Skessuhorn - 11.04.2001, Blaðsíða 4
4
MIÐVIKUDAGUR 11. APRIL 2001
aoiisaunu^
WWW.SKESSUHORN.IS
Borgamesi: Borgarbraut 49 Sími: (Borgarnes og Akranes) 430 2210
Akranesi: Kirkjubraut 3 Fax: (Borgarnes) 430 2201
SKRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-16 ALLA VIRKA DAGA
Útgefandi:
Ritstjóri og ábm:
Blaðamenn:
Auglýsingar:
Prófarkalestur:
Umbrot:
Prentun:
Tíðindamenn ehf 430 2210
Gísli Einarsson 892 4098
Sigrún Kristjánsd., Akranesi 862 1310
Ingi Hans Jónss., Snæfellsn. 895 681 1
Hjörtur J. Hjartarson 864 3228
Ásthildur Magnúsdóttir
Guðrún Björk Friðriksdóttir
ísafoldarprentsmiðja hf
ritstjori@skessuhorn.is
sigrun@skessuhorn.is
ingihans@skessuhorn.is
hjortur@skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla fimmtudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl.
14:00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss
tímanlega.
Blaðiö er gefið út í 4.000 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 850 krónur með vsk. á mánuði en krónur 750 sé greitt með
greiðslukorti. Verð í lausasölu er 250 kr.
430 2210
Garð-
Gísli Einarsson,
ritstjóri.
Þótt ég hviki hvergi við lítils háttar áreiti og láti fátt raska
ró minni var ekki alveg laust við að ég fyndi fyrir vott af óróa
við morgunverðarborðið í fyrradag. Þegar ég ætlaði að
teygja mig í viðbitið rak ég höndina í meðalstóran túmat
sem hafði verið í skjóli á bak við kókópuffsið. Það er
kannski full vægt til orða tekið að mér hafi orðið órótt því
auðvitað varð ég alveg dauðskelkaður. Því hvaða heiðarleg-
ur maður vill láta góma sig með túmat á morgunverðar-
borðinu hjá sér eins og staðan er í dag.
Eg gerði mér strax grein fyrir að nú voru góð ráð dýr (ekki
síður en grænmetið á borðinu) og ekki um annað að ræða en
að bregðast skjótt við ef ekki átti illa að fara. Eg spratt því á
fætur og náði í borðtuskuna og þurrkaði fingraförin af
túmatnum og setti hann síðan með grilltönginni í glæran
plastpoka sem sönnunargagn A. Þegar þeirri aðgerð var lok-
ið var mér nokkuð létt og var bara heldur hróðugur yfir því
að hafa horft á ófáar ofbeldiskvikmyndir um raðmorðingja í
Bandaríkjahreppi.
Þegar þetta óvænta uppþot við morgunverðarborðið var
afstaðið var ekki um annað að ræða en snúa sér að verkefn-
um dagsins. I algjöru grandaleysi rölti ég mér út í garð,
saddur og sæll, og búinn undir að vinna stórkostleg þrek-
virki með mínum grænu fingrum. Dagsverkið átti að vera að
stinga upp kartöflugarðinn því ég fann það glöggt á gigtinni
í mjöðminni að það væri aftakablíða í aðsigi. Eg byrjaði á að
tína sarnan amboðin sem ég hafði kastað frá mér í bræði síð-
astliðið vor og hóf að yrkja jörðina. Fljótlega tók ég eftir því
að ekki var allt með felldu og þegar ég leit upp veitti ég því
athygli að fólk í nærliggjandi húsum var farið að fylgjast
með aðgerðum mínum tortryggið á svip. Þegar mér sýndist
einn þeirra bera sig að líkt og hann ætlaði að fara að hringja
á lögregluna varð mér ekki um sel svo ég forðaði mér aftur
inn í húsið.
Eg hefði svo sem mátt segja mér það sjálfur að nágrönn-
unum gæti þótt ég vera garðyrkjulegur þar sem ég stritaði
þarna í moldarbingnum. Það er því langt í frá að ég álasi
fólkinu þótt það hafi grunað mig um græsku.
Sjálfur fer ég mjög varlega í samskiptum mínum við fólk
þessa dagana því, eins og ég nefndi fyrr, getur leynst dulinn
garðyrkjubóndi í sakleysislegustu mönnum. Eg er sífellt á
varðbergi og ef ég sé tilsýndar mann með moldarbletti á
hnjánum tek ég samstundis til fótanna. Ef ég af einhverjum
ástæðum kemst ekki hjá því að vera í návígi við meinta garð-
yrkjubændur byrja ég undantekningalaust á því að ganga
einn hring í kringum þá og reyni að ganga úr skugga um að
þeir séu ekki vopnaðir.
Það er aldrei of varlega farið
Gísli Einarsson afbrotafrœðingur
Nýr golfskáli
Félagar í Golfklúbbnum Mostra
í Stykkishólmi hafa fengið nýjan
golfskála sem tekinn verður í notkun
í vor en fram til þessa hafa golfarar
í Hólminum haft til afnota eitt her-
bergi í Hótel Stykkishólmi. Húsið
var flutt í heilu lagi frá Akranesi í
vetur en þar hefur það um árabil
hýst tvær kennslustofur Fjölbrauta-
skóla Vesturlands á Akranesi.
Nýverið gerði Golfklúbburinn
samning við Stykkishólmsbæ um
að nýi golfskálinn verði nýttur fyr-
ir tjaldstæði bæjarins sem liggja að
golfvellinum og hafa gestir tjald-
stæðisins aðgang að snyrtingum í
skálanum.
GE
Þríggja ára áætlun Stykkishólmsbæiar
Lækka skuldir
um 90 milljónir
í dag verður þriggja ára fjárhags-
áætlun Stykkishólmsbæjar tekin til
annarrar umræðu. Að sögn Ola
Jóns Gunnarssonar bæjarstjóra er
gert ráð fýrir að lækka skuldir um
80 - 90 milljónir króna á tímabilinu
2002 - 2004. Segir hann það vera
ívið meira en áður var gert ráð fyr-
ir.
Sem kunnugt er eru tvo mikil
framkvæmdaár að baki hjá Stykkis-
hólmsbæ og munar þar mestu um
hitaveituframkvæmdir og byggingu
nýrrar sundlaugar. „Það verða ekki
framkvæmdir á næstu þremur árum
í stíl við það sem verið hefur að
undanförnu þótt aldrei verði kom-
ist hjá einhverjum framkvæmdum.
Við gerum ráð fyrir að verja um 25
milljónum á ári í framkvæmdir á
tímabilinu, meðal annars í tengsl-
um við unglingalandsmót UMFI
Oli Jón Gunnarsson bæjarstjóri Stykkis-
hólms.
næsta sumar. Áherslan verður á að
lækka skuldir og við reiknum með
að rétta okkur vel af á þessum
þremur árum,“ segir Oli Jón.
GE
Öm að
hætta
Örn Tryggvi Johnsen bæjar-
tæknifræðingur Snæfellsbæjar
hefur sagt starfi sínu lausu en
hann hefur starfað hjá sveitarfé-
laginu síðastliðin sjö ár. Örn
hefur verið ráðinn til starfa hjá
tölvufyrirtækinu Alit í Reykjavík
sem leigir út aðgang að vélbún-
aði og tæknifólki.
GE
Birgir Leifur
á stórmót
Birgir Leifur Hafþórsson
kylfingur hefur fengið þátttöku-
rétt á stærsta golfmóti ferils síns,
The Algarve Portugese Open,
sem er í evrópsku mótaröðinni.
Mótið fer fram á Quinta do
Lago vellinum dagana 26.-29.
apríl n.k. og verður sýnt í beinni
útsendingu á sjónvarpsstöðinni
Sky Sports.
(Affréttavefnum ia.is)
Borgfirð-
ingahátíð
Borgfirðingahátíð verður hald-
in í annað sinn í sumar, helgina
15.-17. júní. Iíátíðin er haldin af
sveitarfélögunum í Borgarfjarðar
og Mýrarsýslu en Tíðindamenn
ehf sjá um skipulagningu dag-
skrár. Þessa daga verður Ijölbreytt
dagskrá vítt og breitt um héraðið
en stærstur hluti hátíðahaldanna
verður í Borgamesi, á Hvanneyri
og í Reykholti. Meðal annars
verður fjölbreytt fjölskyldudag-
skrá með þjóðlegu ívafi á Hvann-
eyri á laugardag en á sunnudag
verða 17. júní hátíðahöld í Borg-
amesi og víðar um héraðið.
Vel gengur í Norðuráli
Framkvæmdir við stækkun Norð-
uráls úr 60 þústmd tonna ársfram-
leiðslu í 90 þúsund tonna ársfram-
leiðslu ganga mjög vel og em á áætl-
un samkvæmt upplýsingum Skessu-
horns. Milli 10 og 15 verktakar
starfa við stækkunina og á milli 170
og 190 starfsmenn. Byggð var ný
starfsmannaaðstaða sem tekin var í
notkun í október síðasdiðnum og ný
viðhaldsbygging sem tekin var í
notkun í byrjun þessa árs.
Fyrir rúmu ári síðan hófst stækk-
un kerskála og bygging kerfóðrun-
arbyggingar og er nú verið að legg ja
lokahönd á þau verkefni. Einnig
hefur verið unnið að breytingum og
endurbótum í skautsmiðju fyrirtæk-
isins. Frá áramótum hefur verið
unnið við uppsetningu súrálsflutn-
ingakerfis inni í kerskálunum,
stækkun þurrhreinsivirkis, kerfóðr-
un, uppsemingu rafleiðara og ýmis-
legt fleira sem tengist stækkunar-
framkvæmdum sem áætlað er að
ljúki í júní næstkomandi. Þá mun
gangseming kerja hefjast. SÓK