Skessuhorn - 28.04.2004, Page 5
ootisaunu^
MIÐVIKUDAGUR 28. APRIL 2004
5
Skoðanakönnun um viðhorf til sameiningar
sveitarfélaga í Kolbeinsstaðarheppi
Frekar til suðurs
Mál Gámaþjónustu
Akraness og Akra-
neskaupstaðar fyrir
gerðardóm
Gámaþjónusta Akraness
ehf. hefur sett fram þrjár
gerðadómskröfur uppá um 20
mkr. á hendur Akraneskaup-
stað. Málið hefur haft all-
nokkurn aðdraganda en
Gámaþjónusta Akraness átti á
sínum tíma lægsta tilboð í
sorphirðu á Akranesi og í ná-
grenni og var samið á grund-
velli útboðsgagna til átta ára.
Fljótlega kom upp mismun-
andi túlkun á samningnum
sem hefur svo undið uppá sig.
Samningurinn rennur út á
næsta ári og hefur Akranes-
kaupstaður þá í hyggju að
bjóða út sorphirðu í samvinnu
við Borgarbyggð og Borgar-
fjarðarsveit. Akraneskaup-
staður hefur ekki fallist á þær
vanefndir og túlkar útboðs-
gögn með öðrum hætti en
verktakinn. Að sögn Jóns
Pálma Pálssonar bæjarritara
hafa verið boðnar sættir í mál-
inu, að hálfu Akraneskaup-
staðar, sem Gámaþjónustan
hefur hafnað og málið því
komið fyTÍr dómstóla.
Vitnaleiðslur og málflutn-
ingur vegna málsins var í hér-
aðsdómi Vesturlands s.l. föstu-
dag. Búast má við niðurstöðu
dómara eftir þrjár til fjórar
vikur og ætti þá að sjá fyrir
endann á þessari áralöngu
deilu.
Jón Valdimar Björnsson eig-
andi og framkvæmdastjóri
Gámaþjónustu Akraness vildi
ekki tjá sig um gerðardóms-
kröfuna að svo stöddu heldur
vildi bíða niðurstaðna gerðar-
dómsins. Aðspurður hvort
þessi málarekstur gæti ekki
komið sér illa fyrir fyrirtækið
þegar sorphirðan verður boðin
út að nýju sagðist Jón Valdimar
telja ekki svo vera. „Þetta er
bara eins og hvert annað verk-
efni sem verður boðið út, ég
blanda þessum málum ekkert
saman við framtíðarverkefni.“
Hreppsnefhd Kolbeinsstaða-
hrepps hefur látið gera skoðana-
könnun meðal íbúa í tengslum
við umræðu um sameiningu
sveitarfélaga. Stillt var upp
þremur kostum, þ.e. engin sam-
eining, sameining við önnur
sveitarfélög í Snæfellsnes og
Hnappadalssýslu eða sameining
við sveitarfélög í Mýra og Borg-
arfjarðarsýslu norðan Skarðs-
heiðar. Könnunin náði til íbúa
sveitarfélagsins sem eru á kjör-
skrá, eða liðlega 70 manns og
var þátttaka 71%.
Flestir völdu áframhaldandi
sjálfstæði sveitarfélagsins sem
besta kost, eða 58%, en 42%
vildu helst sameiningu við
Borgarfjörð. Athygli vakti hins-
vegar að enginn nefndi samein-
ingu við önnur sveitarfélög á
Snæfellsnesi sem fyrsta valkost.
Sameining við Borgarfjarðar-
sveitarfélögin fékk 40% atkvæða
sem næstbesti kosturinn en
sameining innan Snæfellsness
33%. Óbreytt staða fékk 28%
atkvæða sem næst besti kostur.
Einnig var spurt í könnuninni
hvaða byggðarkjarna fólk teldi
vera verslunar og þjónustu-
kjarna fyrir íbúa Kolbeinsstað-
arhrepps en valið stóð á milli
Stykkishólms, Borgarness,
Grundarfjarðar og Ólafsvíkur
og 48 eða allir sem svöruðu
spurningunni nefndu Borgar-
nes. Þá var spurt um þjónustu-
kjarna fyrir opinbera stjórnsýslu
og fékk Borgames 41 atkvæði
en Stykkishólmur 7.
Loks var spurt hvaða málefni
skipti mestu fyrir íbúa Kol-
beinsstaðahrepps til framtíðar.
Atvinnumálin vega þar þyngst
að mati 50% þeirra sem svör-
uðu spumingunni en skólamál-
in nefndu 42%. Fjallskilamálin
vom hins vegar sett á oddinn af
8% svarenda.
Ólafur Sigvaldason, oddviti
Kolbeinsstaðahrepps, segir
hreppsnefnd ekki hafa tekið á-
kvörðun um framhaldið eftir að
þessar niðurstöður liggi fyrir.
„Við verðum að taka ákvörðun
um það fljótlega hvort við för-
um í sameiningarviðræður en
miðað við þessar niðurstöður
sýnist mér líklegt að ef það
verður þá munum við leita eftir
sameiningu við Borgfirðinga.“
Samkvæmt niðurstöðum
könnunarinnar vill ríflega helm-
ingur íbúanna áframhaldandi
sjálfstæði sveitarfélagsins og
segir Ólafur ótta um framtíð
skólans í Laugargerði ömgglega
móta afstöðuna hjá einhverjum.
Einnig hafi rekstur sveitarfé-
lagsins gengið vel og það sé
frekar til að letja fólk til breyt-
inga.
LATTU
OKKUR
FÁÞAÐ
ÓÞVEGIÐ
Efnalaugin Múlakot ehf
Borgarbraut 55
310 Borgarnesi
Sími 437 1930
Verkalýðsfélag Borgarness og Starfsmannafélag Borgarbyggðar
1. maí 3004
Félögin bjóða til veglegra
hátíðarhalda í Hótel Borgarnes kl. 14
SFjölbreytt dagskrá: / —~
Hátíðarræða: Jóhanna Sigurðardóttir, alþingismaður /
Tónlistarskóli Borgarfjarðar: Atriði úr óperunni “Hans og Gréta”/ Wfe /
Ávarp: Baldur Jónsson, ritari Verkalýðsfélags Borgarness / ÆmÉjjf' $ /
, , Jóhannes Kristjánsson skemmtir / K /
\ Ávarp: Fulltrúi Starfsmannafélags Borgarbyggðar / , ^ /
\ Karlakórinn Söngbræður / \ /
^ Hótelið selur kaffíveitingar á góðu verði í lok dagskrár *—/
Börnunum boðið á kvikmyndasýningar
í Óðali kl. 13:30 og 15:30