Skessuhorn

Tölublað

Skessuhorn - 13.12.2001, Blaðsíða 18

Skessuhorn - 13.12.2001, Blaðsíða 18
18 FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2001 ^ácssunui.. J Listasafii Borgamess 30 ára Listaverkagjöf Hallsteins til sýnis Höfuðmynd af Hallsteini Sveinssyni eftir Ragnar Kjartanssom frá 1970. í tilefni þess að 30 ár eru liðin frá því að Listasafn Borgarness var sett á stofn stendur nú yfir sýning í and- dyri Safnahúss Borgarfjarðar á fá- einum perlum úr listaverkagjöf Hallsteins Sveinssonar. Verkin eru eftir nokkra af okkar ástsælustu listamönnum og státa þau af sér- stöku handbragði Hallsteins í myndarömmunum. Hallsteinn fæddist 7. júlí 1903 á Kolsstöðum í Miðdölum, níundi í röðinni af ellefu systkinum, en árið 1925 flutti hann ásamt foreldrum sínum í Eskiholt í Borgarhreppi í Mýrasýslu. Átján árum síðar fór hann til Reykjavíkur og dvaldi hjá systur sinni þar til hann keypti Háa- leitisbraut 45, sem hann nefndi Uppland. Á árunum 1970 og 1971 varð það að ráði að Hallsteinn flutt- ist upp í Borgarnes á Dvalarheimili aldraðra þar, sem þá var nýlega byggt. Hallsteinn lést 21. nóvember 1995, 92 ára að aldri. Hallsteinn lagði stund á smíðar, bæði í Borgarfnði og í Reykjavík, og var sem allt léki í höndunum á honum. Hann smíðaði mikið af römmum fýrir listamenn og ósjald- an fékk hann málverk í staðinn. Hann fór að safna málverkum, að- allega eftir samtímamálara, sem hann hafði trú á og átti hann orðið mjög gott safn listaverka eftir marga okkar þekkmstu og ástsæl- ustu listamenn þegar hann gaf Borgarnesbæ safnið. Hafsteinn Austmann segir í minningarorðum um Hallstein að hann hafi m.a. ver- ið hagleiksmaður, rammasmiður og lífskúnstner: „Hann smíðaði ramma fyrir flesta málara, sem tóku listina alvarlega í dentíð og vildi þá oftar en ekki fá í staðinn myndverk. Æi, þetta er svo ljótt hjá mér. Þú gemr látið mig hafa þetta skiterí í staðinn. Þetta era svo vondar myndir hjá þér hvort sem er. Þetta var viðkvæðið og glettnin blikaði í augum gamla mannsins." Safn að gjöf Hallsteinn hafði aðstöðu í kjall- ara Dvalarheimilis aldraðra í Borg- arnesi og þar smíðaði hann ramma, aska, kismr, borð og ýmislegt fleira. Listin átti allan hans hug; hann var mikill velunnari Listasafns Borgar- ness og lét hann sig flest varða sem vék að listmenningu í héraðinu, m.a. beitti hann sér fyrir því að láta steypa Sonatorrek Ásmundar bróð- ur síns í varanlegt efhi og koma því upp á Borg á Mýram. Einnig var hann hjálparhella nafna síns og frænda, Hallsteins Sigurðs- sonar, við að koma upp verkum eftir hann í Borgarfirðin- um. Listasafn Borgar- ness var stofnað árið 1971 er Hallsteinn færði Borgarnes- hreppi hundrað lista- verk að gjöf. Bjarni Bachmann, fyrrver- andi safnvörður, átti mestan þátt í því að Borgarnesbær hlaut höfðinglega gjöf Hallsteins. Á haust- mánuðum 1970 vakn- aði áhugi Bjarna á að fá safnið til Borgar- ness og þegar hann fann góðan hljóm- grann að því máli fór hann á fund Hall- steins í Reykjavík. Hallsteinn ákvað af rausn sinni að afhenda Borgar- nesbæ safnið og þáði þess í stað ó- keypis uppihald og vinnuaðstöðu á nýbyggðu Dvalarheimili aldraðra í Borgamesi, sem hreppsnefnd vildi veita honum sem lítinn þakklætis- vott fyrir ómetanlega gjöf. Þetta var síðan fastmælum bundið 22. janúar 1971. Þann 19. febrúar fór formleg afhending fram og 103 listaverkum komið fyrir í Safnahús- inu í Borgarnesi. Listasafn Borgar- ness hefur æ síðan verið í stöðugum vexti. Hallsteinn Sveinsson jók við safnið á meðan hann lifði með lista- verkagjöfum og lætur nærri að alls hafi hann gefið um 200 verk auk þess sem hann veitti safhinu vegleg- an fjárstuðning. I tímans rás hafa fleiri gjafir borist safninu auk þess sem hreppurinn hefur fjárfest í ein- stökum verkum og er nú svo komið að listaverk í eigu Listasafns Borg- arness era óðum að nálgast sjötta hundraðið. Safnahús Borgarfjarðar er til húsa að Bjarnarbraut 4-6 Borgar- nesi, og verður sýningin opin á opnunartíma þess, alla virka daga frá kl. 13-18 og þriðjudags- og fimmtudagskvöld til kl. 20. smh Omenntaðir foreldrar og sælgætisát vænlegt til árangurs! Niðurstöður úr sálfræðirannsóknum nemenda í FJL4 Fjölbrautaskólinn á Akranesi Breyting á opnunartíme 'l < fígætu viðskiptavinir Frá og með næstu áramótum hættum við að hafa opið síðdegis á fimmtudögum á milli kl. 17 og 18 Um leið óskum við viðskiptavinum okkar gleðilegra jólahátíðar og farsœldar á nýju ári. Þökkum viðskiptin á árinu sem er að tíða. BÚNAÐARBANKINN A K R A N E S I Nemendur sem taka áfangann Sálfræði 103 í Fjölbrautaskóla Vest- urlands hafa undanfarin ár fengið það skylduverkefni að gera ýmsar kannanir meðal samnema sinna. Á heimasíðu skólans má nú finna rannsóknaniðurstöður nemend- anna og segir þar í undirmálsgrein að þær séu fyrst og fremst birtar til skemmtunar og að þær beri ekki að taka sem stórvísindalegar sannanir. Niðurstöðurnar era mjög athyglis- verðar. Sælgæti best í óhófi! Nemendum var skipt í hópa og á- kvað einn þeirra að rannsaka hvort sælgætisát hefði áhrif á námsárang- ur. Spurningalistinn var lagður fýr- ir 60 nemendur í skólanum þar sem spurt var um meðaleinkunnir í stærðfræði, íslensku, ensku og dönsku og hversu oft í viku við- komandi borðaði sælgæti. Niður- stöðurnar reyndust vera þær að því oftar sem nemendur borðuðu sæl- gæti þeim mun betri árangri náðu þeir í viðkomandi greinum. Best stóðu þeir nemendur sig sem borð- uðu sælgæti á hverjum degi en þeir sem borðuðu það 3-4 sinnum í viku sýndu yfirleitt lélegastan námsár- angur. Skemmtanafiklar og reykingamenn Einnig var rannsakað hvort reykingamenn í skólanum hefðu lélegra sjálfsálit en þeir sem reyktu ekki og hvort skemmtanafysn og iðkun áhugamáls stuðlaði að lægri einkunnum í skólanum. I ljós kom að þeir sem reyktu höfðu áberandi minna sjálfsálit en þeir sem létu það vera og að skemmtanafíklar og þeir sem eyddu miklum tíma í sín áhugamál fá lægri einkunnir í skóla. Niðurdregnir dreifbýlisbúar Nemendur í sálfræðiáfanganum komust einnig að því að utanað- komandi nemendum líður verr í skólanum en þeim sem eiga lög- heimili á Akranesi. Gilti þá einu hvort þau vora stödd innan eða utan veggja skólans. Krökkum sem koma ffá Borgarnesi líður best af öllum utan veggja skólans en Akur- nesingum líður best af öllum innan þeirra. Pabbann firekar í partý Einum hópnum datt í hug að at- huga hvort nemendur væra ffekar mömmubörn eða pabbabörn. Nið- urstöðurnar urðu þær að bæði strákar og stelpur spyrja móður sína frekar um leyfi til einhvers en bæði kynin vildu frekar hafa pabbann með í gleðskap en mömmuna! Ann- ar hópur rannsakaði áhrif sætaraðar á námsárangur og enn einn rann- sakaði hvort börn sem ættu há- skólamenntaða foreldra væra dug- legri í skóla en þeir sem ættu lítið menntaða foreldra. I ljós kom að þeim nemendum sem eiga lítið menntaða foreldra gengur betur í skóla. Lykillinn að góðum námsárangri Á heimasíðu skólans segir: "Ef teknar era saman helstu niðurstöð- ur varðandi námsárangur er ljóst að til þess að gulltryggja sig og sinn námsferil ætti nemandi að borða nammi daglega, stunda kynlíf þrisvar í viku (hvorki oftar, né sjaldnar), sitja í næst fremstu röð eða 4. röð frá kennara, hafa nám sem helsta tómstundagaman og for- eldri má helst ekki hafa lengri menntun en grannskólapróf."

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.