Gústavsson, Óm
um arangri en Axel Björgvin Höskuldsson Mynd: Olga Einarsdóttir
önnur þeirra var valin
athyglisverðasta hljómsveitin og hin bjartasta vonin. Þessar sveitir heita Berrassaðir og INPUT
sem hefur á að skipa strákum úr 8. bekk Grunnskólans í Grundarfirði. Þess skal einnig getið að
Þorkell Máni Þorkelsson úr Berrössuðum var valinn besti hljómborðsleikarinn en hljómsveitin
spilar þungarokk með hljómborðs ívafi.
SIR
Berrassaðir í
Músík-
tilraunum