Skessuhorn - 04.09.2002, Qupperneq 4
4
MIÐVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER 2002
j^Munú^
WWW.SKESSUHORN.IS
Borgarnesi: Borgarbraut 23 Sími: 431 5040
Fax: 431 5041
Akronesi: Kirkjubraut 3 Sími: 431 4222
SKRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-16 ALLA VIRKA DAGA
Útgefandi: Tíðindamenn ehf 431 5040
Ritstjóri og óbm: Gísli Einarsson 892 4098
Blaðamenn: Sigrún Ósk Kristjónsdóttir 862 1310
Sigurður Mór Harðorson 865 9589
Auglýsingar: Hjörtur J. Hjartarson 864 3228
Prófarkalestur: Anna S. Einarsdóttir
Umbrot: Guðrún Björk Friðriksdóttir
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins
skessuhorn@skessuhorn.is
ritstjori@skessuborn.is
sigrun@skessuhorn.is
smh@skessuhorn.is
hjortur@skessuhorn.is
gudrun@skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út allo fimmtudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14:00 ú þriðjudögum.
Auglýsendum er bent ó að panta auglýsingaplóss tímanlego.
Blaðið er gefið út í 4.000 eintökum og selt til óskrifendo oa í lausosölu.
Askriftarverð er 850 krónur með vsk. ú mónuði en krónur 750 sé greitt með greiðslukorti. Verð
í lousasölu er 250 kr.
431 5040
Langt nef
frá Noregi
Gísli Einarsson,
ritstjóri.
Það má teljast merkilegt að þrátt fyrir að Islenska þjóðin sé ekki
þekkt fyrir langlundargeð að aldrei skuli hana skorta umburðarlyndi
í garð Norðmanna sem eiga svosem ekkert gott af okkur skilið. Fyrst
skal þar telja að upphaflega hröktumst við hingað út á skerið frá Nor-
egi vegna ofríkis og yfirgangs Norðmanna. (Við vorum reyndar
Norðmenn í þá daga en það bætir þeirra málstað ekki neitt). Það var
þó ekki svo að þeir gætu látið þar við sitja því alla tíð síðan hafa þeir
skipulega reitt af okkur fjaðrimar þrátt fyrir að þeir eigi okkur með-
al annars að þakka að þeir eiga einhverja fortíð. Norðmenn voru
nefnilega ólæsir og óskrifandi þar til fyrir stuttu og því tóku Islensk-
ir blaðamenn að sér að rita skjall og skrum um þeirra helstu kappa og
konunga. I þakklætisskyni hafa Norðmenn viljað eigna sér Snorra
Sturluson og ýmsa aðra hafa þeir ásælst í gegnum tíðina með frekju
og óbilgirni. Þar með talinn er þorskurinn og flesta fótboltadrengi
sem eitthvað hafa kunnað fyrir sér í spyrnum og spörkum hafa Norð-
menn hirt af okkur og gert að sínum eigin.
Enn og aftur hafa Norðmenn okkur að fíflum og öðm illgresi .
Undanfarin misseri hefur íslenska þjóðin haft með höndum það
vandasama en verðuga verkefni að fóstra þekkta kvikmyndastjörnu
sem hér hefur dvalið í endurhæfingu og útvömun. Þetta er að sjálf-
sögðu rengisbáknið Keikó sem lifað hefur í velllystingum praktug-
lega í í Vestmannaeyjum.
Tilgangur Keikós með dvöl sinni í Vestmannaeyjum var fyrst og
fremst sá að draga sig í hlé frá skarkala heimsins og gerast villtur á
nýjan leik. Hans markmið var með öðmm orðum að villast með því
að ganga í gegnum flókið aftamningarferli sem kostað hefur þó
nokkurn slatta af peningum.
Okkar umbun átti að vera hlutdeild í frægð kappans en búist var
við að aðdáendur hans myndu flykkjast til Vestmannaeyja í milljóna-
tali til að berja ferlíkið augum. Ur hæfilegri fjarlægð að sjálfsögðu því
ekki mátti raska ró Keikós þar sem hann stundaði innhverfa íhugun
og undirbjó sig þannig andlega undir framtíðina úti í ballarhafi.
Eitthvað reyndist frægðarsól stjörnunnar hinsvegar hafa hnigið og
ferðaþjónustuaðilar í Vestmannaeyjum sem ætluðu að gera sér mat
úr Keikó. (I óeiginlegri merkingu) bíða enn efdr gróðanum. Margir
töldu sig því hafa keypt hvalinn í sekknum.
Nú hefur frægðarsól Keikós hinsvegar risið á ný en þá bregður svo
við að hann er ekki lengur í Vestmannaeyjum. Eftir að búið var að
flytja hann með flugi hingað til lands og fóstra hér í nokkur misseri
með ærnum tilkostnaði þá gerir hann sér lítið fyrir og syndir sjálfur
til Noregs eins og ekkert sé sjálfsagðara. Norðmenn fengu Keikó
semsagt gratís og nota hann nú sem leiktæki fyrir börn á baðströnd-
um. Ekki nóg með að þeir fái frítt það sem við höfum borgað fyrir
dýrum dómum heldur gera þeir lítið úr aftamningarkunnáttu okkar
með því að leika sér að skepnunni sem fyrir vikið virðist meira tam-
in en nokkru sinni fyrr.
Að gefiiu tilefni vil ég skjóta því hér inn, til að taka af öll tvímæli,
að mér er alls ekki illa við hvali þrátt fyrir að einhverjir kunni að hafa
túlkað fyrri skrif mín um hvalræði á þann veg. Hvalir eru að mínu
áliti ágætir inn við beinið. Sérstaklega þó inn við beinið því þar er
ketið best.
Hvað sem því líður er það allavega ljóst að aftamingar hvala verða
seint arðbær atvinnugrein hér á landi. Það er því sptu-ning hvort við
ættum ekki að halda okkur við það sem við gerum best, að úrbeina
hvalina í stað þess að aftemja þá.
Gísli Einarsson, hvalavinur.
Viðskiptaháskólinn
settur í nýju skólahúsi
Frá kennslu í hinum nýja sal í morgun.
Viðskiptaháskólinn á Bifröst var í hluta hins nýja skólahúsnæðis en
settur síðastliðinn sunnudag í sal gert er ráð fyrir að framkvæmdum
nýs skólahúss. Kennsla er nú hafin ljúki í næsta mánuði.
Sögukort Vesturlands
gefið út
I tilefni tuttugu ára afmcelis ferðamálasamtaka Vesturlands sem minnst var síðastliðið
vor var ráðist í að gefa út veglegt sögukort, Sögakort Vesturlands sem sett var í dreyf-
ingu jýrir skömmu. A kortinu eru teikningar af sögufrægum köppum sem tengjast Vest-
urlandi og völdum sögustöðum innan kj'ördcemisins. 1 tilefni af útgáfunni var Sturla
Böðvarssyni, samgönguráðherra afhent eintak afkortinu þegar hann heimsótti Upplýs-
inga og kynningamiðstöð Vesturlands í morgun. Mynd: HJH
Frá opnun Opins skógar í Daníelsltmdi.
Opinn skógur í Daníelslimdi
Þann 17. ágúst síðasdiðinn var
hleypt af stokkunum stóru verkefni
á vegum Skógræktarfélags íslands
undir nafhinu „Opinn skógur“.
Verkefnið er fólgið í því að gera
nýskóga sem gróðursettir hafa
verið undanfarna tvo áratugi víðs-
vegar um landið, aðgengileg útí-
vistarsvæði fyrir almenning með
bættu aðgengi, grisjun, stígagerð
og merkingum. Samkvæmt upp-
lýsingum frá Skógaræktarfélagi Is-
lands er á ferðinni eitt stærsta
verkefni sem félagið hefur ráðist í
og mun átak þetta standa í fimm ár
að þessu sinni.
Fyrsta svæðið sem opnað var al-
menningi í þessari mynd er Daní-
elslundur, skammt frá Svigna-
skarði, í Borgarfirði og í kjölfarið
fylgja síðan fleiri svæði víðsvegar
um landið.
Fréttatilkynning frá Gísla
í kjölfar ákvörðunar Alþingis um
breytingu á kjördæmamörkum,
blasir við sú staðreynd að Vest-
fjarðakjördæmi, Norðurlandskjör-
dæmi- vestra og Vesturlandskjör-
dæmi verði sameinuð í eitt kjör-
dæmi; Norðvesturkjördæmi.
Samfara þessari breytingu fækkar
þingmönnum á svæðinu um 5 tíl að
jafna vægi atkvæða , þetta þýðir í
raun fjölgun þingmanna á Stór-
Reykjavíkursvæðinu.
Hvað sem segja má um þessa
breytingu þá er hún staðreynd.
Norðvesturkjördæmi er mjög víð-
feðmt (liðlega 2000 km), sumsstað-
ar ógreitt yfirferðar og dreifbýlt.
Eftír að hafa ferðast um og rætt
við fjölda einstaklinga um allt hið
nýja Norðvesturkjördæmi hef ég
tekið þá ákvörðun að sækjast eftir
að verða í framboði fyrir Samfylk-
inguna í hinu nýja kjördæmi.
Þessi fréttatilkynning er send út
til staðfestingar, og í samræmi við
samtöl sem ég hef átt við íbúa, vini,
kunningja og tengslafólk á svæðinu
sem verður Norðvesturkjördæmi.
Gísli S. Einarsson þingmaður
Samfylkingarinnar
Baldur
leysir
Herjólf af
Þann 9. september mun
Breiðafjarðarferjan Baldur, sem
siglir reglulega milli Stykkis-
hólms, Brjánslæks og Flateyjar,
fara í slipp í Njarðvík. Að sögn
Péturs Agústssonar, útgerðar-
stjóra Sæferða ehf. sem er rekstr-
araðili Baldurs, þá verður skipið í
vikutíma í slipp en mun að svo
búnu leysa Herjólf af í siglingum
milli lands og Vestmannaeyja um
tveggja vikna skeið. á siglingar-
leið hans. „Þetta er nú engin ós-
kastaða fyrir okkur en þar sem
við erum undirverktakar hjá
Vegagerðinni, sem á Baldur, þá
er það innifalið í samningi okkar
að þeir geti mælst til þess að við
förum í svona verkefni. Þetta
kemur sér sérstaklega illa fyrir
fastakúnna okkar í Flatey og
starfsmenn Baldurs sem flestir
eru búsettir í Stykkishólmi," seg-
ir Pétur. Hann bætir því við að til
standi að Eyjaferðir muni samt
sem áður halda úti ferðum
þrisvar í viku á öðrum bátum fyr-
irtækisins en ekki verður hægt að
ferja bifreíðar með þeim. A þess-
um árstíma siglir Baldur alla
jafha daglega milli áfangastað-
anna.
Pétur segir að umskiptin ættu
ekki að hafa nein sérstök fjár-
hagsleg áhrif fyrir Sæferðir.
Á fundi hreppsnefndar
Tálknafjarðarhrepps á dögunum
var hvatt til þess að Vegagerðin
sæi til þess að þjóðvegur 61, milli
Brjánslækjar og Norðurárdals,
verði í sem bestu ásigkomulagi
meðan ferjan Baldur er fjarver-
andi vegna viðhalds og afleys-
ingaverkefina. smh
Kvöld-
ganga
Ungmennasamband Borgar-
fjarðar hvetur til næst síðustu
kvöldgöngunnar í sumar,
fimmtudagskvöldið 5. septem-
ber klukkan 19:30. Markmiðið
er að fara í góðan göngutúr fyr-
ir svefninn og fræðast í leiðinni
um skógræktarsvæði Jámblend-
isins á Grandartanga. Umsjón-
armaður göngunnar er Sigrún
Pálsdóttir. Gert er ráð fyrir að
hittast við Mörk, sem er uppi í
hlíðinni til móts við afleggjar-
ann að Grandartanga. Mætum
öll og kynnum okkur skógrækt-
ina, en munið að fara varlega á
þjóðvegi nr. 1 og notið steftiu-
Ijósin í tæka tíð!
Fréttatilkynning)
S. Einarssyni
Gísli S. Einarsson