Skessuhorn - 13.12.2001, Page 1
VIKUBLAÐ Á VESTURLANDI - 50. tbl. 4. árg. 13. desember 2001___Kr. 250 í lausasölu
Keikó verður Vesdendingur
Sameining Orkuveitu Reykjavíkur og
Hitaveitu Borgamess
Allt að þrjátíu
prósent lækkun
Síðastliðinn mánudag var undir-
rituð viljayfirlýsing um að Orku-
veita Reykjavíkur, Hitaveita Borg-
arness og 21,3% eignarhlutur
Borgarbyggðar í Hitaveitu Akra-
ness og Borgfjarðar ásamt
4% hlut Borgarfjarðar-
sveitar verði sameinað frá
og með 1. janúar á næsta
ári. Þegar þessi sameining
tekur gildi verður eignar-
hlutur Orkuveitu Reykja-
víkur í Hitaveitu Akraness
og Borgarfjarðar tæp átta-
tíu prósent en fyrir á fyrir-
tækið 54% eftir nýafstaðna
sameiningu við Akranesveitu.
Reiknað er með að eftir samein-
inguna lækki húshitunarkostnaður
í Borgarnesi um allt að 30%.
Sjá bls. 2
Tveggja manna enn saknað af Svanborgu SH
Einn maður bjargaðist
við erfiðar aðstæður
Einn maður bjargaðist úr fjögurra
manna áhöfn Svanborgar SH 404
sem fórst við Öndverðames síðast-
liðið föstudagskvöld. Lík eins skip-
verjans fannst í sjónum útifyrir
Skarðsvík á laugardag en hinna
tveggja var enn saknað þegar blaðið
fór í prentun. Björgunarsveitar-
menn hafe gengið fjömr ffá því á
laugardag og leitað hefur verið á sjó
eftir því sem veður hefur leyft.
Sá sem komst af úr slysinu heitir
Eyþór Garðarsson. Tókst honum
að halda sér á þaki stýrishússins í á
þriðju klukkustund áður en þyrla ffá
Varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli
bjargaði honum við mjög erfiðar
aðstæður.
Laust fýrir klukkan átta á fösm-
dagskvöld barst kall frá Steinunni
SH um að Svanborg ræki upp að
Svörtuloftum. Vom þá allar björg-
unarsveitir á Snæfellsnesi kallaðar
út og var viðhafður hámarksviðbún-
aður ekki síst vegna reynslu manna
af því þegar skip hafa lent í háska á
þessu svæði. Að sögn björgunar-
sveitarmanna var m.a. ákveðið að
kalla strax út tvöfelda vakt lækna og
sjúkraflutningamanna. Þyrla frá
Varnarliðinu kom á staðinn um
klukkan hálftíu en illa hafði gengið
að ná Varnaliðsþyrlunum tveimur
út úr flugskýlinu vegna veðurs.
Rúmum tuttugu mínútum síðar
hafði sigmanni varnarliðsþyrlunnar
tekist að ná Eyþóri ffá borði og var
hann settur í land þar sem björgun-
arsveitarmenn tóku á móti honum
og komu honum í læknishendur í
Olafsvík.
Að sögn sjónarvotta vora aðstæð-
ur til björgunar einkar erfiðar og
þykir affek sigmannsins og áhafnar
þyrlunnar mikið. GE
Sjá bls 6
Mynd: Fréttir, Vestmannaeyjum
Free Willy samtökin hafa sótt um
heimild til bæjaryfirvalda í Stykkis-
hólmi til að fá að flytja háhyminginn
Keikó úr Klettsvíkinni við Vest-
mannaeyjar í sjóinn við Baulutanga
innan við Stykkishólm. Eins og
komið hefur fram í fjölmiðlum náð-
ist ekki það takmark að sleppa Keikó
út í Adandshafið úr Klettsvíkinni sl.
sumar. Klettsvík mun vera ædaður
staður fyrir fiskeldi í nánusm ffam-
tíð og hafa forsvarsmenn Free Willy
samtakanna m.a. af þeim sökum leit-
að að ffamtíðarheimili fyrir háhym-
inginn að undanfömu.
Að sögn Óla Jóns Gunnarssonar,
bæjarstjóra í Stykkishólmi, mun
málið verða tekið fyrir á bæjarráðs-
firndi í kvöld, en segist hann reikna
fesdega með að honum verði falið
að ganga til samninga við forsvars-
menn Free Willy samtakanna í kjöl-
ferið.
Hallur Hallsson, talsmaður Free
Willy samtakanna á Islandi, sagði í
samtali við Skessuhom að fyrirhug-
uð staðsetning Keikós við
Baulutanga væri mjög hagstæð fyrir
hann. Þar væm náttúrulegar aðstæð-
ur mjög góðar, skipaumferð væri
ekkert í líkingu við Klettsvík þar
sem farið væri um eina fjölfömustu
höfh landsins og náttúmöflin væm
þar ekki blíð. Sagði Hallur að þá
væri gott að vera í nábýli við Stykk-
ishólmsbæ sem státaði að allri nauð-
synlegri þjónustu, m.a. góðu sjúkra-
húsi og eins væri nýstofnuð Nátt-
úrastofa Vesturlands staðsett þar
sem væri mikill kostur. Þá sagði
hann Breiðafjörð fellegan stað með
fjölskrúðugt dýralíf og þær sæist á
stundum til höffunga og háhym-
inga. Hallur segir að Free Willy
samtökin hafi ekki gefið það upp á
bátinn að sleppa háhymingnum og
sú vinna muni halda áffam í Breiða-
firðinum. smh
Helgartilboð
i A nrr fil ci i rt r»i irl/nrrc'
16
ff
fóstudag til sunnudags
nVTTTZk 2 áleggstegundir
P,ZZa 1/2 franskar,2 l.gos
Frí heimsending eftir kl. 18 á fóstudag