Skessuhorn - 05.07.2001, Blaðsíða 7
jnlasunu...
7
FIMMTUDAGUR 28. JUNI 2001
*
Affláru Jslands ogfæreyskmn dögum
Það er laugardagsmorgunn
og við hjónakornin ásamt dótt-
ur okkar erum að tygja okkur til
ferðar á færeyska daga í Olafs-
vík. Eg stóð alltaf í þeirri mein-
ingu að þetta ætti bara að vera
svona skotferð þar sem maður
tæki ekkert með sér nema vesk-
ið og gleraugun en það reyndist
hinn mesti misskilningur. Tán-
ingurinn dóttir vor ætlar nefni-
lega að keppa í jurtagreiningu á
landsmóti UMFI sem verður
haldið austanlands nú á næstu
dögum, og var nú heimasætan
búin að kjaftfylla aftursæti og
farangursrými bílsins af fræði-
ritum hverskonar viðvíkjandi
íslenskum jurtum, ásamt þrem-
ur höldupokum fullum af
blómum og grösum sem hún
hafði slitið upp víðs vegar um
landareignina undanfarna daga.
Hugðist hún nota ferðina vest-
ur og ferðina heim til að greina
jurtirnar í pokunum. Nú gerði
undirritaður árangurslausar til-
raunir til þess að fá heimasæt-
una ofan af því að taka allan
þennan jarðargróður með í
ferðina. Ekki vegna þess að ég
hefði neitt á móti því að heima-
sætan glöggvaði sig á jurtunum,
heldur var ég mótfallinn því að
taka pokana með vegna þess að
ég er með frjóofnæmi og þrír
pokar af arfa og súru eru ein-
faldlega tú möts svona í návígi.
Heimasætan harðneitaði að
skilja pokana eftir heima. Eg
spurði hana hvort hún gerði sér
grein fyrir því hvernig ég yrði
af ofnæminu efdr svona korters
ferðalag. „Þá skaltu bara snýta
þér“ svaraði hún. Eg fékk mér
tvær ofhæmistöflur áður en lagt
var af stað og gerði eina tilraun
enn til að agnúast út í pokana.
„Æ, góði skokkaðu á vegg“
sagði heimasætan, hún segir
mér nefnilega alltaf að skokka á
vegg þegar henni mislíkar við
mig.
Segir nú ekki af ferðalagi
okkar fyrr en komið er vestur
undir Vegamót. Var ég nú orð-
inn svangur og spurði þær
mæðgur hvort ekki væri ráð að
stoppa á Vegamótum og fá sér
eitthvað í svanginn. Konan
sagði að það færi að styttast til
Olafsvíkur, og þar svignuðu
borð undan færeyskum krásum.
Heimasætan bauð föður sínum
að éta uppúr pokanum sem hún
var búin að greina, ef það yrði
til að bjarga karli ffá því að
verða hungurmorða. Henni var
sagt að skokka á vegg.
Undirritaður hætti í bili að
hugsa um mat en fór að horfa á
landslagið í staðinn, enda fátt
fallegra en Snæfellsnesið í
björtu veðri. Og fyrr en varði
vorum við komin á færeyska
daga í Olafsvík. Olsarar eiga
medalíu skilið fyrir tiltækið.
Stemningin var frábær markað-
ur, leiktæki, íslensk og færeysk
skemmtiatriði á palli og fleira
og fleira. En nú var komið að
því að bragða á þjóðarréttum
frænda vorra Færeyinga. Knett-
ir og frikadellur þóttu eins og
heimasætan sagði, ókey, aftur
lék skerpiketið bragðlauka fjöl-
skyldunnar hræðilega. Og ofaní
kaupið sjóða þeir súpu af
skerpiketinu, nei svona gerir
maður ekki. Svo allt í einu er SS
pylsa með öllu nema hráum
orðin lífgjafi þriggja Borgfirð-
inga vestur við Breiðafjörð. En
það er ástæða til að taka ofan
fyrir Snæfellingum, færeyskir
dagar í Olafsvík, danskir dagar í
Stykkishólmi og kannski verða
grænlenskir dagar í Grundar-
firði, Rauðskinnadagar á Rifi
og norsk- sænsk- finnskir á
Hellisandi í framtíðinni, ég ætla
að mæta á þetta allt saman.
Bjartmar Hannesson
Húsnœdi óskast
íBorgarnesi
Húsnæði, helst 4ra herb. eða stærra, óskast
til leigu í Borgarnesi.
Vinsamlegast hafið samband við
Heilsugæslustöðina,
Guðrúnu Kristjánsdóttur, framkvæmdastjóra
í síma 437 1400 og 892 4900
Bókavörður
FJÖLBRAUTASKÓLI
VESTURLANDS Á AKRANESI
Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi auglýsir starf
bókavarðar við bókasafn skólans laust til umsóknar.
Bókavörður annast m.a. útlán og afgreiðslu, heimilda- og
upplýsingaleit, frágang aðfanga o.fl. Um er að ræða 100%
starf frá 20. ágúst n.k. Laun eru samkvæmt kjarasamningum
Starfmannafélags ríkisstofnana (SFR).
Hcefniskröfnr:
Góð þjónustulund og hcefni til mannlegra samskipta.
Góð almenn menntun og tölvukunnátta. Starfsreynsla
á bóka- eða skjalasöfnum er œskileg en ekki áskilin.
Nánari upplysingar um starfiö veitir skólameistari,
netfang: hhelga@ismennt.is
Umsóknarfrestur er til 18. júlí n.k.
Umsóknir skulu berast Herði Ó. Helgasyni skólameistara,
| Leynisbraut 26,300 Akranes.
Ekki þarfað nota sérstök umsóknareyðublöð.
Öllum umsóknum verður svarað.
Skólameistari
Upplýsingar um skólann má finna á heimasíðu hans www.fva.is
-fáttu' vftO' affér
Tökum að okkur útgáfu hvers konar
kynningarefnis
Bæklingar
Fréttabréf
Arsskýrslur
Bækur
iöld
Auglýsingagerð
Mynabandsupptökur
og margt margt fleira
Tíðiiulamenn:
II1111 ii O oj H lr 11 ö | 1111 jönusto