Skessuhorn


Skessuhorn - 31.03.2004, Page 14

Skessuhorn - 31.03.2004, Page 14
14 MIÐVIKUDAGUR 31.MARS 2004 dotisaiinu^ Guðmundur Böðvarsson. Aldarafinæli Guð- mundar Böðvarssonar Þann 1. september nk. verða hundrað ár liðin frá fæðingu Guðmundar Böðvarssonar skálds á Kirkjubóli í Hvítár- síðu. I tilefni af því verður gef- in út glæsileg bók með hund- rað úrvalsljóðum skáldsins og grein um líf hans og list eftir Silju Aðalsteinsdóttur, ævi- söguritara hans. Bókin hefnr hlotið heitið Ljóðöld. Guðmundur Böðvarsson var, með orðum Kristins E. Andréssonar bókaútgefanda og ritstjóra, eitt af ævintýrunum í íslenskum bókmenntum, nán- ast óskólagenginn sveitastrák- ur sem skipaði sér á fremsta bekk íslenskra skálda á 20. öld. Með fágætlega einlægum ljóð- um, hvort sem þau snertu sár- an streng, ljúfan eða stríðan, öðlaðist Guðmundur varan- legan sess í huga og hjarta þjóðar sinnar. Aðdáendum ljóða Guð- mundar sem vilja heiðra minn- ingu hans á aldarafmælinu býðst að setja nöfn sín á nafna- skrá til minningar um skáldið fremst í Ljóðöld og fá þá bók- ina heimsenda á sérstöku á- skriftarverði. Þeim er bent á að hafa samband við Hörpuútgáf- una á Akranesi fýrir 30. apríl í síma 431-2860 eða á netfangið bragi@horpuutgafan.is. Arshátíð Grunnskólans í Olafsvík Síðastliðinn föstudag var árshátíð Grunnskólans í Olafs- vík haldin í félagsheimilinu Klifi með pompi og prakt að vanda. Allir bekkir skólans sýndu skemmtiatriði og voru þau afar fjölbreytt, söngur, dans, leikþættir og eftirhermur svo eitthvað sé nefnt. Sambandsþing UMSB Frá sambandsþingi UMSB í Logalandi. Þann 17. mars sl. var haldið 82. sambandsþing Ungmenna- sambands Borgarfjarðar. Þingið var vel sótt af ríflega 50 þing- fulltrúum auk stjórnar UMSB og góðum gestum, þeim Ásdísi Helgu Bjarnadóttur og Birgi Gunnlaugssyni stjórnarmönn- um í UMFI og Eggerti B. Schram og Stefáni Konráðssyni frá ISI. Asdísi Helgu Bjarna- dóttur var veitt gullmerki UMSB fýrir vel unnin störf í þágu sambandsins og Irisi Grönfeldt var afhent bókargjöf í tilefni fertugsafmælis á síðasta ári. Þá var eftirfarandi aðilum veitt viðurkenning fýrir Is- landsmeistaratitil í fyrsta sinn: Benedikt Líndal, Umf. Skugga, Helga Sveinssyni, Umf. Kveld- úlfi og Trausta Eiríkssyni, Umf. Skallagrími. Af málum sem þingið af- greiddi má nefna að ákveðið var að gera sérstakt átak í íþrótta- starfi eldri borgara, meðal ann- ars með því að stofna starfs- nefnd á vegum UMSB til að sinna þessum málaflokki. Þá var samþykkt að halda áfram þátt- töku í verkefnunum Göngum um ísland og Fjölskyldan á fjallið. Fjall okkar að þessu sinni er Varmalækjarmúlinn og á vor- dögum verður hópganga á múl- ann þar sem póstkassa og gesta- bók verður komið fýrir á toppi fjallsins. Einnig var samþykkt að efna til sérstaks Vesturlands- móts í frjálsum íþróttum í sum- ar og tengja það keppni ung- linga 14 ára og eldri á Héraðs- móti UMSB utanhúss. Þingið fjallaði um Sparisjóðshlaup UMSB og ákvað nokkrar breyt- ingar á fýrirkomulagi hlaupsins. I sumar verður hlaupið fært inn í Borgarnes og stytt nokkuð, en með haustinu verður haldið 25 km, 10 km og 4 km hlaup í kringum Hvanneyri. Fleiri til- lögur voru samþykktar en þing- gerðin mun birtast í heild sinni á heimasíðunni www.umsb.is innan tíðar. Þær breytingar urðu á stjórn UMSB að Þórhildur Þorsteins- dóttir lét af störfum sem vara- sambandstjóri og Axel Vatnsdal var kjörinn í hennar stað. Axel var varamaður Þórhildar og Friðrik Aspelund var kjörinn varamaður Axels. Herra og ungfirú Amardalur Árshátíð Arnardals og grunnskólanna á Akranesi var haldin í Grunda- skóla s.l. föstudagskvöld. Árshátíðin tókst mjög vel og var unglingun- um til fyrirmyndar. Grínarinn Pétur J. Sigfússon úr 70 mínútum var með magnað ugpistand. Að venju voru herra og ungfrú Arnardalur krýnd en að þessu sinni voru það Þór Birgisson og Eva Eiríksdóttir, bæði nemendur í 10. bekk Grundaskóla.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.