Skessuhorn


Skessuhorn - 14.04.2004, Blaðsíða 5

Skessuhorn - 14.04.2004, Blaðsíða 5
^saunu^ MIÐVIKUDAGUR 14. APRIL 2004 5 Samið um byggingu fiölbrautaskóla Frá undirritun samningsins: F. v. Kristinn Jcmasson, bæjarstjóri Snæfellsbæjar, Óll Jón Gunnarsson bæjar- stjóri Stykkishólms, Ásgeir Valdimarsson, bæjarfulltrúi í Grundarfirði, Kornráð Andrésson forstjóri Loftorku og Andrés Konráðsson framkvæmdastjóri Loftorku. Mynd: Guðrún Vala Bókasafnið auglýst Það vakti athygli glöggra Skagamanna að sjá húsnæði Bókasafns Akraness auglýst til sölu hjá fasteignasölunni Eign. Bæjaryfirvöld gerðu athuga- semdir, þar sem ekki hefur verið tekin ákvörðun um að selja húsnæðið. Þær upplýsingar fengust hjá fasteignasölunni að bilun í tölvukerfi hafi orsakað að allar eignir sem hafa verið skoð- aðar hafi lent á söluskrá. Fast- eignasalan Eign er hluthafi í Akraborg ehf. sem áformar að til sölu byggja verslunarmiðstöð á Mið- bæjarreitnum. I áætlunum Akraborgar er gert ráð fýrir að Landsbankinn fari í nýju versl- unarmiðstöðina, Akraneskaup- staður kaupi Landsbankahúsið af Akraborgarmönnum undir bókasaín og aðra menningar- starfssemi og Bókasafninu verði loks breytt í íbúðir. Hin óvænta auglýsing á húsinu er þó ekki rnerki þess að þessi hringekja sé farin af stað og hefur það verið tekið af söluskrá. Nýverið var gengið frá samningi milli Loftorku í Borgarnesi og Jeratúns ehf uni byggingu á húsnæði fyrir fjöl- brautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði. Samningurinn hljóðar upp á 380 milljónir og skal Loftorka skila húsinu fullbúnu fyrir 1. desember n.k., en hluti hússins á að vera tilbúinn fyrir 29. ágúst, en þá hefst kennsla í hinum nýja framhaldsskóla. Jeratún ehf. er eignarhalds- félag sem stofnað er af sveitar- félögunum á norðanverðu Snæfellsnesi til að eiga og reka húsnæði skólans. Húsið verð- ur 1.980 m2 að stærð og ekki er gert ráð fyrir hefðbundnum skólastofum heldur, opnum rýmum þar sem meðal annars verður nokkurs konar kaffihús fyrir nemendur. Hugmynda- fræðin á bak við skólann gerir ráð fyrir litlum nemendahóp- um og einstaklingsmiðuðu námi. Lögð verður áhersla á hópavinnu og verkefnavinnslu í stað fyrirlestra. Þá verður að hluta til byggt á svokölluðu dreifnámi. Vélsleða slys Tvær konur lentu í óhappi á vélsleða á Langjökli á skírdag. Vésleð- inn lenti í djúpum hjólför- um eftir bifreið með þeim afleiðingum að hann valt. Konurnar voru báðar fluttar með sjúkrabifreið á heilsu- gæslustöðina í Borgarnesi en meisli þeirra reyndust ekki alvarleg. Orkuveita Reykjavíkur Orkuveita Reykjavíkur er sjálfstætt þjónustufyrirtæki í eigu Reykjavíkurborgar, Akranessbæjar, Borgarbyggðar og Borgarfjarðarsveitar. Orkuveitan dreifir rafmagni, heitu vatni til húshitunar, köldu vatni til brunavarna og neysluvatni til notenda í Reykjavík og nágrenni. A þjónustusvæði fyrirtækisins býr meira en helmingur íslensku þjóðarinnar. Fyrirtækið kappkostar að veita viðskiptavinum sinum bestu mögulegu þjónustu. Orkuveita Reykjavíkur stuðlar að nýsköpun og aukinni eigin orkuvinnslu. Framkvæmdasvið, vinnuflokkadeild í Borgarnesi óskar eftir að ráða pípulagningamann eða vélvirkja ► ► Starfssvið: Alhliða rekstrar- og viðgerðarverkefni í orkuöflunarkerfi, aðveitu og dreifíkerfi Jarðlagnir Menntunar- og hæfniskröfur: Menntun á sviði pípulagna eða vélvirkjunar Góð tölvukunnátta Þekking og reynsla af kerfum Orkuveitunnar í Borgarbyggð æskileg Viðkomandi sé áreiðanlegur, stundvís og hafí til að bera ríka þjónustulund Hæfni í mannlegum samskiptum Það er stefna Orkuveitunnar að auka hlut kvenna í stjórnunar- og ábyrgðarstöðum innan fyrirtækisins. Umsóknarfrestur er til 23. apríl n.k. Allar nánari upplýsingar gefur Magnús Harðarson hjá Mannvali, sími 564 4262 og á www.mannval.is MAM www.or.is

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.