Skessuhorn


Skessuhorn - 28.04.2004, Page 7

Skessuhorn - 28.04.2004, Page 7
 MIÐVIKUDAGUR 28. APRIL 2004 7 Góð aðsókn að menning- ardagskrá á Reykhólum Allt að 180 manns sóttu, á sumardaginn fyrsta, menningar- dagskrá í Reykhólakirkju og komu gestir alla leið frá Miðdöl- um í suðri og Isafjarðardjúpi í norðri, auk heimamanna að sjálfsögðu. I kirkjunni komu ffam tvær listakonur, þær Eivör Pálsdóttir söngkona ffá Færeyjum og Þór- unn Valdimarsdóttir skáld og sagnfræðingur. Þórunn las úr bók sem hún er með í smíðum um Matthías Jochumsson, en hann fæddist í Reykhólasveit á 19. öld. Eivör, hin færeyska, lét sér ekki nægja að heilla kirkjugesti upp úr skónum því eftir að hún hafði gefið ungum aðdáendum sínum eiginhandaráritanir fór hún í hjúkrunarheimilið Barma- hlíð og tók lagið fyrir vistmenn við góðar undirtektir. I hjúkrunarheimilinu Barma- hlíð var einnig hlutavelta og kynning á hannyrðum vist- manna, auk þess sem íbúar spunnu á rokk og kembdu ull að fornum sið í viðeigandi klæðum. Guðmundur Björgvinsson myndlistarmaður var með myndlistarsýningu þennan sama dag og vakti hún mikla athygli, enda ekki oft sem sett eru upp sýning á 25 málverkum á Reyk- hólum. Sérstakur gestur hátíðarinnar var Jón Kristjánsson heilbrigðis- ráðherra. Tillaga að breytingu á svæðisskipulagi sveitarfélaganna norðan Skarðsheiðar 1997-2017 Sultartangalína 3 Sveitarstjórnir Borgarfjarðarsveitar og Skorradalshrepps auglýsa, skv. 2. mgr. 14. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, tillögu að breytingu á svæðisskipulagi sveitarfélaganna norðan Skarðsheiðar 1997-2017. Gerð er tillaga að breytingu svæðisskipulags og er lagt til að gerðar verði eftirfarandi breytingar; 1. Sultartangalína 3 kemur inn fyrir mörk svæðisskipulagsins í um 400 m hæð uppi á Uxarhrygg, austan við Uxarvatn og Reiðarvatn og fylgist að með Sultartangalínu 1 skamman spöl fram hjá Uxarvatni. Þar skiljast leiðir þannig að núv. Sultartangalína 1 beygir til norðvesturs niður í Skorradal en Sultartangalína 3 heldur áfram suður fyrir Bollafell og þaðan til vesturs um Botnsheiði, Hæðir og Árfitjar skammt frá Sesseljuhrygg norðan Brekkukambs. Lagt er til að Sultartangalínu 3 frá mörkum svæðisskipulags, á Uxarhrygg og að skipulagsmörkum við Sesseljuhrygg, verði heimiluð með skilgreiningunni fyrirhuguð háspennulína (SU3). 2. í teiknigrunni núgildandi svæðisskipulags norðan Skarðsheiðar 1997- 2017 gætir vissrar ónákvæmni á legu Sultartangalínu 1. í mynd þessarar teikningar, er sýnir núgildandi skipulag, er línan óbreytt eins og hún er sýnd í upphaflegu skipulagi. í mynd er sýnir tillögu að breytingu svæðisskipulagsins hefur línan hins vegar verið leiðrétt sem svört lína með | einum punkti og gamla línustæðið sýnt sem hvít lína með einum punkti. | Sultartangalína 3 er sýnd sem svört lína með tveimur punktum. K o í I Lagt er til að heimiluð verði leiðrétting á legu Sultartangalínu 1 skv. greinargerð og korti. Sveitarstjórnir Borgarfjarðarsveitar og Skorradalshrepps munu bæta það tjón sem einstakir aðilar kunna að verða fyrir við breytinguna, hvor á sínu svæði. Tillagan verður send Skipulagsstofnun sem gerir tillögu til umhverfisráðherra um lokaafgreiðslu. Þeir sem óska nánari upplýsinga um tillöguna geta snúið sér bæði til sveitarstjóra Borgfjarðarsveitar, Reykholti eða til oddvita Skorradalshrepps, Grund Grund, 26. apríl 2004 Sveitarstj óri Borgarfj arðarsveitar. ...*'.•....... .t*.FgZSééSkk. Hjúkrunarfræðingur Hjúkrunarfræðingur eða hjúkrunarfræðinemi óskast til sumarafleysinga á Dvalarheimili aldraðra Borgarnesi. o i Æskilegt að vinna geti hafist sem fyrst. i Allar nánari upplýsingar veitir Margrét Guðmundsdóttir framkvœmdastjóri ísíma 4371285 V J Vorhátíð Föstudaginn 30. aprfl kl. 21, heldur Samkór Mýramanna sína árlegu vorhátíð í félagsheimilinu Lyngbrekku. Stjórnandi kórsins er Jónína Erna Arnardóttir og undirleikari á píanó er Dóra Erna Ásbjömsdóttir. Gestakórar em tveir. Sönghópurinn Fatíma sem í eru 11 konur, Raddbandafélag Reykjavíkur sem er skipað 15 karlmönnum. I Söngstjóri gestakóra og undirleikari eftir þörfum er Sigrún Grendal frá Krossnesi. Dagskrá vorhátíðar verður að vanda mjög fjölbreytt, einsöngur, tvísöngur og svo veglegar veitingar að hœtti Mýramanna.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.