Skessuhorn - 04.09.2002, Side 2
2
MIÐVTKUDAGUR 4. SEPTEMBER 2002
a&tssunu^..
2. flokkur í
góðum málum
2. flokkur karla hjá IA er á
góðri leið með að tryggja sér Is-
landsmeistaratitilinn annað árið
í röð. Eftir stórsigur á Keflavík í
gærkvöld, 10-2, þar sem Hilmir
Hjaltason fór á kostum og skor-
aði fimm mörk. Nægir strákun-
um jafiitefli í síðasta leiknum á
mánudaginn gegn Breiðablik.
Reyndar gætu þeir orðið Is-
landsmeistarar í kvöld ef liðið í
öðru sæti, FH, tapar stigum í
leik sínum í kvöld
Framtíð
Baldurs til
skoðunar
Samgönguráðherra hefur skip-
að nefnd um framtíð Breiðafjarð-
arferjunnar Baldurs.
Árið 1989 var Breiðafjarðar-
ferjan Baldur tekin í notkun og
hóf siglingar milli Brjánslækjar
og Stykkishólms með viðkomu í
Flatey. Rekstur ferjunnar var
boðinn út árið 2000 og gildir sá
samningur til ársloka 2003 með
heimild til ffamiengingar til árs-
ins 2005.
I fréttatilkynningu frá sam-
gönguráðuneytinu segir ma.:
,AIeð hliðsjón af núverandi
vegáætlun og skv. upplýsingum
Vegagerðarinnar er líklegt að
vegurinn austur Barðaströnd
verði að jaínaði vetrarfær árið
2004 og síðar.
Hlutverk ferjrmnar er og hefur
verið að þjóna byggðinni á sunn-
anverðum Vestfjörðum og í
Breiðafjarðareyjum. Vaxandi
þáttur í rekstri ferjunnar hefur
verið að sigla með ferðamenn,
sem ferðast að sumarlagi um
Snæfellsnes og Vestfirði. Hafa
þeir í auknum mæli sótt í að sigla
og njóta ferðar um Breiðafjörð
með viðkomu í Flatey, sem er að
verða umtalsverð sumarhúsa-
byggð.
Augljóst er sbr. framangreindu
að nú er rétti tíminn til þess að
fjalla um sighngar Baldurs og
leggja ffam tillögur um skipan
mála til nokkurrar framtíðar."
Nefhdina skipa Kristján Vig-
fússon, Siglingamálastofnun, for-
maður, Pétur Agústsson skip-
stjóri, Stykkishólmi, Sigfús
Jónsson ffamkvæmdastjóri Nýsi,
Reykjavík, Magnús Valur Jó-
hannsson umdæmisstjóri Vega-
gerðinni, Borgarnesi, og Eyrún
Ingibjörg Sigþórsdóttir við-
skiptaffæðingur, Tálknafirði.
GE
Aldarfjórð-
ungsafinæli
Fjölbrautaskóli Vesturlands á
Akranesi fagnar 25 ára afmæli
nú í haust. Opinber afmælisdag-
ur skólans er 12. september og
þann dag er fyrirhugað að halda
samkomu á sal skólans. Meðal
annars mun menntamálaráð-
herra heimsækja skólann að því
tilefhi. Að sögn Harðar Helga-
sonar skólastjóra er fýrirhugað
að minnast þessara tímamóta
enn ffekar í haust, meðal annars
með veglegu afmælisriti sem
kemur út á næstunni.
GE
Krafa lyn aukna tollgæslu á Grundartangahöfti
Oviðunandi ástand
segir Gísli Gíslason, hafnarstjóri Grundartangahaftiar
Á aðalfundi Samtaka Sveitarfé-
laga á Vesturlandi nú á dögunum
var samþykkt ályktun þess efnis að
skora á Dómsmálaráðherra að finna
leið til að auka löggæslu og toll-
gæslu á Grundartanga vegna auk-
innar skipaumferðar um höfnina.
Áður höfðu sveitarstjórnir Akraness
og Borgarbyggðar sent frá sér sam-
hljóðandi ályktun.
„Menn hafa verið að djöflast í
Dómsmálaráðuneytinu til að fá
tollgæsluna á Grundartangahöfn
eflda. Núverandi staða er óviðun-
andi með öllu en það hafa ekki
komið nein viðbrögð frá ráðuneyt-
inu,“ segir Gísli Gíslason, bæjar-
stjóri á Akranesi og hafharstjóri
Grundartangahafnar. Það er ótækt
að ekki skuli vera til staðar sú gæsla
sem nauðsynleg er miðað við um-
svif. Á Grundartanga koma flutn-
ingaskip að meðaltali annanhvem
dag, allt árið um kring. Þetta em
gríðarlega stór skip og það er ljóst
að einum manni er fullkomlega úti-
lokað að tryggja að ekkert fari um
höfnina sem ekki á að fara. Þannig
er staðan hinsvegar í dag að einn
maður á að sinna þessu öllu og það
er alls ekki verið að lasta hans störf,
þetta er einfaldlega orðið of um-
svifamikið starf fýrir einn mann,
sama hversu öflugur hann er,“ segir
Gísli.
Gísli telur að lítið sem ekkert
þurfi að auka kostnað til að koma
málunum í viðunandi horf. „Ef við
lítum á svæðið hér í heild þá eigum
við kröfu á að hér sé samfelld þjón-
usta en ekki svæðaskipt. Þjónustan
á að taka mið af þörfum íbúa og
vegfarenda en ekki vera bundin af
einhverjum úrelmm landamæram.
Það er ljóst að í Borgarnesi er fá-
mennt lögreglulið sem þarf að
sinna stóra svæði. Hjá lögreglunni
á Akranesi er hinsvegar svigrúm til
að sinna fleiri verkefnum. Við erum
því að tala um að hægt sé að nýta
miklu bemr þann mannafla sem til
er, bæði hvða varðar tollgæslu og
almenna löggæslu. Þetta á að vera
tiltölulega auðvelt ef menn era til-
búnir til að afhema þessa svæða-
skiptingu,“ segir Gísli.
Samvinna en
ekki sameining
Stefán Eiríksson skrifstofustjóri
Dómsmálaráðuneytisins sagði í
samtali við Skessuhorn að ekki væri
á döfinni að afnema svæðaskiptingu
milli lögreglunnar á Akranesi og í
Borgarnesi. „Þessi mál hafa verið í
skoðun um nokkurt skeið og við
eram mjög meðvituð um áhyggjur
löggæsluyfirvalda í Borgarnesi sem
telja sig þurfa á auknum mannafla
að halda og einnig um áhyggjur
þeirra sem hafa með Grundar-
tangahöfn að gera vegna tollgæsl-
unnar þar. Við eram hinsvegar ekki
að skoða beinlínis afnám umdæma-
marka. Umdæmin era afmörkuð í
lögum. Það er hinsvegar ekkert því
til fýrirstöðu að lögregluliðin vinni
mjög náið saman og sinni verkefh-
um í sameiningu. Við þekkjum slíkt
samstarf af góðu, meðal annars
milli lögregluembættanna í Kefla-
vík og á Keflavíkurflugvelli. Lög-
regluliðin á höfuðborgarsvæðinu
hafa einnig mjög góða samvinnu en
þar gerir Tetra fjarskiptakerfið alla
samvinnu mun virkari. Við bindum
því vonir við að þegar það kerfi er
komið á svæði Akraness og Borgar-
neslögreglu muni samvinna emb-
ættanna eflast og styrkjast. Fjölgun
í einstökum lögregluliðum er aftur
á móti háð ákvörðun Alþingis,"
segir Stefán. GE
Deilum innan verkalýðsfélags Akraness ekki lokið
VLFA áfrýjar úrskurði héraðsdóms
Ekkert að fela, segir formaðurinn
Hervar Gunnarsson
Vilhjálmur Birgisson
Stjórn Verkalýðsfélags Akraness
hefur áffýjað úrskurði Héraðsdóms
Vesturlands sem dæmdi VLFA til
að heimila Vilhjálmi Birgissyni,
meðstjórnanda í aðalstjórn VLFA,
aðgang að öllum bókhaldsgögnum
félagsins frá 1997-1999.
Vilhjálmur fór fram á það seint á
síðasta ári að fá aðgang að áður-
nefndum bókhaldsgögnum en
bæði formaður og félagsstjórn
höfnuðu því. Vilhjálmur ákvað því
að stefna VLFA og kvað Héraðs-
dómur Vesturlands upp fýrr-
greindan úrskurð 1 l.júní sl..
Hervar Gunnarsson, formaður
VLFA, segir ástæðuna fýrir áfrýj-
unni ekki vera þá að stjórnin hafi
eitthvað að fela. „Við teljum hins-
vegar að Héraðsdómur Vestur-
lands hafi hvorki tekið tillit til né
fjallað um meginvarnarkröfu okkar
um að félagið sé frjálst og geti tek-
ið sjálfstæðar ákvarðanir um gögn
félagsins. Málið snýst um hvernig
aðgangi að bókhaldsgögnum fé-
lagsins verði háttað í framtíðinni
og fýrst málið er komið fýrir dóm-
stóla teljum við réttast að fá end-
anlega niðurstöðu í málið.“
Eftir að stjórnin hafði tekið
ákvörðun um að áfrýja málinu kom
stjórnar- og trúnaðarráð Verka-
lýðsfélagsins saman til að fjalla um
dómsmálið. Á fundinum var borin
upp sú tillaga að áfrýja málinu ekki
„þar sem að dómurinn er skýr og
ótvíræður". Tillagan var samþykkt
með 16 atkvæðum gegn 13.
I mörgum félögum fer trúnaðar-
ráð með meira vald en stjórnin en
Hervar telur að það eigi ekki við í
þessu tilviki. „ Þetta er misjafnt
eftir félögum en ég tel það alveg
skýrt í lögum Verkalýðsfélags
Akraness að þar ber stjórn félags-
ins ábyrgð á fjármunum og eignum
þess og því heyri málið undir
stjórnina en ekki trúnaðarráðið.“
Aðspurður um hvort réttlætan-
legt væri að hætta jafnmiklu af fjár-
munum félagsins í svona mála-
rekstur vildi Hervar lítið um það
segja. „Samkvæmt mínum tölum
er kostnaðurinn kominn í um 800
þúsund krónur en þegar að úr-
skurður Hæstaréttar liggur fýrir
kemur í ljós hver endanlegur
kostnaður verður og einnig hver
mun þurfa að greiða hann. Þangað
til vil ég sem minnst tjá mig um
kostnaðarhliðina."
í trássi við vilja
meirihlutans
Vilhjálmur Birgisson er mjög
ósáttur við að svona skuli farið með
peninga félagsins og að eini til-
gangur áfrýjunarinnar skuli vera sá
að hann fái ekki aðgang að gögnum
félagsins.Vilhjálmur segir að nú
þegar sé kostnaðurinn orðinn um
900 þúsund og ef fram heldur sem
horfir þá verði hann vel á aðra
milljón þegar upp verður staðið.
„Trúnaðarráðið hefur samþykkt á
fundi sínum að það vilji að stjórn-
armenn hafi aðgang að bókhalds-
gögnum félagsins og sinni þar með
lögbundinni eftirlitskyldu sinni. Eg
tel mig einungis hafa verið að
reyna að sinna þeim skyldum sem
stjórnarmanni þegar að ég fór ffam
á að sjá umrædd gögn. Eg hef lagt
fram og sannað að félagið hefur
Kosið2.
nóvember
Bæjarstjórn Borgarbyggðar
hefur ákveðið að boða til sveit-
arstjórnarkosninga þann 2. nóv-
ember n.k. en sem kunnugt er
úrskurðaði félagsmálaráðuneyt-
ið kosningamar þann 25. maí s.l.
ógildar. Ekki er Ijóst hvort mála-
ferlum vegna ógildingar kosn-
inganna verður lokið fýrir kjör-
dag. GE
Runólfur
áfram
Runólfiir Agústsson
Runólfur Ágústsson, rektor
Viðskiptaháskólans á Bifröst til-
kynnti við setningu háskólans
síðastliðinn sunnudag að hann
hyggðist gefa kost á sér annað
ráðningartímabil rektors við
skólann en embættið verður á
næstu dögum auglýst laust til
umsóknar.
Rektor Viðskiptaháskólans er
ráðinn til 4 ára í senn og er Há-
skólastjóm heimilt að endurráða
í stöðuna einu sinni þannig að
sami maður getur mest setið í
embætti í 8 ár. Ráðningarferlið
felur í sér hæfnismat og skoð-
anakannanir meðal nemenda,
starfsfólks og útskrifaðra
Biffestinga.
GE
orðið af vel á annan tug milljóna og
því tel ég fulla ástæðu til að skoða
umrædd gögn nánar. I dómsorði
Héraðsdóms Vesturlands segir að
ég vilji kanna hvort um viðlíka van-
rækslu sé í bókhaldi fýrri ára eins
og hafi verið í ávöxtunarmálum fé-
lagsins. Af þeim orðum má sjá að
Héraðsdómur Vesturlands er sam-
mála mér í því að um vanrækslu
hafi verið að ræða.“
Vdhjálmur er fullviss um að fé-
lagsmenn VLFA hefðu ekki kosið
að áfrýja málinu.
„Eg tel að hinn almenni félags-
maður sé ekki hlynntur því að
áfrýja málinu til Hæstaréttar. Á
bakvið þessa áfrýjun standa 8
stjórnarmenn sem ég tel að endur-
spegli ekki vilja hins almenna fé-
lagsmanns. Við fóram fram á fé-
lagsfund þar sem að þessi mál á-
samt öðram yrðu rædd en formað-
ur félagsins hafnaði því. Eg vil
meina að það hefði verið hið eina
rétta, þ.e. að láta hinn almenna fé-
lagsmann taka ákvörðun í svona
veigamiklu máli. Eg vil ítreka það
að í dómi héraðsdóms kemur ffam
að dómara sýnist að störf mín fýrir
félagið hafi orðið því til góðs, t.d.
sé ávöxtun á sjóðum þess mun betri
en áður.“
Ekki hefur verið ákveðið hvenær
málið verður tekið fýrir hjá Hæsta-
rétti en það ætti að skýrast á næstu
vikum.
HJH