Skessuhorn - 19.07.2001, Blaðsíða 13
KKÍUsunu^
FIMMTUDAGUR 19. JULI 2001
13
Myndlista-
sýningar á
Svörtuloftum
S. Fjóla Jónsdóttir opnaði nýver-
ið myndlistarsýningu á veitinga-
húsinu Svörtuloftum á Hellissandi.
Þar sýnir hún olíumyndir sínar sem
flestar eru konumyndir af ein-
hverju tagi. Býr Fjóla á Spáni á vet-
urna ásamt manni sínum en |)au
koma á sumrum til Islands og róa
til fiskjar á Hellissandi, en Fjóla er
ættuð þaðan.
Þá stendur ennþá yfir á Svörtu-
loftum sýning Bjarna Jónssonar á
ýmsum gömlum sígildum stemm-
um úr íslenskum veruleika. Hann
sýnir þar olíu- og pastelmyndir, en
hann er m.a. kunnur lyrir að hafa
myndskreytt ritverk Lúðvíks Krist-
jánssonar um íslenska sjávarhætti.
smh
NýOA
deild á
Akranesi
Ný deild OA samtakanna verður
stofnuð á Akranesi miðvikudaginn
25. júlí kl 20 i húsnæði Fjölbrauta-
skólans. OA samtökin byggja á 12
spora kerfi AA samtakanna og
byggja á sömu hugmyndafræði.
Allir sem löngun hafa til að hætta
ofáti eru boðnir velkomnir. Nánari
upplýsingar er að finna á vef sam-
takanna www.oa.is.
Leiðrétting
I umfjöllun um Fjórðungsmót
hestamanna á Kaldármelum í síð-
asta blaði var rangt farið með nafn
eins verðlaunahafanna, Björns
Hauks Einarssonar en í greininni
var hann sagður Ingvason. Þá var
því einnig ranglega haldið fram að
Kaldánnelar væru í Víðidal. Sú
villa hafði slæðst inn í mótskrána
og rataði þaðan á síður blaðsins.
Biðjum við hlutaðeigandi velvirð-
ingar á ofangreindum mistökum.
Fj ölskyldudagur
22. júlí
Að frutnkvæði Félags skógar-
bænda á Vesturlandi hefur komið
fram sú hugmynd að standa fyrir
sameigilegri uppákomu með skóg-
ræktarfélögunum á svæðinu.
Hefur nú félagið, í samvinnu við
Skógræktarfélag Borgarfjarðar á-
kveðið að bjóða til Fjölskyldu- og
skógardags sunnudaginn 22. júlí.
Hugmyndir eru um að standa fyrir
svipaðri uppákomu að ári og þá í
samvinnu við eitthvert annað skóg-
ræktarfélag á V'esturlandi. Að þessu
sinni á að heimsækja hjónin í Efri-
Hrepp í Skorradal, Gyðu Berg-
þórssdóttur og Guðmund Þor-
steinsson formann Skógræktar-
félags Borgaríjarðar.
Dagskráin verður nreð þeim
hætti að kl. 14:00 verður safhast
saman á bílastæði ofan við Efri-
Hrepp. Gengið verður um Stalla-
skóg og Landgræðsluskógasvæði
Skógræktarf. Borgarfj. undir leið-
sögn þeirra hjóna. Gangan er við
allra hæfi. Um 1 1/2 klst.
Að því loknu verður farið að
bænum Efri-Hrepp og skoðuð
heimaræktun þar sem ýmislegt er
að sjá og bornar frarn veitingar í
boði Skógræktarfélagsins og Félags
skógarbænda.
Það er von okkar að sem flestir
sjái sér fært að mæta og eiga góða
stund saman.
(Fréttatilkynning)
Atvinna óskast
Eg er 23 ára gömul stúlka og mig
vantar vinnu í vetur. Er með stúd-
entspróf og mjög góð meðmæli.
Flest kemur til greina. Upplýsingar
gefur Ólöf Björg í síma 690 0836
Starfskrafitur í boði
22 ára dönsk stúlka með mikinn á-
huga á hestum óskar eftir vinnu í
sveit. Upplýsingar í síma 434 1350,
Helga
amaig
Pista vespa og Suzuki TS
Pista vespa, 50 kúbik og Suzuki TS
til sölu. Þarfhast viðgerðar. Selst
saman eða í sitt hvoru lagi. Upplýs-
ingar í síma 431 3214 eða 848 4954
Odýr Ford Escort
Til sölu Ford Escort árg. '87 góður
bíll. Verð aðeins 3 5 þús staðgreitt.
Upplýsingar í síma 431 3169 og 696
9542
Nissan king cab
Til sölu Nissan king cab, árg. '94
Upplýsingar í síma 893 9366
Vel tamin Mazda fæst fyrir lítið
HvítMazda 626, GLX, árgerð '88,
5 dyra hlaðbakur, rafm. í rúðum,
topplúga, dráttarkr., nýir demparar
og sumardekk. Lakkið er þreytt en
vélin í fínu lagi. Ekinn 215 þúsund.
Sldpti á smábíl eða bein sala. Upp-
lýsingar síma 864 1865
MMC Lancer
Tilboð óskast í MMC Lancer,
station, árgerð 1989. Keyrður ca
200 þús. km. Upplýsingar í síma
847 0859
Spameytinn Fiat Uno 45s.
Til sölu er Fiat Uno 45s árgerð
1991 ekinn 84.000 km. Ný kúpling,
púst og fl. Upplýsingar í síma 694
8797 og 437 1587, Kolla
Varahlutir óskast!
Við óskum eftir varahlutum í Kawa-
saki 440 vélsleða fyrir lítin eða eng-
an pening. Hringið í síma 691 8506
eða 437 0074, Guðmundur og Aðal-
heiður
DYRAHALD
Gefins kettlingar
Við erum grá- og gulbröndóttir
kettlingar og okkur bráðvantar ein-
hvern til að kela við. Upplýsingar í
síma 435 1530
Hryssa týndist!
Hryssan er rauðglófext með stjörnu
og sást við Fossatún 27. júlí sl. Hún
er á járnum, frostmerkt undir faxi
og var með bláan stallmúl. Upplýs-
ingar gefur Flóki Kristinsson,
Hvanneyri í síma 437 0160
Fjárhundsefhi til sölu
Border collie hvolpur (tík) til sölu.
Faðir Vaskur, Dalsmynni, móðir
Kátína Dalsmynni. Leiðsögn við
tamningu eða frumtamning getur
fylgt. Upplýsingar í síma 435 6657,
Svanur
Hvolp vantar heimili!
Til sölu 9 vikna svartur
Labrador/Dalmatíu blendingur á
gott heimili, honum fylgir allt sem
hann nauðsynlega þarf s.s. ól, dallur,
matur og fl. Upplýsingar í síma 699
4525
Fimm hvolpar gefins
Hef gefins fimm Scheffer hvolpa, 3
kvk. og 2 kk. Upplýsingar í síma
431 3322 eða á Leynisbraut 1,
Akranesi, Beggi og Eva
FYRIR BORN
Bamavagn til sölu
Til sölu Restmor barnavagn, ljós-
grár, hlýlegur og góður vagn. Ath.
ekki kerruvagn. Upplýsingar í síma
451 1120, Ellý
Bamavagn til sölu
Til sölu 4ra ára garnall, vel með far-
inn, Bébécar barnavagn, hægt að
breyta í kerru. Verð u.þ.b. 24.000
kr. Uppl. í síma 898 6737 og 892
2950
HUSBUNAÐUR/HEIMILIST.
Hillusamstæða og fl.
Til sölu er hillusamstæða (dökk-
brún), sófaborð, hornborð, leðurlík-
ishornsófi og fl. Upplýsingar í síma:
897 5051 og 437 1850
Óska eftir íbúð á Akranesi
Feðgin vantar íbúð til leigu á Akra-
nesi um mánaðamótin júlí-ágúst.
Upplýsingar í síma 431 1028
Ibúð á Akranesi
Þriggja herbergja íbúð á Akranesi til
leigu frá 15. júlí. Nánari upplýsing-
ar era gefhar í síma 897 1791
Borgames eða nágrenni
Par með 2 börn bráðvantar 4ra her-
bergja íbúð í Borgarnesi eða ná-
grenni. Skilvísum greiðslum heitið.
Upplýsingar í síma 437 2363 eða
865 4203
Vantar íbúð frá 1. ágúst
Við erum ung hjón með lítið barn
og óskum eftir íbúð frá og með 1. á-
gúst, helst í Stykkishólmi (hvar sem
er kemur til greina). Reglusöm,
reyklaus og heitum skilvísum
greiðslum. Upplýsingar gefur Hild-
ur í síma 561 6610
OSKAST KEYPT
Bátur-skekta
Er að leita efrir (helst) plastbát til að
danglast á sjó í góðu veðri. Ekki
minni en 15 fet. Allir möguleikar
skoðaðir. Ekki hika við að hafa sam-
band. Upplýsingar gefur Pétur í
síma 820 6428
Tjald
Óska eftir að kaupa vel með farinn
himin með fortjaldi á 5 manna
Seglagerðartjald. Upplýsingar í síma
437 1483 eftír kl. 17.00, Kristín
Óska eftir að kaupa sumarbústað
Óska eftír að kaupa 40-50 ferm.
sumarbústað á Arnarstapa eða ná-
grenni. Upplýsingar gefa Friðrik í
síma 431 1428 eða Sigmundur í síma
431 2868
Óska efirir PC tölvu
Eg óska eftir ódýrri PC-tölvu eða
gefins. Upplýsingar fást í síma 894
5498
Rúllugreip óskast
Óska efrir rúllugreip í góðu standi
fyrir ALÖ Quick 640 ámoksturstæki.
Hafið samband við mig í símum 434
1537, 899 7237 eða í tölvupósti á
gudjont@aknet.is
TIL SOLU
Maxi Cosi ungbamabílstóll
Til sölu Maxi Cosi ungbarnabílstóll
(0-10 kíló). Verð 3.000 kr. Upplýs-
ingar í síma 864 3220
Tónlist
Óska eftir tilboði í hljómplötu með
hljómsveitinni Icecross. Frumút-
gáfa. Upplýsingar í síma 453 6680
og 847 9170 einnig hægt að senda
e-rnail á valli@binet.is. Ath.aðeins
örfáar plötur voru gefhar út og þessi
er vel með farin
Bý til gestabækur
Bý til gestabækur t,d, í sumarbú-
staði, fyrir félög og fleiri. Sendið
mynd og stærð. Upplýsingar gefur
Finnur Einarsson, Ánahlíð 2, 310
Borgarnesi, sími 437 1326. Á sama
stað er til sölu allskonar prjónavörar
svo sem rósavettlingar, tátiljur og
fleira, Elín
Sláttuþyrla til sölu
Famarol 165 (pólsk Fahr) sláttuþyrla
til sölu. Góð vél, gott verð. Á sama
stað Fahr 185 með knosara. Þarfnast
viðgerðar. Upplýsingar s. 435 6657
Maðkar til sölu
Silunga- og laxamaðkar tíl sölu.
Upplýsingar í símum 431 2974 eða
698 3618
Stafiræn videoupptökuvél
Sony vx 1000 hágæða stafræn video-
upptökuvél til sölu, mjög lítið
notuð, sem ný. Selst á 160.000,
kostaði ný 260.000. Upplýsingar í
síma 821 3560
ÝMISLEGT
Ýmislegt
Landbúnaðartæki
Gömul dragtengd múgavél fæst gef-
ins gegn því að vera sótt. Einnig er
til sölu gömul tætla á 5.000 og göm-
ul Lister ljósavél verðtilboð. Upplýs-
ingar í síma 451 1120, Eiríkur
Vantar ferðafélaga
Vantar ferðafélaga. Einhvern í vinnu
á Akureyri. Upplýsingar gefur Gerða
40 ára í síma 863 4980
Snæfellsnes: Fimmtudaginn 19. júlí
Sumartónleikar í Stykkishólmskirkju kl. 20:30.
Dúett Plús jazzkvartett skipaður fjórum ungum tónlistarmönnum.
Það eru þau: Þóra Gréta Þórisdóttir söngur, Andrés Þór Gunnlaugs-
son gítar, Þorgrímur Jónsson kontrabassi og Birgir Baldursson
trommur. Þessum megið þið ekki missa af.
Borgarfjöröur: Laugardaginn 21. júlí
Skarðsheiði. Dagsferð á vegum Ferðafélags Islands, brottför frá BSI
Reykjavík kl. 8:00. Nánari upplýsingar hjá FI s. 568 2533 eða hjá
UKVs. 437 2214.
Borgarjjörður: Summdaginn 22.júlí
Ganga á vegum Utivistar á Hafnarfjalli.
Fjallasyrpan 6. ferð:Hafharfjall. Brottför frá BSI kl. 9:00. Nánari upp-
lýsingar hjá Útivist s. 561 4330 eða UKV s. 437 2214.
Borgarfjörður: Sunnudaginn 22. júlí
Ganga á vegum Útivistar í Straumfirði.
Straumfjörður á Mýrum. Rölt um ströndina á stórstraumsfjöru á
slóðum Straumfjarðar-Höllu. Brottför frá BSI kl. 9:00. Nánari upp-
lýsingar hjá Útivist s. 561 4330 eða hjá UKV s. 437 2214.
Borgarfjörðtir: Fimmtudaginn 26. ji'dí
Kvöldganga UMSB kl. 20.00 um Borgarfjörð.
Fimmta kvöldganga UMSB. Fróðleg og skemmtileg ganga í fallegu
umhverfi. Leiðsögumaður verður með í för. Gangan er fyrir alla og
tekur um tvo tíma.
Snæfellsnes: Fimmtudaginn 26. júlí
Sumartónleikar í Stykkishólmskirkju kl. 20:30.
Þór Breiðfjörð söngvari flytur lög úr söngleikjum, Þór starfar við
söng í London og er Hólmari. Undirleikari á píanó er Ingibjörg Þor-
steinsdóttir skólastjóri Tónlistarskólans í Stykkishólmi.
Borgarbrciut 55
Borgamesi
s. 4371930
Efnalaug
ÞOoUahús
t>?oum og hreinsum:
S«ngur - kodcla -
sOefnpoka - mottnr -
gardínur - dúka -
heimilisþOottinn og
spariföttn
Fljót oggóö þjónusta