Skessuhorn - 19.07.2001, Page 8
I
FIMMTUDAGUR 19. JULI 2001
osliSSUIIU^
Leifshátíð á Eiríksstöðum
Leifshátíð var haldin á Eiríks- ætla má að hátt í þúsund manns hygli hátíðargesta.
hafi verið á svæðinu á laugardag.
Meðal þess sem boðið var upp á
var bardagasýning hins íslenska
víkingafélags,
Rimmugýgis og
Þá var boðið upp á ratleiki,
gönguferðir, veiði í Haukadals-
vatni, fjölbreytt tónlistaratriði ofl.
Víkingabúöir
Tilgátubarinn á Eiríksstöðum hefur haft mikið aðdráttarafl jýrir ferðamenn í suntar.
Myndir GE
Reykholtshátíð á fimm ára vígsluafinæli Reykholtskirkju
Femir tónleíkar og
hátíðarguðsþj ónusta
Reykholtshátíð verður haldin a
fimm ára vígsluafmæli Reykholts-
kirkju helgina 27.-29. júlí n.k. Urvals
tónlistarmenn, innlendir sem erlend-
ir, koma fram á fernum tónleikum frá
föstudegi til sunnudags. Hátíðar-
guðsþjónusta verður á sunnudegi kl.
14.00. Herra Sigurður Sigurðarson
vígslubiskup í Skálholti prédikar. A
hátíðinni verða flutt vel þekkt og sí-
gild verk meistara evrópskrar tón-
listarsögu: Beethoven, Schumann,
Fauré, Brahms, Liszt, Duparc,
Strauss, Sibelius Corelli og Debussy.
Tveir þekktir listamenn frá Þýska-
landi, sópransöngkonan Lisa Graf
og píanóleikarinn Peter Bortfeldt
verða sérstakir gestir hátíðarinnar í
ár. Einnig koma ffarn Asdís Valdi-
marsdóttir, víóluleikari, Bryndís
Halla Gylfadóttir, sellóleikari, Mich-
ael Stirling, sellóleikari, Richard
Simm, píanóleikari, Sif Tulinius,
fiðluleikari og Steinunn Bima Ragn-
arsdóttir, píanóleikari. Reykholtshá-
tíð er nú haldin í fimmta sinn. Hún
gegnir mikilvægu hlutverki í upp-
byggingu á Reykholtsstað. Góðar
viðtökur tónleikagesta og annarra
sem að hátíðinni koma em aðstand-
endum hennar því mikið gleðiefni.
Hátíðin hefur fest sig í sessi sem ár-
legur menningarviðburður í héraði,
sem marka má af mikilli og vaxandi
aðsókn á fyrri hátíðir og afar lofsam-
legum umsögnum fjölmiðla og tón-
listargagnrýnenda.
Velunnarar Reykholts og góðrar
tónlistar em boðnir velkomnir í
Reykholtskirkju helgina 27. til 29.
júlí n.k. til að njóta þess sem í boði
verður á Reykholtshátíð 2001
Á opnunartónleikum föstudaginn
27. júlí kl. 21: 00 verður flutt tónlist
eftir Beethoven, þ. á. m. "Gleraugna-
dúettinn" og píanótríó í c-moll op. 1
nr. 3.
Laugardaginn 28. júlí kl. 15:00
flytja sópransöngkonan Lisa Graf og
píanóleikarinn Peter Bortfeldt
sönglög eftir Schumann, Brahms,
Liszt, A kvöldtónleikum sama dag,
sem hefjast kl. 21:00, em á efnis-
skránni rómantísk verk, þ.á.m. hið
þekkta tríó op. 114 í a-moll eftir
Brahms, auk verka eftir Liszt, Sibeli-
us, Chopin o.fl. Hátíðarguðsþjónusta
hefst kl. 14:00 sunnudaginn 29. júlí
en hátíðinni lýkur með tónleikum,
sem hefjast kl. 16:00 þann dag. Flutt
verða m.a. La Folia eftir Corelli,
Petite Suite eftir Debussy og píanó-
kvartett nr.l op.15 í c -moll eftir
Gabriel Fauré.
Steinunn Bima Ragnarsdóttir, pí-
anóleikari, hefur frá upphafi verið
listrænn stjórnandi hátíðarinnar og
Heimskringla Reykholti ehf. annast
framkvæmd hennar á vegum Reyk-
holtskirkju. Ymsar upplýsingar um
Reykholt og hátíðina er að finna á
vefsíðunuin www.reykholt.is og
www.vortex.is/festival og hjá
Heimskringlu í síma 435 1490.
(Fréttatilkynning)
Þorsteinn kóngur í Steinaríkinu segir Róberti Amfinnssyni leikara frá því semfrrir
augu ber.
Síðastliðinn laugar-
dag var haldinn safna-
dagur á Akranesi þar
sem m.a. var kynnt hið
nýja og glæsilega
safnahús sem opnað
var fyrir skemmstu.
Til hægri: Gestir bera
saman bækur stnar í Hval-
fjarðargangasafninu.
Myndir: Sók