Skessuhorn - 10.03.2004, Blaðsíða 8
MIÐVIKUDAGUR 10. MARS 2004
^ÍHillUkj
INGI TRYGG VASON hdl.
lögg. fasteigna- og skipasali
/nrzj
FASTEIGNIBORGARNESI
GUNNLAUGSGATA 14, Borgarnesi.
íbúð á neðri hæð í
tvíbýlishúsi, 83 ferm.
Gangur, stofa og tvö
herbergi parketlögð.
Eldhús með dúkflísum
á gólfi, eldri máluð
viðarinnr. Baðherb.
nýlega endurnýjað, gólf flísalagt og flísaplötur á
veggjum, ljós viðarinnr., kerlaug/sturta. Búr.
Sérgeymsla og sameiginl. geymsla og þvottahús.
Góð staðsetning.
Verð: 7.700.000.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu.
Ingi Tryggvason hdl. löggiltur fasteigna- og skipasali
Borgarbraut 61, 310 Borgarnes,
s. 437 1700, 860 2181, fax 4371017,
netfang: lit@isholf.is veffang: simnet.is/lit
V____________________________________________________
J
Endurreisn Englendingavíkur!
1 Hollvinasamtök Englendingavíkur
I óska eftir sjálfboðaliðum við að
1 rifa efni innan úr gamla
sláturhúsinu við Brákarsund. Hafist
verður handa klukkan 8 á
laugardagsmorgun og unnið frameftir
degi. Öll aðstoð vel þegin.
LBH með háskólanám í skógrækt
Enn eykst fjölbreytni í
námsframboði hjá Land-
búnaðarháskólanum á
Hvanneyri. Næsta haust
mun skólinn bjóða upp á
þriggja ára BS nám í
skógrækt og þar með
verður í fyrsta sinn hægt
að nema skógrækt á há-
skólastigi hér á landi.
Undirbúningur hefur
staðið yfir um nokkurt
skeið í góðri samvinnu
við fagaðila í starfsgrein-
inni. Námið verður fjölbreytt
með áherslu á náttúruvísindi,
tækni og rekstrargreinar auk
sérgreina skógræktarinnar þar
sem aðaláherslan verður að að-
laga námið að íslenskum veru-
leika.
Nú stunda 170 nemendur
Síðastliðinn miðvikudag var formiega afhent ný sjúkrabifreið Snæfells-
bæjardeildar Rauðakorss íslands. Af því tilefni bauð deildin bæjarbú-
um að skoða bifreiðina og þiggja veitingar. GE
háskólanám við
LBH. Það hefur ver-
ið ör fjölgun nem-
enda við skólann síð-
ustu misserin og er
ekkert sem bendir til
annars en svo verði
áfram. Með því að
bjóða uppá skóg-
ræktarnám er há-
skólanám í landbún-
aði og landnýtingu
styrkt enn frekar og
færist nær því sem
þekkist í nágrannalöndunum.
Háp
Hólmari
vinnur
söngvakeppni
Elísa S Vilbergsdóttir, úr
Stykkishólmi, sem stundar
mastersnám í söng við
Westminster Choir Collage
í Princeton í New Jersey, tók
nýverið þátt í söngkeppni
milli tónlistarskóla á austur-
strönd Bandaríkjanna. Ljöldi
tónlistarmanna tók þátt í
keppninni sem stóð í þrjá
daga og stóð Elísa uppi sem
sigurvegari.
(Stykkishólmspósturinn
sagðifrá)
Síðastiiðið föstudagskvöid var haldin Borgfirðingagleði á Brodway í Reykjavík. Þar var boðið upp á fjöl-
breytta dagskrá úr héraði og stigu þar á stokk bæði brottfluttir, ófluttir og nýfluttir Borgfirðingar. Meðal ann-
ars komu fram Freyjukórinn, Söngbræður, danshópur úr Borgarfirði, Jóhann Sigurðarson leikari og fleiri.
Auglýsing um svœðaskipulag og deiliskipulag í
Innri-Akraneshreppi Borgarfjarðarsýslu.
Samkvæmt ákvæðum 18. og 25. gr. skipulags-og byggingarlaga nr. 73/1997 er hér
með auglýst óveruleg breyting á svæðaskipulagi sunnan Skarðsheiðar 1992-2012.
Gert er ráð fyrir 4500 m2 landsvæði fyrir einbýlishús í landi Ytra-Hólms 1. Innri-
Akraneshreppur tekur að sér að bæta það tjón sem einstaklingar kynnu að verða
fyrir við skipulagsbreytinguna.
Einnig er lýst eftir athugasemdum við tillögu að deiliskipulagi fyrir 3 einbýlishús
í landi Ytra-Hólms 1. Tillagan nær til 3ja lóða fyrir eitt íbúðarhús og bílgeymslu
l á hverri lóð, ásamt aðkomuvegi.
f Tillagan ásamt byggingar- og skipulagsskilmálum liggur frammi á skrifstofu
I oddvita, Miðgarði frá 12. mars til 9. apríl 2004 á venjulegum skrifstofutíma.
5 Athugasemdum skal skila fyrir 23. aprrl 2004 og skulu þær vera skriflegar.
Skipulags- og byggingarfulltrúi.