Skessuhorn - 05.07.2001, Side 1
^NÍslensk
V 1 UPPLÝSINGAT-
kKN I
Tölvur
riðgerðir
ofuvörur
Símtæki
Hyrnutorgi ■ 430 2200 ■ verslun@i$len$k.i$
Stóriðiubraut í FVA?
A síðasta ári var mikið rætt um
það í Fjölbrautaskóla Vesturlands
að koma af stað svokallaðri stór-
iðjubraut. Málið datt hins vegar
upp fyrir í nokkurn tíma en nú hef-
ur þráðurinn verið tekinn upp að
nýju. Hörður O. Helgason, skóla-
meistari, segir að stjórnendur skól-
ans hafi þegar haldið nokkra fundi
með forsvarsmönnum Norðuráls
og Islenska járnblendifélagsins á
Grundartanga. „Við höfum verið
að ræða hugmyndir um að koma
hér upp stóriðjubraut fyrir nem-
endur auk þess sem skólinn myndi
sjá um endurmenntun fyrir þessi
stóriðjuver.“
Hörður segir ástæðuna fyrir töf-
um málsins vera verkfall fram-
haldsskólakennara. „Eins og svo
margt annað datt þetta niður þegar
verkfallið stóð yfir og var í biðstöðu
um tíma. Síðustu tvær annir voru
mjðg skrítnar og lítið svigrúm var
til þess að gera nteira en að halda
hlutunum gangandi.“
Eins og fram kemur að framan er
málið enn á umræðustigi en Hörð-
ur segir að stefnan sé að fara að ein-
hverju leyti af stað með brautina
um næstu áramót. „Ef vel gengur
verður farið af stað með hluta
hennar þá. Við erum að vona að
grundvöllur sé fyrir þessu enda
verður brautin í nánum tengslum
við málmiðnaðarbraut skólans eins
og hún er í dag því þetta verður
keyrt samhliða henni.“ SOK
Dalabyggð
Nýr sveitarstjóri
kominn til starfa
Stórmót smábæja
Eins og sagt var frá í síðasta
tölublaði Skessuhorns hefur Einar
Mathiesen sagt starfi sínu lausu
sem sveitarstjóri Dalabyggðar. Þá
stóð til að hann gegndi starfinu til
1. september en nú er hann hættur
og nýr sveitarstjóri tekinn til
starfa.
Nýráðinn sveitarstjóri Dala-
byggðar heitir Haraldur L. Har-
aldsson, einn af aðstandendum
ráðgjafafyrirtækisins Nýsis. Að-
spurður um ástæðuna fyrir skyndi-
legum sveitarstjóraskiptum sagði
Sigurður Rúnar Friðjónsson odd-
viti Dalabyggðar að það hefði orð-
ið að samkomulagi að hann hætti
fyrr. „Við erum ánægðir með að
hafa fengið mann með svona stutt-
um fyrirvara sem þekkir okkar mál
en við kunnum Einari bestu þakk-
ir fyrir vel unnin störf fyrir sveitar-
félagið og fyrirtæki á þess vegum,“
segir Sigurður Rúnar.
Ráðning Haraldar er til bráða-
birgða en á næsta fundi sveitar-
stjórnar verður tekin ákvörðun um
framhaldið. Haraldur var urn fimm
ára skeið bæjarstjóri á Isafirði og
hefur því mikla reynslu af störfum
fyrir sveitarfélög en einnig Eefur
hann unnið ýmis verkefni fyrir
sveitarfélög sem ráðgjafi, þar á
meðal fyrir Dalabyggð. Þá gegndi
hann starfi sveitarstjóra Dala-
byggðar um nokkurra mánaða
skeið í byrjun þessa kjörtímabils.
GE
Níu hundruð knattspyrnumenn af
yngri kynslóðinni spörkuðu í gríð og
erg í Borgarnesi um síðustu helgi á
Búnaðarbankamóti Skallagríms.
Mótið er ætlað yngri flokkum félaga
frá bæjarfélögum með 2000 íbúa eða
færri. Samt sem áður er mótið orðið
eitt af stærri yngri flokka mótum í
knattspyrnu.
Sjá bls. 14.
Þjóðgarð-
urinn
Snæfells-
jökull
Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull
var formlega opnaður um síð-
ustu helgi. Þjóðgarðurinn sem
nær frá Dagverðará í suðri að
Gufuskálum í norðri er fjórði
þjóðgarður Islendinga og sá
næst stærsti á eftir Skaftafelli.
Með opnun þjóðgarðsins á ut-
anverðu Snæfellsnesi er lang-
þráður draumur að rætast hjá
Snæfellingum en um þrjátíu ár
eru síðan fyrst var farið að ræða
um þjóðgarð á þessum slóðum.
Sjá nánar á bls. 6
MÁNUDAGA - FIMMTUDAGA
FÖSTUDAGA j
LAUGARDAGA lJ0>lj97
SUNNUDAGA ljZfyU^
mam