Skessuhorn


Skessuhorn - 31.03.2004, Síða 10

Skessuhorn - 31.03.2004, Síða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 31.MARS 2004 Ef ég vœri vitur Með kveðju til hennar Margrétar á I Melteignum á Akranesi. Aldrei leiðist henni blessuninni að láta ljós sitt skína á landbúnaðarmálin, þó birtan af ljósi því sé reyndar lítil en ósreykurinn til rnuna I meiri. Ein er kona orðagleiö ýmsir pistlar vitna um það, Margrét virðist raunar reið ef rœðir hún um landbúnað. Sér hún flest í sauðarlit segir bœndur versta lýð, löngum sýna lítið vit og landníðingar alla tíð. Fagnar mjög ef fœkkar þeim, finnst svo eflaust prýði þar að mega að bœjum horfa heim á huggulegar rústirnar. Ekki vantar gáfnagnótt glaðnar hugur Margrétar, trjám vill planta títt og ótt til að fela sveitirnar. Dregur nokkurn dýrðleik frá draumnum sem þœr vonir bar. Roiiuflokkar ráðast á runnagróður allstaðar. Martröð af því Margrét fœr minnst ef er á sauðarfót. Henni er ekki kindin kær með kjaft sem nagar allt að rót. Okkur hefur á því frœtt einlœg mjög í sinni trú að lambakjöt sé ekki œtt og aflögð skulu sauðfjárbú. Allir þeir sem ala fé eigi strax að hœtta því Kostafœði kjarngott sé kjúklingar og ,,svínarí. “ Það er margt sem Margrét veit miklu betur en við hin. Þó hún ekki sé úr sveit samt er víðtæk þekkingin. Viska siík ef veittist mér vœri ég af mestu náð, lögreglunni og lœknum hér líkast til að gefa ráð. Ég er sem sagt bara fyrrverandi sauð- fjárbóndi, vildi samt að ég væri ekki fyrr- verandi. Heiðnín Jónsdóttir Skarðsbraut 17 Akranesi Hugfangin af sauðkindinni. Asrán Matthíasdóttir Fjamám við Háskólann í Reykjavík Fjarnám í háskólum eykur sveigjanleika í námi og skapar mörgum möguleika til að stunda nám sem að ella gætu það ekki. Fjarnám er góður kostur fyrir einstaklinga sem vilja afla sér aukinnar mennt- unar án þess að þurfa að flytja og hætta vinnu eða vilja vera heima og sinna börnum samhliða námi. Fyrir þá sem vilja eiga möguleika á störfum í tækni- væddu samfélagi nútímans er tölvunarfræði góður kostur enda býður fagið upp á góða undirstöðumenntun sem nýt- ist vel á ýmsum sviðum. Tölv- unarfræðideild Háskólans í Reykjavík (HR) býður upp á nám í kerfisfræði (60 eining- ar) í fjarnámi. Kerfisfræðingar eiga kost á fjölbreyttum störf- um sem henta jafnt konum sem körlum, s.s. við alla þætti hugbúnaðargerðar, en einnig við önnur störf s.s. stjórnun, ráðgjöf, rannsóknir og kennslu. Fjarnámið í HR er tekið á hálfúm hraða; tvö námskeið á haustönn og tvö námskeið á vorönn ásamt verklegu nám- skeiði á vorönn sem krefst þess að nemendur vinni verk- efni í skólanum í þrjár vikur. Námsefni fjögurra anna er því tekið á fjórum árum í stað tveggja í staðbundu námi. Námsefni og námskröfur í fjarnámi er eins og í staðar- námi og fer fjarnám deildar- innar fer fram í sérhönnuðu kennsluumhverfi sem skólinn hefur þróað á undanförnum árum og byggir á internet- tækni. Fyrirlestrar í kennslustund- um í staðarnámi er teknir upp og eru þessir hljóðfyrirlestrar settir á netið fyrir fjarnema sem geta sótt þá og hlustað á þegar þeir vilja og eins oft og þeir vilja. A hverri önn eru tvær tveggja daga vinnulotur um helgi í HR þar sem fjar- nemendum gefst tækifæri til þess að hitta kennara sína og aðra fjarnemendur, hlusta á fyrirlestra og vinna að verk- efnum. Spjall í beinni er viku- lega í flestum námskeiðum þar sem kennari og nemendur tengjast samtímis inn á inter- netið til að spjalla þar saman um námsefhið. Spjall í beinni kemur í stað hefðbundinna símatíma kennara. Að auki eru nýttir umræðuþræðir í kennslukerfi skólans þar sem nemendur ræða námsefnið, leggja fram spurningar og taka þátt í að svara spurning- um annarra. Æskilegur undirbúningur fyrir háskólanám er stúdents- próf en í HR skoðum við um- sóknir frá nemendum sem ekki hafa lokið stúdentsprófi og metum hvort við teljum viðkomandi hafa nægan þroska og undirbúning, s.s. annað nám eða starfsreynslu, sem gerir umsækjanda hæfan til að stunda háskólanám. Nánari upplýsingar er að finna á www.ru.is og þar er hægt að sækja um skólavist. Asrún Matthíasdóttir lektor og verkefnisstjóri fjamáms Háskólanum í Reykjavík. „Frá fikti til dauða“ í Starfsmenn Vinnustofunnar Ás eru í dag að ljúka við að pakka bæklingnum Frá fikti til dauða, sem Ungmennafélag Is- lands dreifir til foreldra allra barna og unglinga 11-15 ára. Bæklingurinn er sendur út til foreldra 20.000 barna og ung- linga. Frá fikti til dauða er fræðslu- bæklingur fyrir foreldra um rétt viðbrögð við fyrstu einkennum af fíkniefnanotkun. Bæklingur- inn var unnin í samstarfi við forvarnadeild lögreglunnar og var liður í verkefninu Fíkn er fjötur sem UMFI og Kam- merkór Reykjavíkur stóðu fyrir á sl. ári. Ungmennafélag Islands og Kammerkór Reykjavíkur stóðu á sl. ári fyrir tónleikum Fíkn er fjötur á sex stöðum á landinu. Tónleikarnir voru haldnir á Suniiu- dags- skólinn Mig langar að segja ykkur eina sögu úr sunnudagaskólanum.. Það er ýmislegt gott kennt í sunnudagaskólanum og ekki alls fyrir löngu þá var ég að kanna þekkingu barnanna á frelsuninni , þ.e. hvernig komumst við til himna, svo ég spurði þau; Ef ég seldi húsið mitt og bílinn og seldi allt sem ég ætti og gæfi það til kirkjunnar, myndi ég komast til himna? Nei. svöruðu krakkarnir. Ef ég myndi þrífa kirkjuna á hverjum degi og passaði upp á að allt væri hreint og fallegt, myndi ég þá komast til himna? Nei svöruðu krakkarnir aftur. Ég brosti með sjálfri mér því þetta gekk bara mjög vel. Jæja, ef ég væri góð við öll dýr og gæfi öllum börnum nammi og elskaði öll börn og manninn niinn skilyrðislaust, myndi ég þá komast til himna? Nei svöruðu þau öll sömul Ég var að springa úr stolti yfir þeim og mér auðvitað fyrir að hafa kennt þeim svona vel! Svo ég hélt áfram, jæja hvernig kemst maður þá til himna, spurði ég krakkana Og þá hrópaði ein 5 ára. Nú þú verður að vera DAUÐ.!!! dreifingu Selfossi, ísafirði, Ólafsvík, Ak- ureyri, Reykjavík og Egilsstöð- um, í umsjón Þjónustumið- stöðva UMFI sem starfa á þess- um stöðum. Fjöldi kóra og tónlistarmanna úr heimabyggð sem og gestir tóku þátt í tón- leikunum. Alls tóku þátt í þessum tónleikum tugir kóra og á annað þúsund tónlistar- manna.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.