Skessuhorn - 19.07.2001, Blaðsíða 11
FIMMTUDAGUR 19. JULI 2001
11
^sáuhu.-
Grundarfj örður
Aðstaða hafnar-
vogar bætt
Hafsteimi Garðarsson, hafiiarvörðm; situr hér við hlið Hafimrvogarinnar, í baksýn sést í
bílskúrinn sem slökkviliðið notaðist við t áratugi.
Hafnarvogin í Grundarfirði hef-
ur nú verið endurbætt bæði að
utan og innan. Hefur meðal
annars verið skipt um glugga og
málað, en einnig hefur verið opn-
uð aðstaða til austur í átt að
bryggju, þar sem áður var rými
slökkviliðsins. Nú munu hafnar-
verðir hafa útsýni yfir höfnina, en
menn gantast með að vogin hafi
verið byggð á sínum tíma fremur
með áherslu á að útsýni væri gott
yfir til kaupfélagskvennanna á
móti. Þá hefur gamla slökkviliðs-
bílnum verið úthýst en eins og
kunnugt er hefur nýverið risið
glæsilegt húsnæði slökkviliðsins
við Borgarbraut og þar mun nýr
slökkviliðsbíll bætast við flotann.
Smh
Aflabrögð síðustu viku
vikan 7. júlí -15. júlí
Stykkishólmshöfii
Grettir 4.350 1 Botnv.
Fönix 1.009 1 Handf.
Guðrún 1.035 1 Handf.
Heppin 725 1 Handf.
Hrísey 1.131 2 Handf.
Lára 822 1 Handf.
Lilja 783 1 Handf.
Lidi vin 2.213 2 Handf.
Margrét 783 1 Handf.
Snót 2.364 2 Handf.
Teista 478 1 Handf.
Arnar 6.230 3Krabbag.
Garpur 1.310 lKrabbag.
Pegron 2.840 2Krabbag.
Röst 1.667 1 Net
Kristinn Fr. 17.976 1 Rækjuv.
Samtals 45.716
Amarstapahöfh
Bjössi 854 1 Lína
Doffi 1.015 4 Handf.
Draupnir 1.343 3 Handf.
Dritvík 1.313 3 Handf.
Fanney 3.796 2 Handf.
Gladdi 1.490 2 Handf.
Hvítá 2.336 1 Handf.
Jónas Guðm. 8.895 3 Net
Már 1.429 2 Handf.
Ríkey 89 1 Handf.
Salla 2.060 2 Handf.
Sigrún 2.602 1 Net
Skarfur 2.789 3 Handf.
Straumur II 1.110 3 Handf.
Sæfari 808 1 Handf.
Sælaug 427 1 Handf.
Tryggvijóns. 1.417 2 Handf.
Ver 3.185 2 Handf.
Samtals 36.958
Grundarfj arðarhöfh
Garpur 5.270 3Krabbag.
Grundfirð. 27.747 2 Net
Helgi 31.646 1 Botnv.
Hringur 121.298 1 Botov.
Ingimundur 65.749 1 Botnv.
Klakkur 163.268 1 Flotv.
Magnús í Fe. 2.377 2 Lína
Már 1.454 1 Lína
Pétur Konn 56 1 Lína
Röst 1.054 1 Net
Sigurbjörg Þ. 6.122 1 Rækjuv.
Sóley 48.620 1 Botnv..
Sæfari 1.137 2 Handf.
Valdimar 17.021 2 Rækjuv.
Samtals 492.819
Akraneshöfn
Sturl. H. Bö. 146.530 1 Botnv.
Helga María 288.356 1 Botnv.
Byr 96 1 Handf.
Fagurey 478 1 Handf.
Farsæll 272 1 Handf.
Gári 540 1 Handf.
Pétur 947 3 Handf.
Öggur 260 1 Handf.
Örnólfur 1.309 2 Handf.
Stapavík 10.561 1 Dragn.
Felix 526 1 Lína
Þura 717 3 Lína
Ingunn 1.930.248 1 Nót
Víkingur 2.710.262 2 Nót
Samtals 5.091.102
Rifshöfh
Rifsnes 17.208 1 Botnv..
Bára 3.170 2 Dragn.
Fúsi 8.676 1 Dragn.
Andri 0 2Gráslepp.
Andri 1.800 2 Handf.
Bjarni Sig. 2.833 2 Handf.
Hrönn 2.453 2 Handf.
KáriII 5.334 2 Handf.
Kristbjörg 2.068 1 Handf.
Leifur 2.853 2 Handf.
Ólöf Eva 4.281 2 Handf.
Rúna Pétus 695 1 Handf.
Sigurborg 2.633 2 Handf.
Stormur HF 4.278 2 Handf.
Sæhamar 2.188 1 Handf.
Bliki 1.835 2 Lína
Jóa 1.804 1 Lína
Kristinn ÞH 3.096 6 Net
Samtals 67.205
segir Keith Kent vallarstjóri á Old Trajford
Nýverið voru staddir á íslandi
tveir virtustu vallarstarfsmenn
Bredandseyja, þeir Keith Kent
vallarstjóri Old Trafford í
Manchester á Englandi og Eddie
Adams vallarstjóri á Old Course í
St. Andrews í Skodandi, sem mun
vera einn frægasti golfvöllur í
heimi. Kapparnir voru á Islandi á
vegum Samtaka íþrótta- og golf-
vallastarfsmanna á Islandi (SIGÍ).
Þeir Eddie og Keith tóku sér
ýmislegt fýrir hendur í Islands-
heimsókninni og litu meðal annars
við á Akranesi til þess að kynna sér
aðstæður til fótbolta- og golfiðk-
unar þar. Að sjálfsögðu var blíð-
skaparveður á Skaganum þegar
gestirnir komu og hófust þeir
handa við að líta á knattspyrnu-
völlinn sem vakti mikla hrifningu
enda í umsjá ekki ómerkari manns
en Aka Jónssonar. „Knattspyrnu-
völlum á Islandi er ekki eins vel
við haldið og í Bretlandi en þá er
ég ekki að gera lítdð úr vallarstjór-
unum á nokkurn hátt. Þeir vinna
ffábært starf og reyna af ffemsta
megni að kljást við þau erfiðu veð-
urskilyrði sem hér eru,“ sagði
Eddie í samtali við blaðamann
Skessuhorns. „Mikið hefur verið
spilað á þeim völlum sem ég hef
séð og Akranesvöllurinn er áber-
andi bestur af þeim. Hér er grasið
mjög þétt og það má kannski geta
þess að hér er mikið af grasi sem
við teljum til illgresis í Bretlandi.
Það virðist hins vegar þrífast mjög
vel hér.“ Keith segir að það muni
miklu að hafa stúku fyrir 68 þús-
und manns. „Stúkan á Akranesi
tekur um 600 manns en hjá okkur
nær hún allan hringinn þannig að
innan hennar skapast sérstakt
loftslag. Þar er skjól og sólin skín
ekki beint á völlinn nema örsjald-
an. Islenskir vallarstjórar eru mjög
viðkunnanlegir og hæfir menn og
vellimir þeirra endurspegla það.
Eg var mjög hrifinn af vellinum
ykkar hér.“
Lélegnr leikur
Fram og KR
Þeir Eddie og Keith sáu auk
Akranesvallar, Arbæjarvöll, KR-
völlinn í Frostaskjóli og Laugar-
dalsvöll. Þeir fylgdust með leik KR
og Fram og þótti Keith ekki mikið
til hans koma enda álit flestra að
leikurinn hafi verið með þeim verri
á tímabilinu. „Andrúmsloftið var
mjög undarlegt og öðmvísi. Það
var svo afslappað þótt áhorfendur
hefðu verið vel með á nótunum.
Konan mín og ég sátum þama á-
samt um 2000 öðmm en það er
mjög fátt miðað við þá 68 þúsund
áhorfendur sem maður er vanur að
sjá á Old Trafford! Þetta var fín til-
breyting og það var upplifun út af
fyrir sig að sólin skein í augun á
manni klukkan tíu að kvöldi.“
Spilaði golf í
fyrsta skipti
Keith og Eddie héldu á Garða-
völl af Akranesvelli og þar léku þeir
nokkrar golfholur auk þess sem
þeir snæddu hádegisverð í klúbb-
húsi Leynis. Þetta var í fýrsta skipti
sem Keith mundaði golfkylfu en
Eddie var öllum hnútum kunnugur
og leist honum vel á aðstæður.
Heimsókninni lauk á Byggðasafn-
inu þar sem boðið var upp á hákarl
og harðfisk. SÓK
Miklum endurbótum á Hlöðum lokið
Sælureitur í sumarleyfisparadís
Síðastliðin tvö ár hafa staðið yfir
miklar framkvæmdir við félags-
heimilið Hlaðir á Hvalfjarðar-
strönd. Hlaðir em í eigu Hvalfjarð-
arstrandarhrepps sem hefur lagt
mikið undir til að koma húsinu í
gott horf en að sögn Búa Vífilsson-
ar formanns húsnefhdar fóm tæp
mtmgu prósent af tekjum hrepps-
ins á síðasta ári í endurbætur húss-
ins.
Félagsheimilið hefur verið málað
að innan og utan og ýmsar fleirí
endurbæmr gerðar, m.a. hvað varð-
ar brunavamir og öryggismál. Um-
hverfi félagsheimilisins hefur
einnig verið stórlega lagfært og út-
búið rúmgott tjaldsvæði. Þá vom
einnig gerðar ýmsar endurbæmr á
sundlauginni og umhverfi hennar
og til að allar öryggskröfur væm
uppfýlltar fóru allir sundlaugar-
verðir á námskeið og hafa hlotið til-
skilin réttindi.
Fyrir rúmum áratug var Hlaðir
eitt vinsælasta danshús Vesturlands
þegar sumarböllin vom og hém en
eftir að þau liðu undir lok hafa á-
herslurnar breyst og nú er fyrst og
fremst verið að stíla inn á að leigja
félagsheimilið út til hópa fyrir ættt-
armót, árshátíðir og hverskonar
mannfagnaði. Þá er sundlaugin
opin alla daga yfir sumarið og fara
vinsældir hennar ört vaxandi að
sögn Búa.