Skessuhorn - 19.07.2001, Qupperneq 15
§SÍSStíII©2N
FIMMTUDAGUR 19. JULI 2001
15
Það er
spuming???
Fybistþú með
ípróttum?
Halldór ÓIi Gunnarsson:
- Já tfieð fótbolta og kötfubolta.
Egfer á vóllinn og held með IA
og Skalltlgrími.
Þorvaldur Bjarki Blængsson:
- Já, égjylgist með Skallagrími í
körfttholta. bæði í sjónvarpi og á
vellinmn.
Guðrún Fjeldsted:
- Egjylgist sérstaklega með
hestaíþróttum, en líka með
fótboltanum og kórfuboltanum.
Helga Halldórsdóttir:
- Já égfylgist með íþróttirm í
sjónvarpi og útvarpi, og þá körfu.
fótbolta, fijálsnm. sitndi.
badmintoni ogforvndumú.
Þorsteinn Gunnlaugur
Erlendsson:
- Egfer á völlinn áfótbolta- og
körfuknattleiki.
Ólöf Geirsdóttir:
- Já, égfylgist með frjálsttm og
kötftbolta í sjónvarpinu.
ÍÞRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR
Skagamenn í annað sætið á ný Þrjú stig í þrautleiðinlegum leik Fimleikafélag Hafnarfjarðar - íþróttabandalag Akraness: 1- 0
Leikur Skagamanna og FHinga í Kaplakrika síðastliðið sunnudags- kvöld var einhver sá leiðinlegasti í úrvalsdeildinni í sumar. Leikurinn byrjaði samt sem áður vel og gaf fögur fyrirheit en strax á annarri mínútu áttu Skagamenn ágæta sókn þar sem Ellert Bjömsson brunaði upp hægri kantinn og sendi fyrir á Kára Stein sem náði ekki til boltans. Ellert var aftur á ferðinni tveimur mfnútum síðar með góða sendingu fyrir markið og þar var Hjörtur Hjartarson sem svo oft áður réttur maður á réttum stað og skoraði af öryggi. Þetta var ní- unda mark Hjartar í deildinni í sum-
ar og trónir hann á toppi marka-
skoraralistans en næsti maður er
með fimm mörk.
Eftir markið var fátt sem gladdi
augað í fyrri hálfleiknum. Hvorugt
liðið náði að byggja upp spil og
sóknartilraunir voru fumkenndar
og segja má að önnur hver send-
ing, að minnsta kosti, hafi mis-
Ellert Björnsson í einum af sínum ágætu sprettum á hægri kantinum
heppnast. Ellert komst tvívegis í á-
gætt skotfæri með stuttu millibili en
í bæði skiptin kaus hann að reyna
að finna Hjört sem var vel valdað-
ur og sendingin átti ekki mikinn
möguleika á að ná til boltans. Það
má reyndar segja það um fleiri
miðjumenn Skagans að þeir voru
Skallarnir á sigurbraut
Eftir brösótt gengi í fyrri hluta
móts virðast Skallagrímsmenn
vera að rétta úr kútnum í 2. deild-
inni. Á föstudaginn sl. komu Sel-
fyssingar í heimsókn með 15 stig í
farteskinu eða sjö stigum fleiri en
Skallarnir. Var þetta fyrsti leikur-
inn ( seinni umferð mótsins en í
Valdimar Sigurðsson, spilandi þjálfari
Skallagríms, skoraði bæði mörkin í
góðum sigri á Selfyssingum.
fyrri umferðinni í innbyrðisviður-
eigninni höfðu Selfyssingar sigr-
að 2-0. Náðu Skallarnir nú að
koma fram hefndum og sigruðu
sanngjarnt, 2:1.
Léku heimamenn gegn strekk-
ingsgjólu í fyrri hálfleik og léku á-
gætan varnarleik. Höfðu Selfyss-
ingar undirtökin í hálfleiknum en
Skallagrímsmenn sköpuðu sér þó
nokkur færi með skyndisóknum.
Um miðjan fyrri hálfleik myndaðist
glufa í varnarmúr Skallanna og
miðjumaður Selfyssinga náði að
stinga sér á milli leikmanna
heimaliðsins. Afgreiddi hann
góða sendingu innfyrir vörnina á
snyrtilegan hátt fram hjá Birni
markverði.
í síðari hálfleik náðu Skalla-
grímsmenn fljótlega góðum tökum
á leiknum og náðu að jafna fljót-
lega í byrjun hálfleiksins. Tók þá
Valdimar Sigurðsson hornspyrnu
frá hægri, með vinstri, og hugðist
snúa honum inn að marki Selfyss-
inga. Það tókst með slíkum ágæt-
um að knötturinn snérist með vind-
inum og uppundir þverslá í fjær-
hornið. Stuttu síðar átti Sigurður
Már Harðarson hörkuskot sem
hafnaði í þverslá og fór þaðan nið-
ur í jörðina. Vildu margir meina að
boltinn hefði klárlega farið inn fyrir
línuna en dómarar voru því ekki
sammála. Sigurmarkið kom síðan
nokkru seinna þegar Hilmar Há-
konarson braust upp vinsti kant-
inn, náði ágætu skoti á markið
sem markvörðurinn náði ekki að
verja betur en svo að frákastið datt
beint fyrir fætur Valdimars sem
skoraði af öryggi. Var þetta góður
sigur Skallagrímsmanna og lyfti
þeim upp í miðja deild. Næsti leik-
ur þeirra verður í kvöld á Varmár-
velli gegn Aftureldingu.
smh
Þriðji sigur Bruna í röð
Bruni tók á móti Fjölni í þriðju
deildinni á mánudagskvöldið. Fyr-
ir leikinn var Fjölnir í öðru sæti rið-
ilsins en Bruni í því þriðja, stigi á
eftir Fjölni. Með sigri gat Bruni því
komist í annað sætið. Bruna-
menn byrjuðu leikinn af krafti og
komust í 1-0 snemma í ieiknum
og var þar að verki Sigurjón
Jónsson. Nokkrum mínútum síð-
ar var brotið á Sveinbirni
Hlöðverssyni innan teigs og víta-
spyrna því dæmd. Sveinbjörn tók
spyrnuna sjálfur en hafði ekki
heppnina með sér og brenndi af.
Sveinbjörn átti þó eftir að þæta
fyrir þessi mistök. í upphafi síðari
hálfleiks kom Sveinbjörn Bruna í
2-0 og staðan orðin vænleg fyrir
Bruna. Slæmur tíu mínútna kafli
hjá Bruna um miðjan hálfleikinn
hleypti Fjölnismönnum inní leik-
inn og á þessum kafla skoruðu
þeir tvö mörk og staðan skyndi-
lega orðin jöfn. Leikurinn var í
járnum allt til enda en svo fór á
endanum að margumræddur
Sveinbjörn skoraði sigurmarkið
þremur mínútum fyrir leikslok.
Lokatölur 3-2, Bruna í vil. Við
þennan sigur skaust Bruni í ann-
að sætið, tveimur stigum á undan
Fjölni. Næsti leikur Bruna er gegn
toppliöi HK á þriðjudaginn í
Kópavogi.
HJH
of bundinr af því að leita að Hirti í
sókninni, og gott ef þeir reyndu að
hringja í gemsann hjá honum áður
en þeir reyndu skot upp á eigin
spýtur. Vissulega hefur Hjörtur
sýnt svo um munar að hann er
vandanum vaxinn í framlínunni en
engu að síður er nauðsynlegt að
brjóta sóknarleikinn aðeins upp því
eins og gefur að skilja er Hjörtur
gjarnan í strangri gæslu.
FH-ingar fengu kjörið tækifæri
til að jafna á átjándu mínútu þeg-
ar fremur slakur dómari leiksins,
Erlendur Eiríksson, dæmdi væg-
ast sagt umdeilda vítaspyrnu. Það
kom ekki að sök því Ólafur Þór
Gunnarsson gerði sér lítið fyrir og
varði og sjálfsagt eru ekki mörg
dæmi um að markmaður í efstu
deild hafi varið þrjár vítaspyrnur í
röð.
Síðari hálfleikur var lítið betri en
sá fyrri. Lítið var um færi en hark-
an var umtalsverð. FH-ingar
komust oft og tíðum upp með ó-
þarfa brot og á köflum var um hálf-
gerð slagsmál að ræða. Sá þáttur
náði hámarki þegar Hörður Magn-
ússon varamaður FH-inga sló til
Hjálms Dórs Hjálmssonar á
lokamínútunum. Besta færi síðari
hálfleiksins átti Baldur Aðalsteins-
son þegar hann skallaði í þver-
slána þegar þrjár mínútur voru eft-
ir af leiknum.
Skagamenn voru í heild sterkari
aðilinn í leiknum og áttu sigurinn
skilinn þótt þeir hafi sýnt skemmti-
legri tilþrif í flestum öðrum leikjum
sínum í sumar. Fremstir meðal
jafningja voru varnarjaxlinn Gunn-
laugur Jónsson sem hefur án efa
verið einn allra besti leikmaður
deildarinnar það sem af er og Ó-
lafur markmaður sem eflist við
hverja raun og er öryggið uppmál-
að á milli stanganna. Nýliðarnir
tveir, þeir Ellert og Hjálmur Dór
stóðu báðir vel fyrir sínu og þeir
eiga vafalítið eftir að eflast enn
frekar með aukinni leikreynslu.
Þrátt fyrir að leikurinn í
Kaplakrika hafi ekki verið bráð-
skemmtilegur, eins og fyrr segir,
skilaði hann þremur dýrmætum
stigum í pottinn fyrir Skagamenn
sem með sigrinum tilltu sér ( ann-
að sæti deildarinnar. Með
frammistöðu sinni í fyrri hluta
mótsins verðskulda þeir svo
sannarlega að vera í toppbarátt-
unni og verður fróðlegt að fylgj-
ast með framhaldinu. GE
Molar
Skagamenn mæta Fram á Laugar-
dalsvellinum í 16 liða úrslitum bikar-
keppni KSÍ á sunnudaginn. Skaga-
menn eiga harma að hefna en ÍA er
eina liðið sem hefur tapað fyrir Fram
í deildinni á þessu tímabili. Síðast
mættust þessi lið í bikarnum 1996,
einmitt í 16 liða úrslitum. Þann leik
sigruðu Skagamenn örugglega 3-0
og urðu svo bikarmeistarar um
haustið með sigrí á ÍBV í úrslitaleik
eins og stuðningsmönnum ÍA ætti að
vera í fersku minni.
í leik FH og ÍA á sunnudaginn mátti
oft ekki miklu muna að uppúr syði á
meðal leikmanna. Leikurínn var harð-
ur og mikið um pústra. Flestir eru
sammála um að þetta sé bara hluti af
leiknum og oft prýðisskemmtun fyrir
áhorfendurað sjá leikmenn með mik-
ið keppnisskap. Hörður Magnússon,
leikmaður FH, sýndi þó sjálfum sér,
FH-liðinu og andstæðingum sínum
mikla óvirðingu eftir að leiknum var
lokið. Einn leikmaður ÍA ætlaði að
þakka Herði fyrir leikinn, eins og jafn-
an er gert þegar lelkmenn ganga útaf
vellinum í leikslok, þegar Hörður
gerði nokkuð sem enginn hefði getað
átt von á. í þann mund sem leikmað-
ur ÍA og Hörður takast í hendur snýt-
ir Hörður sér framan í andlit leik-
manns ÍA. Sem betur fer voru menn
fljótir að ganga í milli því, eins og gef-
ur að skilja, var leikmaður IA ekki
sáttur við þessa framkomu.
Bruni vann sinn annan leik í röð á
föstudaginn þegar að þeir sigruðu
Úlfana á útivelli 3-1. Úlfarnir voru fyrrí
til að skora en Brunamenn svöruðu
með þremur mörkum. Hannes Guð-
mundsson, Sveinbjörn Hlöðversson
og Davíð Búason skoruðu mörk
Bruna.
Hálfdán Gíslason verður líklega frá í
6-8 vikur vegna meiðslanna sem
hann hlaut í leiknum gegn ÍBV í síð-
ustu viku. Fyrsta skoðun benti til að
liðband í nára hefði slitnað. Sams-
konar meiðsli héldu Hálfdáni frá nán-
ast allt sumarið 1999.
Sturlaugur Haraldsson er enn trá
vegna þrálátra bakmeiðsla. Ekki er
vitað hvenær Sturlaugur verður klár í
slaginn á nýjan leik en vonir standa
þó til að það verði innan skamms.
Á nýafstöðnu Landsmóti UMFÍ á
Egilsstöðum um síðustu helgi tefldu
Borgfirðingar fram öflugu liði ( starfsí-
þróttum. Meðal annars áttu þeir
yngsta keppandann í tveimur grein-
um, Þóru Geirlaugu Bjartmarsdóttur,
sem keppti í jurtagreiningu og að
leggja á borð.
í dráttavéiaakstri voru tveir kepp-
endur frá UMSB. Lárus Pétursson á
Hvanneyri varð í fjórða sæti en fé-
lagi hans Haukur Júlíusson hafnaði í
einu af neðstu sætunum. Þess má
gera að Haukur er einn af mönnun-
um á bak við Búvélasafnið á Hvann-
eyri og skýra menn slakan árangur
hans á landsmóti með því að hann sé
ekki vanur að fást við dráttavétar sem
framleiddar eru eftir miðja síðustu
öld.
HSH og UMSB voru með sameigin-
legar tjaldbúðir á mótinu á Eglisstöð-
um og tókst þessi vestlenska sam-
vinna vel. Hvort þetta er upphafið að
sameiningu héraðssambandanna
skal hinsvegar ósagt látið.
HH