Skessuhorn - 28.04.2004, Qupperneq 4
4
MIÐVIKUDAGUR 28. APRIL 2004
on£S9Unu^
Bjarnarbraut 8 - Borgarnesi Sími: 433 5500
Kirkjubraut 54-56 - Akranesi Fax: 433 5501
SkRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-14 ALLA VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf 433 5500
Ritstjóri og óbm: Gísli Einorsson 899 4098
Auglýsingar: íris Arthúrsdóttir 696 7139
Umbrot: Guðrún Björk Friðriksdóttir 437 1677
Fromkvæmdnstjóri: Magnús Magnússon 894 8998
Prentun: Prentmet ehf.
skessuhorn@skessuhorn.is
ritstiori@skessuhorn.is
iris@skessuhorn.is
gudrun@skessuhorn.is
magnus@skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miSvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14:00 á
þriðjudögum. Auglýsendum er bent a að panta auglýsingaplass timanlega.
SkiÍafrestur smáauglýsinga er til 12:00 á priðjudögum.
Blaðið er gefið út í 4.000 eintökum og selt til áskrifenda oa í lausasölu.
Askriftarverð er 850 krónur með vsk. á mánuði en krónur/50 sé greitt með
greiðslukorti. Verð í lausasölu er 250 kr.
433 5500
Fjölmiðla-
frumvarp
bemsku
minnar
Gísli Einarsson,
ritstjóri.
Eins og ég kann að hafa minnst á hér einhverntíma áður þá
hef ég þurft að lifa með því, stóran hluta af ævinni, að eiga
fjórar systur. Fyrst ekki nema eina reyndar en síðan hríðfjölg-
aði þeim þar til systrakvótinn var fylltur og vel það.
Þessar systur mínar voru, og eru vissulega enn, þeirrar
náttúru að þeim fylgir gríðarlegur hávaði. Til nánari útskýr-
ingar þá eru hljóðin ekki bara há heldur er einnig mikið af
þeim. Reyndar er nánast ómögulegt að útskýra þetta á prenti
svo vel sé. Þetta er eittvað sem menn verða að reyna sjálfir til
að trúa eigin eyrum. (Eg get fullyrt að þeir nota þá ekki eyr-
un í annað á meðan).
Að sjálfsögðu reyndi ég eftir mætti að stemma stigu við
þessu vandamáli sem fjórar símalandi systur vissulega eru. Eg
fór þá leið að reyna að skerða tjáningarfrelsi þeirra með því
að segja þeim ýmist að þegja, halda kjafti eða snarhalda kjafti.
Eg setti meira að segja bráðabirgðarlög sem áttu að gilda í
mínu herbergi og innan minnar landhelgi. Samkvæmt lögun-
um mátti aldrei nema ein systranna tala í einu en það var
mjög algengt að þær möluðu á samtengdum rásum, jafnvel
allar í einu. Þá var kveðið á um að þeirra fréttaflutningur væri
ritskoðaður reglulega og einnig reyndi ég að koma í veg fyr-
ir það með sérákvæði að þær gætu samræmt málflutning sinn
þegar þær klöguðu í mömmu og pabba.
Lögin voru hins vegar numin úr gildi jafnharðan enda
munu þau ekki hafa staðist stjórnarskrá heimilisins.
Með árunum áskotnaðist mér umburðarlyndi, meira að
segja gagnvart systrum mínum. Eg ákvað að virða tjáninga-
frelsi þeirra þrátt fyrir að mér væri bölvanlega við að þær nytu
þess. Það er hinsvegar ekki þar með sagt að það hafi hvarflað
að mér að hlusta á það sem þær segja og ítrekað hef ég skor-
að á aðra að gera það ekki heldur.
Eg hef með öðrum orðum ekkert sérstaklega góða reynslu
af því að reyna að segja fólki með lagasetningu að halda kjafti.
Hugmyndin er góð en gengur einfaldlega ekki fullkomlega
upp.
Gísli Einarsson, bróðir
Vel heppnuð vélhjólasýning
Bifhjólafjelagið Raftar í
Borgarfirði hélt sína þriðju vél-
fákasýningu í íþróttamiðstöð-
inni í Borgarnesi á sumardag-
inn fyrsta. A sýningunni voru
hjól félagsmanna og ýmsir aðr-
ir merkisgripir á tveimur til
þremur hjólum. Þá kynntu vél-
hjólaumboð þjónustu sýna og
Harley Davidson klúbburinn á
Islandi var í öndvegi á sýning-
unni.
Það var líka eitt og annað að
sjá utanhúss því fjölmargir sýn-
ingargestir komu á mótor-
hjólum og var þeim stillt upp á
körfuboltavellinum utan við í-
þróttamiðstöðina eins og sést á
myndunum.
Innbrotsmál
upplýst
Urn rniðjan apríl var brot-
ist inn í fyrirtæki og gröfur á
Kalmansvöllum á Akranesi
og bát sem lá við slippinn.
Vaktamaðurinn þar um borð
varð var við umgang og stóð
innbrotsþjófana að verki
vopnaður ísexi sér til varnar.
Ekki kom þó til átaka og ját-
uðu þjófarnir brot sín og að-
ild að hinum málunum og
teljast þau því upplýst.
Einnig er upplýst nokkur
innbrot sem greint var frá í
Skessuhomi í vetur þegar
brotist var inn í leikskólann
Teigasel, Brekkubæjarskóla
og tannlæknastofu. Lög-
reglan á Akranesi tók
fingraför á vettvangi. Hand-
hafi þeirra fara var svo stað-
inn að verki norður á Alcur-
eyri við svipaða iðju og ját-
aði aðild sína að innbrotun-
um á Akranesi. Lögreglan á
Akranesi segir að lítið hafi
verið um innbrot fyrir utan
þessi tvö mál sem bæði em
nú upplýst.
Skóflan
bauð lægst
Skóflan ehf átti lægsta til-
boð í 1. áfanga Ketilsflatar
ásamt veitulagningum.
Akraneskaupstaður, Orku-
veita Reykjavíkur og Land-
síminn buðu verkið út og
hljóðaði kostnaðaráætlun
uppá 25,8 mkr. Fimm tilboð
bárust í verkið og sein áður
sagði bauð Skóflan ehf.
lægst, tæpar 23 mkr. eða
89% af kostnaðaráætlun.
A leið undir Hvalíjörð
Vegfarendur, sem óku fram um Vesturlandsveginn, rétt norðan ganga
brá nokkuð í brún við að sjá ýtu háifa í kafi rétt utan vegar. Töldu
sumir vegfarendur, sem samband höfðu við Skessuhorn, að þetta
væri fyrsti liður í að stækka og breikka Hvalfjarðargöng. Svo reyndist
þó ekki vera heldur var þarna aðeins um óhapp að ræða. Jarðýtan
sökk þarna 7 blautri mýri en þarna er nú unnið að nýrri vegtengingu
við Grundartangasvæðið. Verktakinn náði að losa ýtuna upp með
beitagröfu og voru engar tafir á verkinu sem teljandi eru.
Myndina tók Örn Egilsson