Skessuhorn - 31.03.2004, Blaðsíða 7
^ataaunui..
MIÐVIKUDAGUR 31.MARS 2004
7
Þak íþróttahúsins
stórskemmt eftir tjaldhæla
Hið glæsilega íþróttahús Snæfellsbæjar í Ólafsvík
er stórskemmt eftir að þakið hefur verið nýtt sem
tjaldstæði.
Snæfellsbæingar vora að von-
um ekki kátir þegar í fjós kom að
þak á hluta íþróttahússins í
Olafsvik var farið að leka en ekld
era nema rúm þrjú ár síðan hús-
ið var tekið í notkun. Þakið sem
um ræðir er yfir inngangi og
búningsklefum hússins. Þakið er
tyrft og í sömu hæð og brekkan
ofan við íþróttahúsið.
Bæjaryfirvöld í Snæfellsbæ
kröfðust þess að verktakinn sem
sá um framkvæmdirnar skoðaði
húsið, enda lék grunur á að lek-
inn stafaði af galla í ífágangi á
þakinu. Þá kom hið óvænta í ljós
að þakdúkurinn var allur í göt-
um eftir tjaldhæla. Þakið á í-
þróttahúsinu virðist hafa verið
vinsælt sem
tjaldstæði enda
vel gróinn og
sléttur blettur.
Ferðmenn, og
reyndar heima-
menn einnig,
virðast hinsveg-
ar ekki hafa gert
sér grein fyrir
hversu dýr gist-
ing þetta væri,
þ.e.a.s. fyrir bæjarfélagið.
Að sögn Kristins Jónassonar
bæjarstjóra Snæfellsbæjar eru
um stórtjón að ræða fyrir bæjar-
stjóð. „Ef við ætlum að koma í
veg fyrir að þetta gerist aftur þá
er lausnin sennilega sú að hellu-
leggja þakið. Þá er heildarkostn-
aðurinn á þriðju milljón þannig
að þetta er mikið tjón. Við eram
samt ánægð með að hafa fundið
orsök lekans þótt þetta hafi ekki
verið ánægjuleg niðurstaða,"
segir Kristinn.
Vilja virðisaukaskattmn burt
Stjórn Verkalýðsfélags Akra-
ness samþykkti eftirfarandi á-
lyktun, um gjaldtöku í Hval-
íjarðargöngum, á fundi sínum í
síðustu viku.
„Stjórn Verkalýðsfélags Akra-
ness skorar á Ríkisstjórn Islands
að fella niður virðisaukaskatt af
veggjaldi í Hvalijarðagöngum,
sem gæti leitt strax til 14%
lækkunar á veggjaldi.
Stjórn Verkalýðsfélags Akra-
ness vill minna á að samgöngu-
ráðherra sagði í utandag-
skrárumræðum á Alþingi í des-
ember 2003 að ríkisstjórnin
steíndi á að lækka virðisauka-
skatt á veggjald í Hvalfjarða-
göngum, og í máli hans kom
líka fram að það kæmi vel til
greina að ríkið tælá á sig hluta af
tryggingum ganganna.
Verkalýðsfélags Akraness vill
benda á hve gríðarlegt hags-
munamál þetta er fyrir Akur-
nesinga, en í skýrslu sem Vega-
gerð ríkisins lét gera í október
2002 kom fram að um fimmti
hver bíl sem fór í gegnum göng-
in eða 18% hefði komið frá
Akranesi.
Stjórn Verkalýðsfélags Akra-
ness skorar jafiiframt á sveitar-
stjórnir og verkalýðsfélög á
Vesturlandi að taka höndum
saman í því að fá stjórnvöld til
að afnema virðisaukaskatt á
veggjaldi, því eins og fram kom
í skýrslu vegagerðarinnar, voru
40% þeirra sem óku í gegnum
Hvalfjarðagöng búsettir á Vest-
urlandi. Því er það mikið hags-
munamál fyrir Vesturland í
heild sinni að vel takist til í
þessu máli.
Verkalýðsfélags Akraness vill
þakka þeim forsvarsmönnum
Spalar ehf. sem með elju og at-
orkusemi létu þann draum ræt-
ast að hægt væri að aka undir
Hvalfjörð. Tíminn hefur leitt
það í ljós að hér er um eina
mestu samgöngubót sem Is-
lendingar hafa orðið vitni að.
Það er mat stjórnar Verka-
lýðsfélags Akraness að þetta
framtak Spalar ehf. hafi orðið til
mikilla hagsbóta fyrir félags-
rnenn Verkalýðsfélags Akraness,
sem og aðra landsmenn.“
Bjóðum upp á marga möguleika
á fjármögnun vegna bílakaupa
Rekstrarleigu-, einkaleigu- eða lán, allt að 100%.
Vegna góðrar sölu vantar okkur bíla á staðinn.
20
BILALEIGA - BILASALA
Þjóðbraut 1 • Akranesi • Sími: 431 2622
SALA
Söluumboð fyrir B og L og Ræsi Þekking - Reynsla - Þjónusta
sölukonur til að kynna
frábæran danskan fatalista.
j Nánari upplýsingar í síma 565 3900
j eða á www.clamal.is og
[ clamal@clamal.is
Ugja] þu
cjbsrjcjjrjcju
LJr/j 'íf&ífí
Láttu okkur vita í síma
899 4098 (Gísli) og
892 2698 (Hrafnkell)
Velkomin að Hvanneyri |
-Tx
Umsóknarfrestur um háskólanám er til 10. júní og um búnaðarnám til
Fjórar námsbrautir til BS prófs
'' J
Búvísindi (BS)
Fjölbreyttinám, með áherslu á
búgárrækt, jarðrækt og bútækni áuk
margra valgreina.
Landnýting (landgræðslaj(BS)
Skipulag, nýting og umhirða lands með
áherslu á landgræðslu og náttúruvernd
við íslenskar aðstæður.
Skógrækt (BS)
Fjallað er m.a. um umhirðu og ræktun
skóga, hönnun og ræktun útivistarskóga
og búskaparskógrækt. Einnig er fjallað
um ferskvatnsnýtingu, náttúruvernd og
auðlindahagfræði.
- ; - - -
Umhverfisskipulag
(landslagsarkítektúr) (BS)
Námið er fyrri hluti náms í
landslagsarkítektúr og öðrum skipulags-
eða umhverfisfræðum.
Kandidatsnám
- meistaranám (MS)
Boðið er upp á eins árs viðbótarnám og
rannsóknapjálfun til kandidatsprófs í
búvísindum og landnýtingu að loknu
BS námi.
Einnig meistaranám til 60 eininga í
búvísindum og landnýtingu.
Inntökuskilyrði er BS-gráða í búvísindum,
landnýtingu, líffræði, landafræði eða
öðru sambærilegu BS-námi.
Búnaðarnám
Starfsmenntanám á framhaldsskólastigi
með áherslu á almenna náttúrufræði,
búQárrækt og nýtingu landsins.
Nemendur þurfa að vera orðiir 18 ára,
hafa lokið grunnskólaprófi og minnst
36 einingum í grunnáföngum
framhaldsskóla.
Fjarnám
Einnig er boðið upp á búnaðarnám í
fjarnámi. Námið getur jafnt náð til
einstakra námsgreina sem námsins í
heild, þannig getur hver og einn ákveðið
hversu langan tíma námið tekur.
Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri - www.hvanneyri.is