Skessuhorn - 28.04.2004, Síða 1
Reim-
leikar
Ibúar á nemendagörðum
Landbúnaðarháskólans á
Hvanneyri hafa orðið fyrir
ónæði sem ekki er vitað hver
veldur. Helst er talið að þar
séu reimleikar á ferðinni.
Sjá bls 9
Rafta-
sýning
Bifhjólafélagið Raftar í
Borgarfirði hélt mikla bif-
hjólasýningu í Borgarnesi á
sumardaginn fyrsta. Þetta er
í þriðja sinn sem þeir halda
vorsýningu á mótorfákum og
fer hún vaxandi ár frá ári.
Sjá bls 4
Nýlega fannst íshellir í austanverðum Langjökli skammt frá Flosaskarði. Hellirinn er gríðarstór en fyrst var vitað um tilurð hans sfðla vetrar. Síðan
hellirinn fannst hefur umferð á Langjökul aukist til muna og er mikill straumur hálendisjeppa með ferðafólk á þessar slóðir, m.a. til að skoða hell-
inn. Um korters akstur er að hellinum frá Jaka, húsi sem stendur við vestanverðan Langjökul og hýst hefur ferðaþjónustufyrirtækið Langjökul og
aðra starfsemi undanfarin ár. MM
Opið í Nettó
Akranesi:
mán-fös......10-19
laugardaga...10-18
sunnudaga....12-17
□□UJ
VIKUBLAÐ A VESTURLANDI - 17. tbl. 7. árg. 28. apríl 2004
Kr. 250 í lausasölu
Sameiginleg hitaveita fyrir fjóra þéttbýlisstaði?
• •
Oldunga-
fjöldi
Á áttunda hundrað kepp-
endur tóku þátt í öldunga-
móti Blaksambands Islands á
Akranesi um síðustu helgi.
Sjá bls 14
Á síðasta fundi bæjarstjórnar
Snæfellsbæjar fékk bæjarstjóri
heimild bæjarstjórnar til að
kanna möguleika á samvinnu við
Grundarfjarðarbæ um hitaveitu
ffá Berserkseyri. Sem kunnugt
er hafa Grundfirðingar áform
um að leiða heitt vatn úr bor-
holu á Berserkseyri í Kolgrafar-
firði yfir brúna sem nú er í bygg-
ingu. Umræða um að það vatn
gæti hugsanlega nýst í Snæfells-
bæ hefur hins vegar ekki komið
upp fyrr en nú.
„Mér finnst það ábyrgðarhluti
af sveitarfélaginu hér að kanna
ekki hvort það sé fjárhagslegur
grundvöllur fyrir því að fara í
samvinnu við Grundfirðinga um
sameiginlega hitaveitu,“ segir
Kristinn Jónasson bæjarstjóri
Snæfellsbæjar. „Við erum þá að
horfa á hvort mögulegt sé að
leggja veitu ífá Berserkseyri í
Grundaríjörð, Ólafsvík, Hell-
issand og Rif. Heitt vatn er á-
kveðin lífsgæði sem allir sækjast
eftir og við viljum ræða við
Grundfirðinga og kanna hvort
þetta sé hugsanlega hagkvæm-
asti kosturinn fyrir okkur.“
Itrekað hefur verið borað efdr
heitu vatni í og við Ólafsvík en
árangur hefur ekki verið nægi-
lega góður. Fyrir þremur árum
var boruð 600 metra djúp til-
raunahola á staðnum sem gaf um
40 gráðu heitt vatn. „Til að
kanna svæðið betur þarf að fara í
svokallaðar viðnámsmælingar en
menn hafa viljað gera það í mikl-
um snjó til að auðveldara sé að
fara með tæki hér yfir hraunið.
Snjórinn hefur verið naumt
skammtaður hér síðustu ár en
við erum að fara að hugsa okkur
til hreyfings. Það er hiti á svæð-
inu með þessa eldfjallastöð sem
Snæfelljökull er. Ef Berserkseyri
reynist hagkvæmur kostur fyrir
okkur erum við hins vegar sáttir
við það,“ segir Kristinn.
„Við skoðum þetta með opn-
um huga,“ sagði Sigríður Fin-
sen forseti bæjarstjórnar
Grundarfjarðar er Skessuhorn
innti hana eftir viðbrögðum við
hugmyndum Kristins. Að-
spurður um stöðuna í hitaveitu-
málum Grundfirðinga sagði
Sigríður að beðið sé eftir niður-
stöðum rannsókna á eiginleik-
um heita vatnsins á Berserks-
eyri, en tilraunahola var boruð
þar í vetur. „Niðurstöður eru
væntanlegar á næstu dögum og
þær munu væntanlega segja
okkur mjög mikið um fram-
haldið.“
Tilboðin gilda frá 29. apríl til 4. mai eða meðan birgðir endast.
GrundaVg/
Grundarfirði
A k r a n e s i
Góð Kaup!
Goöa vínarpylsur..................................25% afsláttur
Villisveppa lambalæri.............................20% afsláttur
Bláberja lambalæri................................20% afsláttur
Piparsósa -köld 250 gr..........................169,-
Hvítlaukssósa -köld 250 gr......................169,-
Merrild Café Noir 500 gr........................349,-
Góð Kaup!
Snap Jack Fruit 300 gr.........................175,
Snap Jack Country 300 gr.......................149,
Toffypops......................................138,
Homeblest 50% meira............................198,
Jacobs pítubrauö...............................128,
Daloon kínarúllur 10 stk. -3 teg...............499,
Hyrnutorgi
Borgarnesi