Skessuhorn - 30.08.2001, Qupperneq 1
Tölvuviðgerdir
Skrifstofuvörur
Símtæki
Hymutofgi-430 2200-vdtfli@yensk.is
Guðmundur Runólfsson hf.
missir veiðikvóta
Einii skipi lagt í kjölfarið
Fiskiðjan á Húsavík hefur sagt
upp samningi sínum við Guðmund
Runólfsson hf. í Grundarfirði um
veiðar á um 2000 þorskígildum.
Samkvæmt heimildum Skessu-
horns munu aflaheimildirnar flytj-
ast yfir á skip Samherja á Akureyri.
Að sögn Guðmundar Smára Guð-
mundssonar, framkvæmdastjóra
Guðmundar Runólfssonar hf., hef-
ur fyrirtæki hans séð um að veiða
umræddan afla síðastliðin þrjú ár
og keyrt hann síðan norður á
Húsavík þar sem unnið hefur verið
úr honum. Segir hann að uppsögn
samningsins hafi mjög óverulega
þýðingu fyrir Guðmund Runólfs-
son hf. en þó muni einu af þremur
skipum fyrirtækisins, Ingimundi
SH, verða lagt. „Flestum úr áhöfn
Ingimundar mun verða fengið starf
annars staðar innan fyrirtækisins,“
segir hann en alls eru 15 manns í á-
höfninni.
Guðmundur segir að samstarf
þeirra við Fiskiðjuna hafi gengið
mjög vel og á þessum þremur árum
hafi þeir veitt á sjöunda þúsund
tonn fyrir þá. Hins vegar sé ekki
sérstök eftirsjá af þessum samningi
rekstrarlega séð.
smh
Fimmti flokkur
Islandsmeistari
Fimmti flokkur LA í knattspyrnu
gerði góða ferð til Reykjavíkur á
sunnudag þar sem A og B lið mættu
liðum Víkings Reykjavík á Valbjarn-
arvelli í Laugardalnum. Leikið var
til úrslita um Islandsmeistaratitilinn
og taldi sameiginlegur árangur lið-
anna. Leikur B liðanna endaði með
markalausu jafntefli og því urðu
liðsmenn A liðsins að sigra til þess
að titillinn yrði í höfh.
Víkingar voru taldir sigurstrang-
legri þar sem Skagamenn höfðu
tvisvar þurft að láta í minni pokann
fyrir þeim í sumar. I fyrri viðureign
liðanna töpuðu þeir 4-0 og í þeirri
seinni 3-0. Strákarnir mættu þó
mjög ákveðnir til leiks og ekki leið á
löngu þar til Björn Jónsson skoraði
fyrsta mark leiksins. Víkingar náðu
að jafna en Ivar H. Sævarsson kom
okkar mönnum yfir á nýjan leik
áður en flautað var til leikhlés.
I síðari hálfleik fengu Skagamenn
dæmda vítaspyrnu og skoraði Björn
Jónsson úr henni. Arnþór Ingi
Kristinsson skoraði næsta mark
leiksins, en svo óheppilega vildi til
að hann skallaði boltann í sitt eigið
mark og staðan því orðin 3-2 IA í
vil. Mark Arnþórs ku þó hafa verið
einstaklega fallegt. Undir lok leiks
skoraði Björn Jónsson sitt þriðja
mark í leiknum og fögnuðu strák-
arnir og áhorfendur gríðarlega þeg-
ar flautað var til leiksloka.
Björn var að vonum ánægður með
sigurinn: „Tilfinningin var bara
nokkuð góð. Við vissum alveg að við
gætum unnið þótt við hefðum tapað
stórt fyrir þeim tvisvar í ár. Þetta var
ekkert vandamál." Björn sagðist
vera kominn í frí í sex daga en að þá
hæfust æfingar á ný. „Við erum bún-
ir að æfa fimm sinnum í viku í allt
sumar. Eg veit ekki hvernig þetta
verður í vetur.“ Aðspurður segir
Björn það ekkert vafamál að þeir fé-
lagar nái líka að vinna titilinn góða á
næsta ári. Þjálfari strákanna er Jón
Hugi Harðarson.
Rallýkeppni á Uxahryggjaleið mótmælt
Ekki ásættanlegt, segir Rúnar Hálfdánarson á Þverfelli
Þeir sem farið hafa um Uxa-
hryggjaleið síðustu daga hafa vænt-
anlega rekið augun í skilti þar sem
tilkynnt er að leiðin verði lokuð
vegna rallýkeppni hluta úr degi
þann 1. septémber n.k. Rallýið sem
þar er vísað til er Rallý - Reykjavík,
alþjóðleg keppni þar sem tuttugu
og þrír bílar eru skráðir til leiks, þar
af sjö með erlendum áhöfnum.
Fyrirhuguð rallýkeppni hefur
mælst misjafnjega fyrir hjá mörgum
íbúum í nágrenni við Uxahryggja-
leið. „Það er ekld ásættanlegt að
þegar búið er að verja tugum millj-
óna til að gera veginn þokkalegan
ef hann er síðan eyðilagður fyrir
stundargaman fáeinna manna,“
segir Rúnar Hálfdánarson bóndi á
Þverfelli í Lundarreykjadal.
„Það hefur verið borið mikið af
fínefni í veginn og þess vegna er
hann orðinn þokkalegur. Það gefur
því auga leið að hann þolir illa
meðferð af þessu tagi. Þessi leið er
orðin mjög mikilvæg tenging milli
Vesturlands og Suðurlands og með-
al annars er vegurinn æ meira not-
aður fyrir vöruflutninga en áður
var.“
Þá segir Rúnar að það sé undar-
legur tvískinnungsháttur ef Vega-
gerðin leyfi notkun á veginum sem
geti stórskemmt hann. „A vorin er
umferð um veginn takmörkuð til að
hlífa honum sem gerir það að verk-
um að þegar verið er að nýta hann
til að sækja aðföng, áburð og fleira
á þessum tíma þá þarf að mjatla því
í smáum skömmtum. Það er því
skrítið ef önnur sjónarmið gilda
gagnvart rallýköppum," segir Rún-
ar. Hann tekur það hinsvegar fram
að hann sé ekki á móti rallýíþrótt-
inni sem slíkri en telur að nú sé svo
komið að finna verði henni annan
vettvang en Uxahryggjaleið og tel-
ur að ekki ætti að vera vandamál að
finna vegi sem hægt sé að nýta í
þessum tilgangi án þess að veruleg
spjöll hljótist af.
Keppnisleyfi vegna Rallý Reykja-
víkur hefur ekki verið gefið út en
það er uinferðardeild lögreglunnar
í Reykjavík sem hefur með málið að
gera þar sem keppnin hefst í henn-
ar umdæmi. Að sögn Richarðs J
Björgvinssonar hjá umferðardeild-
inni verður leyfið ekki gefið út
nema fyrir liggi samþykki landeig-
enda, vegagerðar og viðkomandi
sýslumanna.
GE