Skessuhorn - 15.11.2001, Side 1
Norðanvert Snæfellsnes
✓
Oli Jón vill sameinast
Framhaldsskóli á Snæfellsnes
Ellefii fulltrúar sveitarstjórna á
norðanverðu Snæfellsnesi fóru sl.
mánudag í hópferð um Austurland
í þeim tilgangi að kynna sér sam-
einingarmál sveitarfélaga á Austur-
landi. Oli Jón Gunnarsson, bæjar-
stjóri í Stykkishólmi, var hvata-
maðurinn að þessari ferð og segir
hana hafa verið mjög gagnlega.
„Við skoðuðum þarna bæði hvern-
ig staðið var að sameiningu Nes-
kaupstaðar, Eskifjarðarkaupstaðar
og Reyðarfjarðarhrepps í Fjarða-
byggð og stofnun Austur-Héraðs.“
Óli Jón hefur verið talsmaður
þess að sveitarfélögin á norðan-
verðu Snæfellsnesi sameinist.
Hann flutti m.a. fyrir skemmstu
framsögu á fundi Rótarýklúbbs
Ólafsvíkur á Hótel Höfða þar sem
hann viðraði hugmyndir sínar í
þessu efni. smh
í setningarræðu menntamálaráð-
herra, Bjöms Bjarnasonar, á aðal-
fundi Sambands sveitarfélaga á
Vesturlandi sl. föstu-
dag mátti skilja að
framhaldsskóli á
Snæfellsnesi yrði
stofnaður. Eins og
ffam kom í Skessu-
horni þann 23. ágúst
sl. hefur nefhd sveit-
arfélaga Eyrarsveitar,
Helgafellssveitar og
Stykkishólmsbæjar
unnið að hugmynd-
um um stofnun fram-
haldsskóla á Snæfells-
nesi. Hefur málið
verið í hugmyndavinnslu nefndar-
innar síðustu mánuði en fyrir ligg-
ur að fjarnám við aðra framhalds-
skóla víðsvegar um landið yrði
hryggjarsúlan í starfsemi slíks skóla.
Menntamálaráðuneytið hafði tekið
jákvætt í þessar hugmyndir en ekki
hefur fengist skýr afstaða ráðherra
fyrr en á fundinum á
mánudaginn.
Björg Agústsdóttir,
sveitarstjóri Eyrar-
sveitar og formaður
undirbúningsnefndar
fyrir stofnun fram-
haldsskóla á Snæ-
fellsnesi, segir að hún
taki það fram að hún
hafi ekki verið á um-
ræddum fundi og því
ekki heyrt ræðu
menntamálaráð-
herra. Hún segist
hins vegar fagna því ef ráðherra
hefúr fjallað á jákvæðan hátt um
möguleikann á framhaldsskóla á
Snæfellsnesi. „Málið er ekki í höfn
ennþá og menntamálaráðherra á
eftir að taka ákvörðun um málið.
Við Snæfellingar erum að leggja í
mun umsvifameiri vinnu en upp-
haflega stóð til við að útfæra hug-
myndir okkar, sérstaklega um þann
þátt skólastarfsins sem snýr að
svokölluðu dreifnámi og uppbygg-
ingu námskrár og nýtingu upplýs-
ingatækni í skólastarfinu. Við vilj-
um vanda til verksins, ekki bara
heimta eitt stykki skóla og í því ljósi
höfum við lagt það mat á stöðuna
að þessar hugmyndir eigi að vera
framkvæmanlegar þrátt fyrir oft og
tíðum erfiða stöðu minni og meðal-
stórra skóla á landsbyggðinni. Það
er mín skoðun að við höfum a.m.k.
fengið jákvætt svigrúm í mennta-
málaráðuneytinu til að setja fram
okkar hugmyndir og þróa þær, svo
verðum við bara að sjá hvað setur,“
segir Björg.
smh
Vonskuveður
Það var vindasamt á Vesturlandi um síðustu helgi og urðu nokkrar
skemmdir á mannvirkjum og lausamunum vegna veðursins. Þá urðu
víða rafmagnstruflanir vegna seltu á raflínum.
Sjá bls 4 og 6.
Hann gerði sig beimakominn þessi hvíti útselskópur sem bœgslaðist um á túninu við Belgsholt í Melasveitinni sl. þriðjudag. Hafði kópurinn skriðið um 400 metra upp úrjj'órunni og heim að bœnum og ráfaði þar um tún afar
ringlaður að sjá. Mun mjög sjaldgjœft að útselir komi svo nálœgt mannabústöðum en þráttjýrir ítrekaðar tilraunir bóndans til að keyra kópinn í skóflu traktórsins út í sjó tókst það trauðla og synti selurinn avinlega til baka. Síðustu
fregnir herma að kópurinn hafi á hádegi í dag (miðvikudag) verið kominn af fálfsdáðum á eina kálfastíuna í Belgsholti. Mynd: smh
Kjarna Smjörlíki 500 gr.
Strásykur 2 kg-
Flórsykur 500 gr.
i/nmax hveiti 2 Kg-
Kornax hveiti
Egg
Verð áður
153
228
94
95
365 kg.
i sú
c > ~ 9 |
\ 22^
-og þetta er aðeins brot af þeim bökunarvörum
sem eru á tilboði hjá okkur núna..
Mtfff
Hyrnutorgi GÓður kOSti