Skessuhorn - 19.04.2001, Blaðsíða 1
VIKUBLAÐ Á VESTURLANDI -16. tbl. 4. árg. 27. apríl 2001 Kr. 250 í lausasðlu
^Vslensk
Tölvur
uviðgerðir
Símar
ermingargjafir
^rnutofgi - 430 2200 - vefslun@islensk.is
Masters-
nám á
Hvanneyri
Fyrirhugað er að bjóða upp á
svokallað mastersnám við Land-
búnaðarháskólann á Hvanneyri
frá haustinu 2003. Mastersnám
er einstaklingsbundið fram-
haldsnám á háskólastigi en hing-
að til hafa nemendur í landbún-
aðarfræðum orðið að stunda
slíkt nám við erlenda háskóla.
Að sögn Magnúsar B. Jóns-
sonar rektors Landbúnaðarhá-
skólans hefur ekki verið tekin
endanleg ákvörðun um masters-
námið en hann segir menn vera
farna að ræða um það í fullri al-
vöru og allar líkur séu á að af því
verði.
GE
Skessuhom á nýjum stað
Skrifstofur Tíðindamanna í
Borgarnesi hafa verið fluttar í nýtt
og glæsilegt húsnæði að Borgar-
braut 23 þar sem Borgarness apó-
tek var áður til húsa. Þar verða að-
alskrifstofur Skessuhorns og einnig
fréttaþjónusta fyrir Ríkisútvarpið
og -sjónvarpið og útgáfuþjónusta
Tíðindamanna.
I hinu nýja húsnæði Skessuhorns
verður komið upp sérstöku hljóð-
veri fyrir Ríkisútvarpið sem skapar
fjölbreyttari möguleika í frétta-
flutningi og dagskrárgerð.
Við flutninginn hefur Skessu-
horn í Borgarnesi fengið nýtt síma-
númer: 431 5040, fax: 431 5041.
Símanúmer Skessuhorns á Akra-
nesi er hinsvegar óbreytt: 431
4222.
Starfsfólk Skessuhorns býður
lesendum blaðsins að líta við á nýju
skrifstofunni að Borgarbraut 23 en
umtalsverðar líkur eru á að heitt
verði á könnunni.
GE
Skrifitofa Skessuhoms að Borgarbraut
Fjármál Knattspymufélags IA:
Klippt á skuldahalann
Bjargráðanefndin, svokallaða,
sem skipuð var á síðasta ári til að
rétta við fjárhag knattspyrnufélgags
IA skilar væntanlega af sér í lok
þessa mánaðar. Að sögn Gísla
Gíslasonar bæjarstjóra á Akranesi,
eins nefhdarmannanna er félagið
orðið nánast skuldlaust eftir þær
aðgerðir sem átt hafa sér stað á síð-
ustu mánuðum. Eins og fram hefur
komið í Skessuhorni skuldaði
Knattspyrnufélag IA um 70 millj-
ónir í lok síðasta árs en að sögn
Gísla eru innan við tvær milljónir
eftir af skuldahalanum í dag og
vonir standa til að félagið standi á
núlli um næstu mánaðamót.
Stór hluti af kröfum lánadrottna
hefur fengist niðurfelldur og einnig
hefur félagið selt eignir til að greiða
niður skuldir. Meðal annars keypti
Akranesbær æfingasvæði félagsins
ásamt ýmsum lausafjármunum í
tengslum við vallarsvæðið á fimmt-
án milljónir og einnig seldi félagið
íbúð sem það átti á Akranesi. „Við-
tökur hafa verið góðar hjá þeim
sem við höfum þurft að leita til og
megnið af smærri kröfum hafa
fengist niðurfelldar með öllu og
aðrir hafa lækkað sínar kröfur veru-
lega. Þetta hefur því gengið bæði
hraðar og betur en við höfðum
vonast eftir og við erum þakklátir
fyrir viðbrögðin," segir Gísli. Hann
ítrekaði hinsvegar að rekstur félags-
ins yrði áffam í járnum þrátt fyrir
að skuldahalinn væri að hverfa.
Nýju rekstrarfélögin þrjú fara hins-
vegar vel af stað sýnist mér og gefa
ástæðu til bjartsýni en það er ljóst
að beita verður aðhaldi í rekstri og
menn fara ekki í stórfjárfestingar í
leikmönnum á næstunni. Við vitum
hinsvegar að við erum með gott lið
og gott baldand við getum náð ár-
angri þótt við sníðum okkur stakk
eftir vexti,“ segir Gísli.