Skessuhorn - 28.04.2004, Blaðsíða 10
10
MIÐVIKUDAGUR 28. APRIL 2004
Vottun Green Globe 21
á Snæfellsnesi
Eins og kunnugt er vinna
sveitarfélögin fimm á Snæfells-
nesi að því að fá nesið allt vott-
að sem umhverfisvænan ferða-
áfangastað. Senn líður að því að
fyrsta staðfesta áfanganum í
vottunarferlinu verði náð en
stefnt er að því að það verði
síðari hluta maímánaðar. Eftir
langt undirbúningsferli þar sem
safnað hefur verið göngum og
stefnur mótaðar er næsta skref í
Green Globe 21 vottunarferl-
inu að Snæfellsnes mæti við-
miðum samtakanna. Síðar á ár-
inu mun viðurkenndur úttekt-
araðili GG21 taka Snæfellsnes
út og í kjölfarið fylgir vottun.
GG21 skilgreinir tiltekið
grunnviðmið fyrir hvern þeirra
viðmiðunarþátta sem sveitarfé-
lögin þurfa að mæta. Frammi-
staða Snæfellsness þarf að lág-
marki að vera jöfn þessum
grunnviðmiðum.
Orkunotkun og loft-
mengun
Gefa þarf upp tölur um orku-
notkun á Snæfellsnesi og upp-
lýsingar um það hvers konar
orkugjafar eru notaðir til húsa-
hitunar og framleiðslu á raf-
magni. RARIK veitti góðfús-
lega upplýsingar um alla orku-
sölu á Snæfellsnesi, svo auðvelt
var að mæla orkunotkun.
Einnig lágu fyrir tölur um
notkun heita vatnsins sem
orkugjafa í Stykkishólmi.
Eitt af því sem Green Globe
21 leggur mikla áherslu á er að
dregið sé úr losun gróðurhúsa-
lofttegunda, þar sem hlýnun
jarðar er ein af helstu ógnum
heimsins í dag. Bíll sem skilinn
er eftir í lausagangi á Snæfells-
nesi mengar andrúmsloft jarðar
jafnmikið og bíll sem skilinn er
eftir í gangi í Singapore. Til að
mæla þennan þátt var leitað til
olíufélaganna til að fá upplýs-
ingar um orkusölu þeirra (til
bílaflotans) á Snæfellsnesi. Olís
veitti góðfúslega upplýsingar
um sínar sölutölur, en Esso
ekki. Því þurfti að áætla hluta
bensín-/olíusölunnar til að fá
fram raunhæfar tölur. Auk þess
að reikna út mengunarstuðul út
frá orkusölu reiknar GG21 út
þrjá aðra mengunarstuðla.
Neysluvatn
og úrgangur
Fyrir þurfa að liggja upplýs-
ingar um það hversu mikil
vatnsnotkun Snæfellinga er á
mann á dag yfir allt árið og
hver gæði vatnsins eru. Eina
bæjarfélagið sem er með vatns-
mæla er Grundarfjarðarbær og
verður stuðst við tölur ffá þeim
til að áætla vatnsnotkun á Snæ-
fellsnesi.
Urgangur er mældur sam-
kvæmt þeim tölum sem fyrir
liggja um þann úrgang á Snæ-
fellsnesi sem fer til urðunar.
Green Globe 21 leggur mikið
upp úr því að dregið sé úr slík-
um úrgangi. Vegna þeirrar
stefnu sem sveitarfélögin hafa
sett sér í umhverfismálum í
tengslum við vottun GG21 og
vegna nýlegra reglugerða um
meðhöndlun úrgangs má vænta
þess að sveitarfélögin marki sér
á næstunni stefnu um samdrátt
á úrgangi.
Vemdun auðlinda
Green Globe 21 leggur mik-
ið upp úr verndun auðlinda,
sem mæla má á nokkra mis-
munandi vegu. Undir eina
mælieiningu fellur t.d. pappírs-
notkun, sem hefur áhrif á skóga
heimsins og flutning milli
landa. Onnur mælieining bygg-
ir á eiturefnanotkun og því
hvort þau eitur- og hreinsiefni
sem sveitarfélagið notar brotni
niður í náttúrunni eða ekki.
Þriðja mælieining felst í líf-
fræðilegum fjölbreytileika sem
meðal annars mælist í gegnum
þau landsvæði sem vernduð eru
með lögum. A Snæfellsnesi eru
það Þjóðgarðinn Snæfellsjökul,
strandlengjan frá Arnarstapa að
Hellnum, svæðið í kringum
Bárðarlaug á Hellnum,
friðlandið í Búðahrauni og
strandlengjan frá Vallabjargi á
norðanverðu Snæfellsnesi inn
allan Breiðafjörð. Sá hluti
hennar sem fellur undir þetta
verkefni er um 200 km. Einnig
eru eyjarnar á Breiðafirði frið-
lýstar. Friðlýst svæði á Snæfells-
nesi spanna því um 207 km2 af
þeim 1475 km2 sem sveitarfé-
lögin fimm ná yfir.
Ferðaþjónusta
Skila þarf inn upplýsingum
um íjölda þeirra fyrirtækja sem
eru í beinum ferðaþjónustu-
rekstri á Snæfellsnesi. Jafn-
framt þurfa að liggja fyrir tölur
um það hversu mörg þessara
fyrirtækja eru vottuð fyrir um-
hverfisstjórnunarstefnu sína.
Sem stendur eru tvö fyrirtæki á
Snæfellsnesi vottuð af Green
Globe 21 og eitt fyrirtæki er
aðili að vottunaráætlun GG21.
F ramkvæmdaráð
Samkvæmt vottunaráætlun
Green Globe 21 er gert ráð fyr-
ir því að sveitarstjórnirnar skipi
fulltrúa í Framkvæmdaráð
Snæfellsness, sem mun í sam-
vinnu við þær sjá um eftirfylgni
þeirrar stefnu sem mörkuð hef-
ur verið fyrir Snæfellsnes næstu
árin. I Framkvæmdaráði eiga
sæti: Guðlaugur Bergmann,
formaður; Menja von Schma-
lensee, varaformaður; Guðrún
G. Bergmann, ritari; Dagný
Þórisdóttir, gjaldkeri; Astþór
Jóhannsson, Hildibrandur
Bjarnason, Sigríður Finsen,
Hrafnhildur Jóna Jónasdóttir,
öll ffá sveitarfélögunum fimm
og Guðbjörg Gunnarsdóttir
þjóðgarðsvörður við Þjóðgarð-
inn Snæfellsjökul, sem eru
meðstjórnendur. Að auki eru
tilnefndir sjö varamenn. Fram-
kvæmdaráð mun á næstunni
senda frá sér fréttatilkynningar
sem þessa til að fræða íbúa
sveitarfélaganna um framgang
verkefnisins.
(Fréttatilkynningfrá Fram-
kvæmdaráði Snœfellsness)
uniiasunui..
Kona nokkur kemur inn í
apótek og biður um Arsenik.
„Og hvað ætlarðu að gera
við það?“ Spyr apótekarinn.
„Eg ætla að gefa mannin-
um mínurn það, því hann er
byrjaður að halda framhjá
mér“.
„Eg get ekki selt þér
Arsenik til þess,“ segir apó-
tekarinn, „jafnvel þó hann sé
farinn að halda fram hjá
þér.“
Þá dregur konan upp
mynd af manninum sínum í
miðjum samförum við konu
apótekarans.
„Ó,“ segir apótekarinn,
„ég gerði mér ekki grein fyr-
ir því að þú værir með lyf-
seðil!“
Lífsregla
dagsins
Fyrir þá sem eru sífellt að
spá í hollustu og mataræði er
gott að hafa eftirfarandi í
huga:
Japanir borða mjög lítið af
fitu og fá færri hjartaáföll en
Bretar og Bandaríkjamenn.
Frakkar borða mikið af
fitu og fá líka færri hjartaá-
föll en Bretar og Banda-
ríkjamenn.
Japanir drekka mjög lítið
af rauðvíni og fá færri hjarta-
áföll en Bretar og Banda-
nkjamenn.
Frakkar drekka óhóflega
af rauðvíni og fá líka tærri
hjartaáföll en Bretar og
Bandaríkjamenn.
Niðurstaða:
Borðaðu og drekktu það
sem þú vilt.
Enskan er það sem virðist
drepa fólk.
Dorgveiðar
Ljóska ein ætlar að fara
dorgveiðar á ís. Llún kemur
sér fyrir og borar holu. Eftir
nokkra stund heyrist rödd
sem segir: „Það er enginn
fiskur hér!“
Ljóskan færir sig svolítið,
borar aðra holu og byrjar
aftur að veiða. Aftur heyrist
rödd sem segir: „Það er eng-
inn fiskur hér!!“
Ljóskan færir sig enn
lengra og borar aðra holu og
byrjar að veiða. Enn aftur
heyrist: „Það er enginn fisk-
ur hér!“
Þá spyr ljóskan: „Er þetta
Guð?“
Þá heyrist svarað: „Nei,
þetta er umsjónarmaður
skautahallar Reykjavíkur!“