Skessuhorn - 28.04.2004, Síða 2
2
MIÐVIKUDAGUR 28. APRIL 2004
cáfissiJliöBEI
Tit minnis
Við minnum á baráttudag
verkalýðsins og hvetjum
Vestlendinga að fara í skrúð-
göngur, syngja baráttu-
söngva og drekka 1. maí
kaffi nú á laugardaginn.
Spáin er þokkaleg, má búast
við örlítilli vætu en ekkert
sem rauðir fánar og góöur
kaffisopi ekki lagar.
©©©
Er rafmagnab
andrúmsloft á
nemendagöröunum?
já, það er
rafmagnað
og mjög
spennu-
þrungið
þessa
stundina.
Björk Harðardóttir
er í stjórn nemendagarba LBH
og stjórnarfulltrúi í skólafélag-
inu. Stjórn nemendagaröanna
greip til þess ráös aö kalla til
sérfræöing aö til aö
mœla rafsegulsviö á nemenda-
göröunum, útkoma fyrstu mœl-
inga bendir þó til aö annaö og
órœöara sé þar á feröinni.
éVeðwrhorfivr
Búast má við hægviðri, skýj-
uðu en að mestu þurru á
fimmtudaginn. Á föstudag-
inn þykknar líklega enn frek-
ar upp og búast má við suö-
vestanátt með nokkuð mikilli
úrkomu. Á frídegi verkalýðs-
ins snýr hann sér í vestan eða
norðvestanátt með lítilshátt-
ar úrkomu fyrri hluta dags.
Heldur kólnar á sunnudag
og mánudag en veöur verð-
ur bjart.
SpiVrrunc] viMnnetr
I síbustu viku var spurt:
Ætlar þú ab ferbast innan-
lands í sumar?
Niðurstöður voru þær að: já
auövitað - eins og alltaf,
sögbu 75%. já, það er kom-
in tími til að kynnast landinu,
sögðu 5,4%. Nei, ég ætla til
útlanda sögðu 14,3%. Ég
hef ekki ákveðiö mig, sögðu
5,4%.
/ þessari viku er spurt:
Trúir þú á drauga?
Takiö afstööu á
www.skessuhorn. is
Vestlendinípvr
vikitnnetr
Er Rósa Hall-
dórsdóttir
sem var öld-
ungur yfir 29.
öldungamóti
BLÍ sem hald-
ið var á Akra-
nesi dagana 22. - 24. apríl.
Mótið gekk mjög vel og voru
á sjöunda hundrað gesta á
Akranesi sem sneru ánægðir
heim að móti loknu.
Hollywood norðursins
verldð er í höndum Hollywood
stjörnunnar Jason Biggs sem
meðal annars hefur leildð í hin-
um vinsælu unglingamyndum,
American Pie og Looser en
einnig er Hilmir Snær Guðna-
son meðal leikenda í myndinni.
Umfangsmildl leikmynd hef-
ur verið reist á Gufuskálum til
viðbótar við þau mannvirld sem
þar eru fyrir. Smiðir á svæðinu
hafa m.a. unnið hörðum hönd-
um við það síðustu daga að
byggja herbragga. Þá hefur ver-
ið smalað saman fjölda auka-
leikar víðs vegar að af Vestur-
landi en vel á annað hundrað
Tökur hófust á mánudag á Gufuskálum fyrir kvikmyndina Guy - X manns mun vera þar í hlutverki
Það hefur heldur betur lifhað
yfír Gufuskálum á Snæfellsnesi
þessa daga en þessi gamla yfir-
gefna ratsjárstöð sem þjónar
reyndar í dag hlutverki þjálfun-
arbúða fyrir björgunarsveitar-
menn hefur tímabundið verið
breytt í jvvilonyndaþorp.
Síðastliðinn mánudag hófust
á Gufuskálum tökur á mynd-
inni Guy X sem framleidd er af
fyrirtækjunum Movision/
SpiceFactory, The Film
Consortium/The Works í Bret-
landi, Ex efh á Is-
landi og Wizz
Films (X) í Kanada.
Guy X er svört
kómedía, byggð á
bókinni No one
think of Greenland
eftir John Griesem-
er. Hún fjallar um
bandarískan her-
mann sem valrnar
upp á yfirgefnum
herspítala á hjara
veraldar. Aðalhlut-
nermanna.
Jason Biggs leikur aðalhlutverkið í myndinni.
Alvarlegt vélsleðaslys á Langjökli
Ungur maður slasaðist mik-
ið er hann féll aftan af vélsleða
og lenti í urð á Langjökli við
skálann Jaka aðfaranótt
síðastliðins föstudags.
Tildrög slyssins eru í rann-
sókn hjá lögreglunni í Borgar-
nesi, en samkvæmt upplýsing-
um þaðan er talið að sleðanum
hafi verið eldð á grjóthól með
þeim afleiðingum að maður-
inn kastaðist af sleðanum og
braut hryggjarliði og rifbein.
Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglu fluttu ferðafélagar
mannsins hann af stað á bíl
eftir að hafa búið um hann á
börum, en ekki mun hafa
náðst símasamband á slysstað.
Maðurinn var síðan færður
um borð í sjúlsxabifreið sem
flutti hann á sjúkrahús í
Reykjavík.
Spóamir reisa trönur
Þeir voru lukkulegir skát-
arnir í Spóunum í Borgar-
nesi, þeir Símon, Hermann
Jóhann, Svavar, Trausti,
Sigurður og Jóhann Örn,
en þeir reistu þetta 7 metra
háa mannvirki við Skáta-
húsið. Verkið tók í heild
ekki nema klukkutímann en
þeir þurftu tvær tilraunir til
að fullkomna verkið.
Drengirnir höfðu ekki orðið
sér út um byggingarleyfi og
töldu sig ekki þurfa slfka
pappíra til trönubygginga,
enda verkið bara liður í að
æfa sig undir landsmót
skáta sem haldið verður
eftir rúmt ár á Úlfljótsvatni.
Tveir
jeppar í
einni veltu
Nokkuð óvenjuleg bíl-
velta varð á Borgarfjarðar-
braut við Ardal í gær þegar
tvær jeppabiffeiðir enduðu á
toppnum. Annar jeppinn var
á kerru aftan í hinuni og er
það ástæða þess að þeir urðu
samferða á toppinn.
Að sögn lögreglu er talið
að öltumaður jeppans hafi
dottað. Jeppinn á kerranni
mun hafa oltið á undan og
dregið hinn með sér í fail-
inu.
Engin slys urðu á fólki.
Tóbaks-
könnun
Tómstunda og forvarnar-
svið Akraneskaupstaðar lét
framkvæma könnun á sölu
tóbaks og áfengis til barna
og unglinga fyrir skömmu.
Að sögn Aðalsteins Hjartar-
sonar, forstöðumanns
Tómstunda og forvarnar-
sviðs, náði könnunin tii 11
söluaðila á Akranesi. Könn-
unin var framkvæmd með
þeim hætti að 15 og 16 ára
unglingar voru sendir á
staðina og reyndu að fá
keypt tóbak og áfengi þar
sem því var til að dreifa.
A sex stöðum fengu ung-
lingarnir afgreitt tóbak og á
einum af fimm vínveitinga-
stöðum sem farið var á
fengu þeir afgreiddan bjór.
Aðalsteinn segir að þessar
niðurstöður séu alls ekki á-
sættanlegar. „Við hvetjum
söluaðila til að taka sig á í
þessum efnum og halda
vöku sinni. Við munum
endurtaka þessa könnun við
tækifæri og væntum þá betri
niðurstöðu."
Hættumat
I gærkvöldi var kynnt
hættumat vegna snjóflóða í
Olafsvík. Samkvæmt skýrsl-
unni þarf að verja tvö hús í í-
búðabyggðinni, annars veg-
ar heilsugæslustöðina og
efstu blokkina í Engihlíð. Þá
er atvinnuhúsnæði yst í
Olafsvík á hættusvæði.
Bæjarstjórn þarf að láta
hefja vinnu við aðgerðaáætl-
un innan sex mánaða, en að
sögn Kristins Jónassonar
bæjarstjóra Snæfellsbæjar er
talið líklegast að byggðar
verði svokallaðar snjóflóða-
girðingar.