Skessuhorn - 18.10.2001, Blaðsíða 1
VIKUBLAÐ Á VESTURLANDI - 42. tbl. 4. árg. 18. október 2001____Kr. 250 í lausasölu
Sæmundur
kaupir EDP
Sæmundur Sigmundsson sér-
leyfishafi í Borgarnesi hefur keypt
rekstur sérleyfisferða Helga Pét-
urssonar á Snæfellsnesi og samein-
að undir eitt sérleyfi fyrir allt Vest-
urland. Sæmundur hefur verið
undir stýri á hópferðabifreiðum í
tæp fimmtíu ár og á núna fjörutíu
rútur af öllum stærðum.
Sjá viðtal við Sæmund á bls. 2.
Dóra BA-24 gerir það gott í innilegunni í Ólafsvík
Hefiir ekkert
landað í meira
en tvö ár
- en skilar eigandanum miklum tekjum
Hæpnar full-
yrðingar Gísla
„Það erum við sem höfum stað-
ið í þessari uppbyggingu á Grund-
artanga en ekki Akurnesingar,“
segir Jón S. Valgarðsson, oddviti
Hvalþarðarstrandarhrepps. Hann
er ósáttur við fullyrðingar Gísla
Gíslasonar bæjarstjóra Akraness í
síðasta tölublaði Skessuhorns og
neitar því alfarið að sveitarfélögin
sunnan Skarðsheiðar séu dragbít-
ur á uppbyggingu á svæðinu.
Sjá viðtal við Jón á bls. 3.
í meira en tvö ár hefur Dóra BA-
24 frá Tálknafirði, sem Hali ehf.
frá Isafjarðarbæ gerir út, legið
bundin við bryggju í Olafsvík án
þess að róa til fiskjar. Það væri
kannski ekki í frásögur færandi ef
bátnum hefði ekki verið úthlutað
331.282 kg þorskígildis fyrir fisk-
veiðiárið 2000-2001 og að engar
landanir eru skráðar á bátinn frá
því ári samkvæmt heimildum frá
Fiskistofu. Sömu heimildir sýna að
aflatilfærslur voru umtalsverðar á
síðasta ári, mest frá Dóru á Kvóta-
þing. Hjá Fiskistofu fást einnig
þær upplýsingar að fyrir nýhafið
fiskveiðiár fékk Dóra úthlutað
303.036 kg þorskígildis og hefur á
því ári átt viðskipti við fimm mis-
munandi skip þar sem 151.459 kg
þorskígildis hefur verið fært frá
Dóru yfir á skipin. Til þess að
halda óskiptum hlut aflaheimilda
fyrir næsta fiskveiðiár verður Dóra
hins vegar á þessu ári að uppfylla
50 prósent regluna svokallaða,
sem kveður á um að veiða verði 50
prósent af úthlutum afla annað
hvert ár.
smh
Dóra BA-24 liggurbundin við bryggjuna í Ólafsvík þarsern htín hefiirverið undanfar-
in ár.
ÍföPWi 1 lp
i m mpr 1
Stærsta bjiirgunaræfmg ársins var haldin á Snæfellsnesi um helgina. Um þrjúhundruð björgunarmenn voru ræstir rít um jjögurleytið
aðfaranótt laugardags og stóð æfingin fram eftir laugardeginum. A laugardagsmorguninn opnaði síðan samgönguráðherra, Sturla
Böðvarsson, fórmlega nýja rústábjurgunaraðstöðu í þjálfunarbtíðunum á Gufuskálum og er þessi mynd tekin við það tækifieri.
Mynd: GE
Vopnaður myndatöku-
maður á rjúpnalendum
Lögreglan hafði töluverð af-
skipti af rjúpnaskyttum um helg-
ina áður en veiðitíminn hófst og
einnig eftir að menn héldu lögleg-
ir til veiða mánudaginn 15. októ-
ber samkvæmt upplýsingum frá
Borgarneslögreglu.
Lögreglumaður í eftirliti á flug-
vél sá til manns á Holtavörðuheið-
inni upp úr hádeginu á laugardag-
inn 13. október þar sem hann ók
áleiðis að Snjófjöllunum. Lög-
reglan fór og hafði tal af mannin-
um sem kvaðst þá hafa verið að
taka myndir af rjúpnalendunum
en hann hefði alls ekki ætlað á
rjúpnaveiðar. Ekki gekk mannin-
um vel að útskýra fyrir lögregl-
unni hvers vegna hann væri með
haglabyssu og skotfæri í bifreið-
inni í þessari skoðunarferð sinni.
Hugsanlegt er að hann hafi viljað
vera við öllu búinn og getað
varið sig ef hann yrði fyrir rjúpna-
árás!
Náttúruspjöll
Fyrsta löglega rjúpnaveiðidaginn
haíði lögreglan afskipti af nokkrum
rjúpnaskyttum vegna ólöglegs akst-
urs utan vega á Holtavörðuheiðinni.
Höfðu mennirnir fest einn jeppa í
aurbleytu en böðlast áífam á öðrum
sem var á enn stærri dekkjum og
valdið skemmdum á um 3 km löng-
um vegslóða. Voru mennirnir til-
sagðir af öðrum skyttum á svæðinu
sem voru gáttaðir á þessum akstri og
þeirri leti sem í þessu fólst. Að sögn
lögreglu geta mennirnir átt von á að
verða kærðir fyrir þennan utan vega-
akstur. Jörð er með öllu frosdaus á
hálendinu og því mikil hætta á gróð-
urskemmdum ef ekið er utan þjóð-
vega.
Þá hefur veginum að endur-
varpsmastrinu á Stórholti á Holta-
vörðuheiði verið lokað fyrir allri
umferð vegna úrrennslis og aur-
bleytu en mikið er um að rjúpna-
skyttur aki upp að mastrinu til að
stytta sér leiðina í Snjófjöllin. GE