Skessuhorn - 04.09.2002, Page 5
MIÐVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER 2002
5
^ttCasunu..
Deilt um smalaskyldu á jörðum í
Borgarbyggð
Osanngjarnt að greiða fyrir að hafa fé í hagagöngu frá
öðrum segir Vilhjálmur Diðriksson
Svo gæti farið að látið verði
reyna á smalaskyldu jarðeigenda
íyrir dómi innan tíðar en upp er
komið deilumál innan Borgar-
byggðar um hvort landeigendum,
sem telja sig hafa orðið fyrir á-
gangi búfjár frá afrétti, beri að
smala sín lönd sjálfir.
Forsaga málsins er sú að
síðastliðið haust réði sveit-
arfélagið menn til að smala
jarðirnar Elermundarstaði
og Lund í Þverárhlíð þar
sem smalaskyldu var ekki
sinnt af hálfu eigenda jarð-
anna og var landeigendum
síðan sendur reikningur
fyrir smöluninni að upp-
hæð tuttugu og sjö þúsund
krónur. Landeigendur
höfðu ítrekað kvartað yfir
ágangi á jörðum sínum af
völdum sauðfjár af afrétti
Þverhlíðinga sem liggur að
jörðunum. Þeir ákváðu að
greiða ekki reikninginn
fyrir smöluninni en sendu
þess í stað reikning til
sveitarfélagsins. fyrir haga-
göngu fyrir 400 fjár fyrir
sumarið 2001 að upphæð
162 þúsund krónur. Reikn-
ingurinn var ekki greiddur
heldur endursendur jarðeigendun-
um. I ágúst síðastliðnum sendu
jarðeigendurnir síðan reikninginn
aftur til sveitarfélagsins en í þetta
sinn til upprekstrarnefndar Þver-
árhlíðarafréttar. Málið var tekið
fyrir á fundi nefndarinnar þann 24.
ágúst síðastliðinn og var því beint
til bæjarráðs-og eða bæjarstjórnar
að sátt næðist og að lausn um
smölun á umræddum jörðum næð-
ist fyrir göngur í haust. Bæjarráð
vísaði málinu hinsvegar til land-
búnaðarnefndar á fundi sínum í
síðustu viku.
„Prinsippmál“
Hermundarstaðir eru í eigu
Diðriks Vilhjálmssonar á Helga-
vatni en Lundur er í eigu Einars
Sigurðssonar. Vilhjálmur Diðriks-
son á Helgavatni sagði í samtali
við Skessuhorn í gær að landeig-
endur væru staðráðnir í að láta á
málið reyna fyrir dómi ef þess
þyrfti með.
„Afréttargirðingin hefur verið í
ólagi og gífurlegur ágangur vegna
þessa. Við gerðum bæjaryfirvöld-
um grein fyrir því með bréfi í
fyrrasumar og lögðum til að girð-
ingin yrði löguð eða að bærinn léti
smala landið. A þeim forsendum
neituðum við að smala síðasta
haust. Það var hinsvegar frekar lít-
ið gert úr þessum ágangi en þegar
sveitarfélagið lét smala í október
þá voru á þessum jörðum á fimmta
hundrað kindur og það hlýtur að
teljast verulegur ágangur. I fram-
haldi af því var okkur sendur
reikningur og það finnst okkur
mjög ósanngjarnt. Þetta mál snýst
ekki um peninga heldur er þetta
„prinsippmál" að við séum ekki
sjálfir að greiða fyrir að hafa fé í
hagagöngu fyrir aðra. Sú krafa
stenst ekki og við erum tilbúnir í
málaferli ef á þarf að halda.Við
hefðum látið kjurt liggja þrátt fyr-
ir áganginn ef menn hefðu bara
smalað þessu fé og látið þar við
sitja en okkur finnst það ófor-
skammað að senda okkur síðan
reikninginn.“
Vilhjálmur segir að reikingurinn
fyrir hagagönguna sé byggður á
mjög sanngjörnum forsendum.
„Við fórum einfaldlega í handbók
bænda og fundum út hvað meðal
ær þarf margar fóðureiningar og
verðlögðum þær miðað við mark-
aðsverð á heyi. Þess má geta að við
tókum mið af viðhaldsfóðri og því
er þetta mjög í lægri kantinum.
Það má eiginlega segja að þetta sé
kynningarverð," segir Vilhjálmur.
Fordæmisgildi
Sigurjón Jóhannsson dreifbýlis-
fulltrúi Borgarbyggðar segir nauð-
synlegt að fá bom í málið vegna
fordæmisgildis. „Ef sveitarfélagið
kostar smalamennsku á þessum
jörðum koma aðrir á eftir. Lögin
eru hinsvegar skýr varðandi það að
sveitarfélaginu beri að smala á
kostnað landeigenda ef smalaskyldu
er ekki sinnt. Einnig varðandi þá
kvöð á jörðum að landeiganda beri
að smala landið svo oft sem sveitar-
stjórn ákveður. Sveitarfélaginu ber
hinsvegar ekki að greiða kosmað
fyrir beit þar sem hinir og þessir
eiga féð,“ segir Sigurjón.
GE
Tillaga aö breytingu á deiliskipulagi hafnarsvœöisins
á Crundartanga, Borgarfiröi.
Hreppsnefnd Skilmannahrepps auglýsir hér meb tillögu ab breytingu á
deiliskipulagi hafnarsvæöisins á Grundartanga samkvæmt 25. gr. Skipulags-
og byggingarlaga nr 73/1997.
Breytingin felst í því ab lóbamörk og lóbastærbir lóba 2,4 og 6 á hafnarsvæbinu
breytast.
Breytingartillagan verbur til sýnis á Hreppsskrifstofunni ab Hagamel 16,
Skilmannahreppi á skrifstofutímum og hins vegar á Teiknistofu Magnúsar
H. Ólafssonar arkitekts, Merkigerbi 18, Akranesi alla virka daga frá kl. 10:00
- 16:00 frá 6. september 2002 til og meb 4. október 2002.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuni ab gæta er hér meb gefinn kostur á ab
gera athugasemdir vib breytingartillöguna. Frestur til ab skila inn skriflegum
athugasemdum er til kl 16:00 föstudaginn 18. október 2002 og skal skila
þeim til Hreppsskrifstofu Hvalfjarbarstrandarhrepps, Hlöbum,
Hvalfjarbarstrandarhreppi, 301 Akranes. Hver sá sem eigi gerir athugasemd
vib breytingartillöguna fyrir tilskilinn frest telst samþykkur henni.
Oddviti Skilmannahrepps.
ágúst - september
Þú kemur með jjórar sœngur í hreinsun og
| borgar jyrir þrjár
I Ný teppahreinsivél til útleigu jyrir heimili,
fráhœr hreinsiejhi afýmsum gerðum
Efnalaugin Múlakot ehf.
Borgarbraut 55
310 Borgarnesi
Sími 4371930
Þakkir
Sendi öllum þeim sem glöddu mig
á afmælisdegi mínum 24. ágúst
s.l. innilegar þakkir fyrir hlýhug
og rausnarskap í minn garð og
fjölskyldu minnar.
Magnús B. Jónsson
Hvanneyri
70 áiHi
Sjöfn tekur á móti gestum
í Félagsbæ laugardaginn
7. sept. kl. 1 9-24
Barnaveisla verður
sunnudaginn 8. sept.
kl 14-17 á sama stað
t
Alúðarþakkir sendum við öllum þeim sem sýndu
okkur samúð, hlýhug og velvilja vegna andláts „ •» ''&K
og útfarar ástkærrar dóttur okkar, systur og
barnabarns. 2 i
Unnar Helgu Bjarnadóttur
Borgarvík 12, Borgarnesi
Guðrún Kristjánsdóttir Bjarni Kristinn Þorsteinsson
Þorgerður Erla Bjarnadóttir
Sigríður Aðalsteinsdóttir Þorsteinn Bjarnason
María Lovísa Eðvarðsdóttir