Skessuhorn - 25.10.2001, Síða 1
VIKUBLAÐ Á VESTURLANDI - 43. tbl. 4. árg. 25. október 2001____Kr. 250 í lausasölu
Raftar
Bifhjólaáhugamenn í Borgar-
firði era að stofna samtök um þetta
áhugamál sitt sem þeir kalla, Raft-
ar - Bifhjólafjelag Borgarfjarðar.
Segja má að mótorhjóladella hafi
náð tökum á Borgnesingum og ná-
grönnum þeirra að undanförnu.
Sjá allt um það á bls 11.
Rúllu-
þjóftir
Rétt fyrir síðustu helgi barst
lögreglunni í Olafsvík tilkynn-
ing um þjófnað á fjórum hand-
færarúllum úr Stakkavík GK-
45 sem legið hefur í Olafsvík-
urhöfn að undanförnu. Rúll-
unar eru af gerðinni DNG
6000 og að verðmæti um 230
þúsund krónur stykkið. Er
málið komið til lögreglunnar í
Olafsvík til rannóknar.
Larry Florence í
Skallagrím
Körfuknattleikslið Skallagríms
fékk góðan liðsstyrk í síðustu viku
þegar Bandaríkjamaðurinn Larry
Florence kom til landsins. Florence
lék í 5 ár með háskólaliði Nebraska
í Bandaríkjunum þar til hann út-
skrifaðist þaðan með láði í mai
2000. Hann var fastamaður í liðinu
þau ár sem hann lék með því og
byrjaði inná í 75 leikjum á þessum
árum. Hann var stigahæstur
leikmanna liðsins síðusm 2 árin og
var einnig með um 7 fráköst að
meðaltali í leik. Árið 1999 var hann
valinn íþróttamaður ársins í skólan-
um og var hann mjög vinsæll meðal
smðningsmanna liðsins. Þá æfði
hann einnig amerískan fótbolta í
skólanum og er því greinilegt að
þarna er mikill íþróttamaður á ferð-
inni.
Þess má til gamans geta að með
honum í Nebraska spilaði leikmað-
ur að nafhi Tyrone Lue sem síðar
gerðist leikmaður með L.A Lakers í
NBA deildinni og varð tvöfaldur
meistari með þeim. Hann spilar í
dag með Michael Jordan í liði Was-
hington Wizards
Einnig er kominn til liðs við
Skallagrím rússneskur leikmaður að
nafni Leonid Zdanov. Hann er
196cm á hæð og hefur verið at-
vinnumaður í Rússlandi í 10 ár.
Hann er sagður vera mikil skytta og
góður sóknarmaður. Hann verður
þó ekki löglegur með liðinu fyrr en
í leiknum gegn Þór á sunnudaginn
og verður gaman að sjá til liðsins
þegar það er orðið fullskipað. R.G
Leikskólinn Vallarsel
Tónlistarkennsla skert
Aðsókn í Tónlistarskólann á
Akranesi hefur aukist jafnt og þétt
undanfarin ár og haustið nú var
engin undantekning á þeirri reglu.
Þessi aukna aðsókn hefur þó kom-
ið niður á tónlistarkennslu í leik-
skólanum Vallarseli. Þar er lögð
sérstök áhersla á tónlistaruppeldi
og frjálsan leik og hefur Bryndís
Bragadóttir, tónlistarkennari, séð
um kennsluna sem fram fer einu
sinni í viku.
„Aðsóknin í Tónlistarskólann
var svo mikil í ár að ekki reyndist
fært að sinna okkar starfi í eins
langan tíma og fyrir fram var
áætlað þótt viljinn sé fyrir hendi
hjá Tónlistarskólanum,“ segir
Lilja Guðlaugsdóttir, leikskóla-
stjóri. „Þrautalendingin var sú að
skerða kennsluna. Úthlutuðum
tímum í tónlist undir leiðsögn tón-
listarkennara hefur því verið fækk-
að úr sex niður í fjóra. Við reikn-
um með því að þetta verði svona
að minnsta kosti fram að áramót-
um en hér ríkir almenn óánægja
með ástandið og bæði foreldrafé-
lag og starfsfólk leikskólans hafa
ritað skólanefnd bréf þar sem ósk-
að er eftir því að eitthvað verði
gert í þessum málum.“ Lilja segir
að þótt tímunum hafi fækkað fái
hvert barn á leikskólanum kennslu
í jafnlangan tíma og áður. „Við
leystum málið þannig að í stað
þess að stytta tímana erum við
með helmingi stærri hópa í tónlist-
arkennslunni miðað við það sem
áður var. Aður voru t.d. um átta
börn í hóp og hægt að sinna hverju
barni vel en nú eru þau orðin sext-
án. Það gefur auga leið að svona
fyrirkomulag kemur niður á börn-
unum því ekki er hægt að gefa
þeim sömu tækifæri í tónlistinni.“
Lilja segir málið sérlega baga-
legt með tilliti til þess að leikskól-
inn hefur lagt mikla vinnu í að
þróa upp gott og kraftmikið tón-
listarstarf á undanförnum árum því
eins og áður segir er þar lögð sér-
stök áhersla á tónlistaruppeldi. „-
Fyrstu önnina sem við réðumst í
þessa tónlistarkennslu fengum við
einungis fjórum tímum úthlutað.
Foreldraráð leikskólans barðist
fyrir því á sínum tíma að kennslan
yrði aukin en nú erum við komin
aftur á byrjunarreit.“ SOK
kynning föstudaginn 26. okt.
frákl. 14- 18
CASA