Skessuhorn


Skessuhorn - 28.04.2004, Blaðsíða 9

Skessuhorn - 28.04.2004, Blaðsíða 9
SgESSt!H©EM MIÐVIKUDAGUR 28. APRIL 2004 9 Meintur draugagangur hefur vaidið íbúum nýju nemendagarðanna á Hvanneyri svefnleysi. Draugagangur á nemendagörðum? Oútskýrt fyrirbæri heldur vökum fyrir íbúum Draugagangur hefur ítrekað raskað næturró íbúa á nýjum nemendagörðum á Hvanneyri samkvæmt heimildum Skessu- horns. Reimleikanna hefur orðið vart í tveimur nýjustu húsum nemendagarðanna, Skólaflöt 4 og 8 en annað hús- ið var tekið í notkun í janúar á síðasta ári en hitt um síðustu áramót. Frá því fýrst var flutt inn í húsin hafa einstakir íbúar orð- ið fyrir ónæði og mun það hafa ágerst nú upp á síðkastið. Björg Harðardóttir sem sæti á í stjórn nemendagarða Land- búnaðarháskólans segir að fýrst hafi verið talið að eitthvað væri að rafmagninu í húsunum enda hafi Ijósaperur enst afar illa og því hafi það verið nær- tæk skýring. „Við leituðum til áhugamanns um rannsóknir á rafsegulsviði sem býr hér í ná- grenninu og hann kom og mældi þetta fýrir okkur. Það kom hins vegar í ljós að húsið virtist vera í fullkomnu lagi en hins vegar vildi hann meina að einhverjir fleiri hefðu flutt hingað inn með okkur,“ segir Björk. Hún tekur þó fram að það sé að vissulega góður andi, eða kanski öllu heldur andar, í húsunum en að einnig virðist vera einhverjir úr „órólegu deildinni“ á sveimi einnig því margir íbúanna hafi sofið illa, m.a. vegna umgangs sem engin eðlileg skýring virðist á. Óvænt íbúafjölgun Ohætt er að segja að íbúum á Hvanneyri hafi fjölgað enn meira en almennt var talið því að sögn Bjarkar er talið að vel yfir tuttugu ósýnilegir íbúar hafist við í nemendagörðun- um. Það vekur sérstaka athygli að um ný hús er að ræða en flestir binda reimleika fremur við gamlar byggingar. Björk segir að kenningar séu uppi að um sé að ræða fýlgjur sem tengist fólkinu sem þarna er fremur en húsunum sjálfum. „Við vonum samt að þetta fari að róast svo fólk fái almennt svefnfrið. Eg þarf að vísu ekki að kvarta því ég hef fengið að vera í friði sjálf, en markmiðið er að hér geti öllum liðið vel, bæði þessa heims og annars. Við erum að vinna í þessu máli og það verður væntanlega kannað til þrautar hvort sá grunur reynist réttur að hér sé eitthvað á sveimi úr öðrum heimi,“ segir Björk. Skagamenn fögnuðu sumri á hefðbundinn hátt með skrúðgöngu um bæinn undir dyggri forystu skátanna. Það var enda ríkari ástæða til að fagna en oft áður því sumarið byrjaði vel á Skaganum líkt og víða ann- arsstaðar á landinu og sannkallað sumarveður. Dvaíarhámilið Höfði Akranesi Atvinna Starfsfólk óskast strax til starfa í dagvistun og starfsþjálfun á Dvalarheimilinu Höfða. Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu heimilisins. SHA^i Sjúhrahúsið og hGÍlsugazslusföðin á Akranesi Merkigerði 9 • 300 Akranes Föstudaginn 30. apríl nk. verður formlega opnuð ný kvennadeild SHA. Frá kl. 16:30-18:00 er gert ráð fyrir að deildin verði opin til skoðunar og bjóða starfsmenn alla áhugasama nær og fjær í heimsókn á deildina afþessu tilefiii. Þar munu starfsmenn svara spumingum og gera grein fyrir starfseminni ef óskað er. Auglýsing um deiliskipulag í Hvítársíðuhreppi Mýrasýslu. Samkvæmt ákvæðum 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 er hér með lýst eftir athugasemdum við tillögu að deiliskipulagi fyrir stækkun á frístundabyggð um 6 lóðir að Bjamastöðum Hvítársíðuhreppi Mýrasýslu. Um er að ræða 0,4-0,6 hektara lóðir sem tengjast eldra svæði. Tillagan, ásamt byggingar og skipulagsskilmálum, liggur frammi hjá oddvita Sámsstöðum frá 30.apríl til 28.maí 2004 á venjulegum skrifstofutíma. | Athugasemdum skal skila fyrir 10. júní 2004 og skulu i þær vera skriflegar. i Þeir sem ekki gera athugasemd innan tilgreinds frests 1 teljast samþykkir tillögunni. Skipulags og byggingarfulltrúi. Auglýsingasíminn er 433 5500

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.