Skessuhorn - 06.12.2001, Blaðsíða 14
14
FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2001
siaéssiuiiiöiiM
ÍPRÓTTIR - ÍPRÓTTIR - ÍPRÓTTIR - ÍPRÓTTIR - ÍPRÓTTIR - ÍPRÓTTIR - ÍPRÓTTIR - ÍPRÓTTIR - ÍPRÓTTIR -
Akranesmeistara-
mótið í sundi
Verðlaunahafar mótsins
Akranesmeistaramótið í sundi
fór fram í Bjarnalaug sl. sunnu-
dag. Um 30 krakkar kepptu á
mótinu. Ágætis tímar náðust og
meðal annars setti Ágúst Júlíus-
son Akranesmet ( 50 m baksundi.
í mótslok voru Akranesmeistarar í
hverjum aldursflokki verðlaunaðir
og voru þeir eftirfarandi:
Aþena Ragna Rúnarsdóttir með
1134 stig í meyjaflokki.
Ágúst Júlíusson með 994 stig í
sveinaflokki.
Elísa Guðrún Elísdóttir með 1619
Birgir Guðbjörnsson, Borgar-
nesi, vill þakka eftirfarandi fyrir-
tækjum stuðninginn sumarið 2001
í Rallýcrossi AÍK;
Kaupfélag Borgfirðinga, Vírnet,
Garðastál, Valvoline, Gámaþjón-
usta Vesturlands, Sóma samlok-
ur, Hancock hjólbarðar, Harpa-
Sjöfn, Pústverkstæðið Nóatúni 2,
stig í telpnaflokki.
Gunnar Smári Jónbjörnsson með
1386 stig í drengjaflokki.
Hildur Magnúsdóttir með 1678
stig í kvennaflokki.
Anton Kristjánsson með 783 stig í
karlaflokki.
Þá fengu Þórdís Kolbrún Gylfa-
dóttir og Gunnar Smári Jón-
björnsson verðlaun fyrir stiga-
hæstu sund karla og kvenna en
Þórdís fékk 601 stig fyrir 50 m
bringusund og Gunnar 482 stig
fyrir 50 m skriðsund. HJH
Nýja Bónstöðin, Hjólbarða- og
smurstöð Borgarbraut og Bíla-
verkstæði Högna.
Eftir harða baráttu um íslands-
meistaratitil náðist 2 sætið í þeirri
keppni og 2 sætið í Bikarmóti AÍK.
Fékk Birgir einnig þann titil að
vera með mesta keppnisskapið.
Bingó
Körfuknattleiksdeild Umf. Skalla-
gríms hélt bingó á Hótel Borgar-
nesi s.l. þriðjudag til styrktar ung-
lingastarfi deildarinnar. Ekki var
hægt að sjá annað en að það
mæltist vel fyrir þar sem að um
200 manns mættu á staðinn og
skemmtu sér hið besta.
Körfuknattleiksdeild þakkar fyrir
veittan stuðning og þá ekki síst
þeim fyrirtækjum í Borgarnesi, á
Akranesi og víðar sem styrktu
deildina í formi bingóvinninga og
með annarri aðstoð.
(Fréttatilkynning)
Molar
íslandsmeisturum ÍA hefur verið
boðið að taka þátt í fjögurra liða
móti í Reykjaneshöllinni um aðra
helgi. Auk Skagamanna taka
Grindvíkingar, Kefiavík og Fram
þátt í mótinu. Hvert lið kemur til
með að spila tvo leiki. Sigurliðin úr
fyrstu umferð mætast í úrslitaleik
en tapliðin leika um þriðja sætið.
Fyrri leikur Skagamanna er 13.
desember en sá seinni þann 15.
Andrí Karvelsson, leikmaður ÍA
fór í krossbandsaðgerð í síðustu
viku sem heppnaðist mjög vel.
Andri má hefja endurhæfingu eftir
sex vikur. Reiknað er með að Andri
verði kominn á fullt um mánaða-
mótin maí-júní á næsta ári.
Sundsamband íslands heiðraði á
sunnudag alla þá sundmenn sem
hafa farið fyrir íslands hönd á
Ólympíuleikana. Alls voru þetta 51
sundmaður þar af sex frá Akranesi.
Þeir sundmenn frá Akranesi sem
fengu heiðursmerki voru; Guðjón
Guðmundsson og Finnur Garðars-
son sem kepptu árið 1972 í
Munchen, Ingi ÞórJónsson og Árni
Sigurðsson sem kepptu árið 1984 í
Los Angeies, Ragnheiður Runólfs-
dóttirsem keppti á tvennum Ólymp-
íuleikum, 1988 f Seoul og 1992 í
Barcelona og að endingu Kolbrún
Ýr Kristjánsdóttir sem keppti í fyrra
í Sidney.
Á sama tíma kynnti SSÍ landsliðs-
hópa sína og þá sem munu keppa
fyrir ísiands hönd á Evrópumeist-
aramótinu í Antwerpen og Norður-
landamóti unglinga en bæði mótin
eru í desember. Kolbrún Ýr Krist-
jánsdóttir kemur til með að keppa á
Evrópumeistaramótinu en það mót
er um aðra heigi. Þá var Elísa Guð-
rún Elísdóttir valin í unglingahóp
SSÍ og Guðgeir Guðmundsson og
Kolbrún Ýr voru valin í úrvalshóp
SSÍ. HJH
Rallýkrosskappi
þakkar fyrir sig
ÚRVALSDEILDIN
í KÖRFUBOLTA
Skallagrímur - Keflavík
sunnudagskvöldið
11. desember kl. 20
í íþróttamiðstöðinni Borgarnesi
Attfr ó' váttfnn-
Á dögum Skagablaðsins sáluga
var einn liður í blaðinu sem tók
öðrum fram í vinsældum, þetta var
getraunaleikurinn svokallaði. Við
hjá Skessuhomi höfum ákveðið að
feta í þau fótspor og hefja sams-
konar leik. Höfumvið fengið tvo
getspaka keppendur til að ríða á
vaðið en það em þau Sigurður
Sverrisson, sem gaf út Skagablaðið
á sínum tíma, og Elínbjörg Magn-
úsdóttir en hún var ókrýnd drottn-
ing þessa leiks og mddi hverjum á-
skorandanum á fætur öðmm úr
vegi. Leikurinn verður, líkt og hjá
Skagablaðinu, með útsláttarfyrir-
komulagi og situr sá sem hefur
fleiri leiki rétta áffam en hinn
L - 1
m i [« JL
~~ • ji|| .. •«E>’ W
1" ■ 1 i
1/
SigurSur Elínlýörg
Sverrisson Magmísdóttir
skorar á einhvem annan að taka
við. I vor verður síðan farið yfir
það hverjum tókst að sitja lengst
og fær hann/hún nafnbótina Spek-
ingur ársins auk vel valinna verð-
launa. Sigurður og Elínbjörg em á
öndverðu meiði þegar kemur því
að meta hvert besta liðið í enska
boltanum er en Sigurður hefur
stutt Liverpool ffá 1967 en Elín-
björg er harður stuðningsmaður
Manchester United. Svona líta
seðlamir þeirra út.
1. Man. Utd-West Ham Sigurður 1 Elínbjörg 1
2. Liverpool-Middlesbr. 1 IX
3. Charlton-Tottenham X 2 X 2
4. Fnlham-Everton 1 2 X2
5. Derby-Bolton 1 2 1 2
6. Leicester-Southampton 1X2 1
7. WBA-Sheffield United 1 1
8. Crystal Palace-Manchester City 1X2 2
9. Birmingham-Norwich 1 1X2
10. Sheffield Wednesday-Milhcall IX X
11. Portsmouth-Crewe 1 1
12. Stockport-Wimbledon 2 2
13. Bamsley-Walsall 1 1X2
Halifaxar komnir á sinn stað að nýju
Bitist um
botnsætið
Kelduland 2- Halifaxhreppur 1
Á meðan áhangendur hins stór-
undarlega sparkliðs Grútartjarnar
(Liverpool) voru grátbólgnir yfir að
hafa glatað hinum skinhoraða
skorara Róberti Fáleita (Robbie
Fowler) voru kappar vorir í Hali-
fax kokhraustir því þaðan fer eng-
inn hvað sem í boði er. Halifaxar
gátu því telft fram sínu sterkasta
liði þegar þeir mættu Keldulandi
(Cheltenham) síðastliðinn laugar-
dag. Lið Faxanna var nánast ó-
breytt frá því þokkapiltunum í
Þurrkví (Torquai) var boðið að lúta
í gras fyrir skemmstu. Til leiks
gengu á laugardag þeir: Lárus
Bryti (Lee Butler), Andrés Skóg-
arvörður (Andy Woodward), Krist-
inn Klöruson, (Chris Clarke),
Grámann frá Miðseli (Gray
Mitchell), Donni Lúði (Dominic
Ludden), Matthías Klöruson
(Matthew Clarke), Páll Her-
sveinsson (Paul Harsley), Stefán
Burkni (Stewen Bushell), Krákur
frá Miðtúni (Craig Middelton), Jón
Viðar (Jamie Wood) og Jón sonur
Feitapatreks (lan Fitzpatrick). í
varamannaskýlinu styttu sér
stundir við Matador og tedrykkju
þeir: Pétur Krókur (Peter
Crookes), Krákur Miðlægi (Craig
Midgley), Njáll frá Rauðsmýri
(Neil Redfearn) og Stefán Vagns-
son (Steve Kerrigan).
Þessi lítt árennilegi leikmanna-
hópur dugði þó Föxum skammt
því fæstir þeirra höfðu náð fullri
heilsu eftir teiti það sem slegið var
upp í samkomuhúsi Halifax-
hrepps eftir glæstan sigur síðustu
helgar en í tilefni dagsins slöfruðu
menn í sig jólagambranum og
Jórvíkurjafningi (Yorkshirepudd-
ing) í stórum skömmtum.
Lotið í gras
Það voru þó Halifaxar sem náðu
forystunni á afar drengilegan hátt
ekki löngu eftir að leikur hófst þeg-
ar Páll Hersveins náði knettinum
með hóflegu ofbeldi eftir að Keltar
höfðu hindrað skot Jóns FeitaPat-
reks á afar ódrengilegan hátt.
Skaut Páll að marki með þokka-
fullri hreyfingu og hafnaði boltinn í
netmöskvunum eins og við var að
búast.
Keldudælir eru ekki meiri í-
þróttamenn en það að þeir gátu
ekki sætt sig við yfirvofandi ósigur
eins og sönnum ungmennafélög-
um sæmir heldur jöfnuðu metin á
óforskammaðan hátt. Það var
Jónas Sigurgeirs (Jamie Victory)
sem þar var að verki eftir ómerki-
lega aukaspyrnu frá Lárusi Há-
varðssyni (Lee Howlls). Ekki gátu
þeir látið þar við sitja því í síðari
hálfleik þegar Faxar voru farnir að
tygja sig til heimferðar og sumir
þeirra komnir í sturtu, þeir sem á
annað borð velta sér upp úr slíkum
smáatriðum, þá kom Júlíus á
Allsoddi og rak sína kartnögl í
knöttinn með hroðalegum afleið-
ingum og við það hrötuðu Halifaxar
aftur niður stigatöfluna. Bíða róleg-
ir á botinum eftir yfirvofandi stór-
leik en eins og öllum ætti að vera
kunnugt tekur Halifaxhreppur á
móti Stokkseyri (Stoke) í Effa
krúsinni næstkomandi laugardag.
Þess má geta að Skessuhorn verð-
ur að sjálfsögðu með vaska sveit
blaðamanna, sparkfræðinga, sál-
fræðinga og fulltrúa hinna ýmsu
stétta á leiknum í þeim tilgangi að
stuðla að heiðarlegum og óvilhöll-
um fréttaflutningi.
GE