Skessuhorn - 14.06.2001, Síða 1
VIKUBLAÐ Á VESTURLANDI - 24. tbl. 4. árg. 14. júní 2001 Kr. 250 í lausasölu
Tölvur
Tölvuviðgerðir
Skrifstofuvörur
Símtæki
Hymutorgi - 430 2200 - verstun@islensk.is
Kraftar í
kögglum
I lok sjómannadagssamkomunn-
ar á Hellissandi síðastliðinn
sunnudag reyndu menn kraíta sína
á steinatökum sem félagar í Lions-
klúbbi Nesþinga hafa nýverið
komið fyrir í Sjómannagarðinum.
Sambærilegir aflraunasteinar voru
fyrrum á svokölluðum Drymbum,
rétt innan við Keflavíkurvör á
Hellissandi. Um miðja síðustu öld
skolaði þeim f sjóinn í stórbrimi.
Lengi hefur verið rætt um að end-
urnýja steinatökin en í stað þess að
setja þá á gamla staðinn þótti vel
við hæfi að finna þeim stað í Sjó-
mannagarðinum. Tekið var mið af
aflraunasteinunum á Djúpalóns-
sandi þegar steinarnir voru valdir.
Þjmgstur er Fullsterkur, 154 kg, þá
Hálfsterkur, 100 kg, Hálfdrætting-
ur 54 kg. Og loks Amlóði, aðeins
23 kg.
A myndinni lyftir Valdiinar Teit-
ur Einarsson Hálfsterk á stall glað-
beittur á svip en þess má geta að
aðeins einn rnaður, Eyþór Sig-
marsson, hafði betur í baráttunni
við Fullsterk. Telja má víst að ung-
ir menn á Sandi noti tímann vel til
æfinga fram að næsta sjómanna-
degi. GE
Mynd: Sktili Alexandersson.
Hvað á Evrarsveit að heita?
Grundarfjarðarbær
fær flest atkvæði
Reyndu að spilla
Akraneshlaupinu
Skemmdarvargar stálu og breyttu vegvísum
Dagana 17. maí til 1. júní sl. var í-
búum Eyrarsveitar gefinn kostur á
að koma skoðun sinni á framfæri um
það hvort breyta skuli stjórnsýslu-
heiti sveitarfélagsins.
Það var sveitastjóm Eyrarsveitar
sem stóð fyrir könmininni og gaf í-
búurn tækifæri á að velja á milli 5
nafna, sem hún hafði tilnefnt, og
raða í sæti frá 1 til 5. Vom stigin síð-
an reiknuð út þannig að það nafn
sem valið var í fyrsta sæti fékk 5 stig,
4 stig vora gefin fyrir annað, 3 fyrir
þriðja o.s.frv. Urslitin urðu þau að
flest stig hlaut Grundarfjarðarbær
eða 713 og 123 atkvæði í 1. sæti. I
öðru sæti varð Sveitarfélagið
Grundarfjörður með 545 stig og 90
atkvæði í 1. sæti, þá Eyrarsveit með
340 stig og 68 atkvæði í 1. sæti og
síðan Grundarfjarðarbyggð með
159 stig og 35 atkvæði í 1. sæti.
Það vakti athygli að nafnið
Grundarfjörður varð í fimmta sæti
með 159 stig og 23 atkvæði í 1. sæti,
þrátt fyrir að tekið væri ffam á
valseðlum að nafnið kænii ekki til á-
lita. Hafði örnefnanefnd veit um-
sagnir um tillögur sveitarstjórnar og
hafnað nafninu þar sem það vísaði
ekki til sveitarfélagsins alls. Lökustu
viðtökur hlaut Grandarfjarðarkaup-
staður með 149 stig og 8 atkvæði í 1.
sæti. Eftirtalin sex nöfn fengu eitt
atkvæði hvert: Eyrarbær, Eyrarsveit
Grundarfirði, Grundarfjörður í
Eyrarsveit, Grafames, Eyrarbyggð
og Snæfellsbær. Sveitarstjórn vinnur
nú að því taka ákvörðun um ffam-
tíðarheiti Eyrarsveitar. smh
Eins og fram kemur á öðrum
stað í blaðinu fór Akraneshlaupið
fram síðastliðinn laugardag. Sá
leiðinlegi atburður átti sér stað að
nóttina fyrir hlaupið fóru einhverj-
ir óprúttnir náungar á stjá og
breyttu vegvísum sem komið hafði
verið fyrir við hlaupaleiðir auk þess
sem sumir voru teknir í burtu. Að-
standendur mótsins komu auga á
skemmdarverkin í tæka tíð en þeg-
ar kom að hlaupinu hafði einni
merkingu verið breytt á ný sem
varð til þess að þónokkrir hlauparar
hlupu ranga leið og töfðust þar af
leiðandi talsvert á leið sinni í mark.
Málið er litið alvarlegum augum og
hefur það þegar verið kært til lög-
reglu enda eru atriði eins og
brautarmerkingar eitt af því sem
hlauparar líta til þegar þeir dæma
gæði hlaups. A síðasta ári fékk
Akraneshlaupið einkunnina 8,6 á
hlaupasíðu Islands og lenti í 7. sæti
yfir þau hlaup sem ffam fóru á
árinu. Brautarmerkingar í hlaupinu
höfðu sitt að segja og fengu þær
einnig einkunnina 8,6. Leiðinda-
atvik sem þetta getur því haft áhrif
á orðstír hlaupsins og vilja aðstand-
endur þess biðja alla þá sem kunna
að hafa einhverjar upplýsingar um
málið að láta lögregluna á Akranesi
vita. SÓK
Oldungurá
ofsahraða
Um síðustu helgi stöðvaði
lögreglan í Borgarnesi ökumann
nokkurn fyrir of hraðan akstur.
Slíkt telst varla til tíðinda þar
sem tugir ökumanna með of
þungan bensínfót hafa lent í
„klóm“ Borgarneslögreglunnar í
hverri viku að undanförnu. Það
sem var hinsvegar sérstakt við
umrætt umferðarlagabrot var að
ökumaðurinn er kominn vel á tí-
ræðisaldur, fæddur 1909. Að
sögn lögreglunnar í Borgarnesi
var hinn hraðfara öldungur vel á
öðru hundraðinu þegar hann var
tekinn. Mun hann vera aldurs-
forseti þeirra sem teknir hafa
verið fyrir of hraðan akstur í
lögsagnarumdæmi Borgar-
neslögreglunnar. GE