Skessuhorn - 02.08.2001, Qupperneq 1
I
4 •
f • *
VIKUBLAÐ Á VESTURLANDI - 31. tbl. 4. árg. 2. ágúst 2001 Kr. 250 í lausasölu
^XÍslensk
V ^ Ur’IMÝliJNGATÆKNI
Þjónustuver
Tölvur
Tölvuviðgerðir
Skrifstofuvörur
Símtæki
qi-430 2200 - verslun@islensk,is
Sjóstangveiðin gagnrýnd
Það sitja ekki allir við sama borð segir Kristján Helgason
Kristján Helgason hafnarvörður
í Olafsvík gagnrýnir að sjóstang-
veiðimönnum skuli gefin heimild
fyrir því að draga á Iand umtalsvert
magn af fiski framhjá kvóta á
hverju sumri. A dögunum var
einmitt haldið sjóstangveiðimót í
Olafsvík þar sem tæp 30 tonn
komu á land. Atta slík mót eru
haldin á hverju sumri og er ljóst að
heildarafli sjóstangveiðimanna
getur numið á annað hundrað
tonnum. „Eg er ósáttur við að þeir
sem stunda sjóstöngina geti notað
tekjurnar af afla sínum til eigin
veislufanga eða í sjóði sína. Þetta
skýtur líka skökku við þegar marg-
ir bátar eru að klára kvótann sinn
um þessar mundir og liggja
bundnir við bryggju. Það horfði
öðruvísi við ef ágóðinn af þessu
yrði látinn rakna til líknarmála eða
félagastarfa því þar á bæ eru menn
með herkjum að skrapa saman 5 og
10 þúsund köllunum,“ segir Krist-
ján. Hann segist þekkja þetta vel
þar sem hann sé sjálfur félagi í
líknarfélagi og það gangi oft
brösuglega að safna fjármagni.
„Það mætti frekar hugsa sér að
þessu aflamagni væri úthlutað til
sveitarfélaga sem síðan ráðstafaði
þessu til félaga og líknarsamtaka.
Gæti þá hver sem er sótt urn að fá
úthlutað og nefnd á vegum sveitar-
félaganna hefði það verk að fara
yfir umsóknir og meta hvar þessu
sé best varið.“ Kristján vildi einnig
geta þess að það væri óeðlilegt að
engin hafnar- eða viktargjöld væru
greidd af þessari útgerð.
smh
Olsenbræð-
ur í Hólm-
inum?
Heyrst hefur að hinir frægu
dönsku Olsenbræður komi við á
Dönskum dögum í Stykkishólmi
17. - 19. ágúst. Eins og kunnungt
er sigruðu þeir Söngvakeppni evr-
ópskra sjónvarpsstöðva í fyrra
með laginu Fly on the wings of
love en það hefur einmitt notið
mikilla vinsælda hér á landi.
Munu þeir ef að líkum lætur flytja
það lag og ætti enginn að láta
þessa geðþekku Dani ffam hjá sér
fara. Verða þeir á landinu í tengsl-
um við tónleika þeirra í Laugar-
dalshöllinni þann 17. ágúst.
snih
Ki'istján bafnarvörður í Olafsvík vill að
félög sitji vii sama borð
Sláturfélag
Vesturlands
Svo gæti farið að slátrað yrði í
Borgarnesi í haust undir merkjj
um Sláturfélags Vesturlands. A
fjölmennum bændafundi á
Hvanneyri síðastliðinn mánudag
kom fram eindreginn vilji til að
láta á það reyna hvort samstaða
næðist um það meðal bænda og
Kaupfélags Borgfirðinga að
slátra í sláturhúsi Goða í Borgar-
nesi í haust.
Sjá bls. 3
Gæsapartí
kvikmyndað
Að undanförnu hafa staðið yfir
tökur á nýrri íslenskri bíómynd,
Gæsapartí, við Mótel Venus í
Borgarfirði. Sextán konur úr
Borgarnesi leika í myndinni.
Sjá bls 9.
Stoftiun nýs sláturfélags
í undirbúningi
Fundur í Dalabúð hvetur bændur til að sniðganga Goða
Akveðið hefur verið að stofna
félag um rekstur sláturhúss í
Búðardal á komandi hausti. Á
fjölmennum fundi hagsmuna-
aðaila um sláturhúsið í Búðardal
í Dalabúð síðastliðið þriðjudags-
kvöld var skipuð þriggja manna
nefhd til að vinna að undirbún-
ingi þess. Jafhffamt var ítrekuð
áskorun til stjómar Goða að
ganga til samninga um leigu á
sláturhúsinu í Búðardal. Einnig
var samþykkt ályktun þar sem
bændur í Dölum vora hvattir til
að eiga ekki viðskipti við fyrir-
tækið ef það yrði ekki við óskum
um að leigja sláturhúsið. Þá
mótmælti fundurinn harðlega
óskum forsvarsmanna Goða hf
um úreldingarstyrk frá hinu op-
inbera vegna sláturhússins í
Búðardal.
I samtali við Skessuhorn eftir
fundinn sagðist Sigurður Rúnar
Friðjónsson oddviti Dalabyggðar
ekki vera búinn að gefa upp alla
von um að forsvarsmenn Goða
Dalamenn ákváðu áfundi á mánudag að hejja undirbúning að stofiiun nýs sláturfélags
væru tilbúnir til viðræðna um leigu
á sláturhúsinu í Búðardal þrátt fyr-
ir yfirlýsingar um annað. „Eg vona
allavega að menn átti sig á því hvað
er í húfi og séu tilbúnir til að leysa
þessi mál og gera skaða sauðfjár-
bænda sem minnstan. Ef Goði er
ekki tilbúinn til viðræðna munum
við leita annarra leiða," sagði Sig-
urður. Nefndi hann færanlegt slát-
urhús sem einn af hugsanlegum
kostum.
Bcggja megin borðs
Sigurður gagnrýndi þær hug-
myndir sem sagt er frá á öðrum
stað í blaðinu í dag um að fjögur
Kaupfélög sem hluthafar í Goða
myndu standa fyrir leigu á slátur-
húsunum á þeirra svæði. „Þarna
ætla forsvarsmenn Goða að fara að
semja við sjálfa sig fyrir hönd gjald-
þrota fyrirtækis og ég skil ekki að
þeim leyfist það.“
Á bændafundi á Hvanneyri á
mánudag sagði Guðsteinn Einars-
son kaupfélagsstjóri kaupfélags
Borgfirðinga að fram til þessa
hefðu bændur í Dölum ekki sýnt
samstöðu um sláturhúsið í Búðar-
dal heldur hefði um þriðjungur
þeirra lagt inn annars staðar. Sig-
urður segir það visssulega vera rétt
að margir bændur í Dölum hafi
leitað út fyrir héraðið með sitt slát-
urfé. „Við lifum í frjálsu landi þar
sem mönnum er frjálst að eiga við-
skipti við þá sem þeir kjósa. Það
hafa Borgfirðingar einnig gert og
ég veit ekki hvort hallar á nokkurn
þar. Við teljum hinsvegar að sam-
staðan sé það mikil um sláturhúsið
í Búðardal að rekstrargrundvöllur-
inn sé fyrir hendi. Kannski ekki
samkvæmt Goða hagfræðinni en
útfrá heilbrigðri skynsemi," segir
Sigurður. GE
ka&tnv