Skessuhorn - 28.04.2004, Síða 11
i,n£33UtlUi..
MIÐVIKUDAGUR 28. APRIL 2004
11
^ienninn^s
Reiðhöll á Hvanneyri
Undirritaður vill leggja til
I að Landbúnaðarháskólinn á
Hvanneyri, Borgaríjarðar-
sveit, Hestamannafélögin
Grani og Faxi auk annarra á-
hugasamra aðila um hesta-
mennsku á Hvanneyri og í
Borgarfirði beiti sér fyrir því
að athugað verði hvort að
ekki sé grundvöllur fyrir
byggingu á reiðhöll á
Hvanneyri.
Nýlega hefur verið skipuð
nefhd á vegum landbúnaðar-
ráðuneytisins um uppbygg-
ingu og fjármögnun á reið-
höllum í þeim landshlutum
þar sem þær hafa ekki þegar
verið reistar. Töluverðu op-
inberu fé er ætlað til þessarar
uppbyggingar. Tilgangur
þessa verkefnis er að bæta
aðstöðu hestamanna og
styrkja kennslu í hrossarækt
og reiðmennsku.
Undirrituðum finnst að
það sé mikið hagsmunamál
að reiðhöll, styrkt af þessu
verkefni, rísi á Hvanneyri.
Benda má á að margir mögu-
leikar eru á nýtingu reiðhall-
ar, t.d. vegna kennslu við
I Landbúnaðarháskólann.
Undirritaður þekkir það vel
af eigin reynslu að reiðhallir
eru mikilvægur þáttur við
kennslu í hrossarækt og reið-
| mennsku.
Vegna þess að þetta verk-
| efhi á að styrkja kennslu í
hestamennsku finnst undir-
rituðum að staðsetningu
reiðhallar verði að skoða út
frá þessu sjónarmiði. A
Hvanneyri er og hefur verið
einna mest þörf fyrir aðstöðu
til kennslu í hestamennsku á
Vesturlandi.
Einnig vill undirritaður
benda á að kennsla í hesta-
mennsku fyrir börn og ung-
linga eftir hinu nýja knapa-
merkjakerfi krefst reiðhallar
og mun þetta knapamerkja-
kerfi vera stoð í menntakerfi
hestamanna í framtíðinni.
Kennsla, samkvæmt þessu
knapamerkjakerfi, fer að
hluta til fram á grunnskóla-
stigi og gætu því börn og
unglingar úr grunnskólum
nágrennisins fengið kennslu
á Hvannejn-i. A Hvanneyri
eru kennarar til staðar og er
staðurinn miðstöð mennta-
mála landbúnaðarins í land-
inu.
Undirritaður vill benda á
að þegar hefur verið stofnuð
nefnd af Hestamannafélag-
inu Skugga og Borgar-
byggðar um byggingu reið-
hallar í Borgarnesi og telur
undirritaður að mikilvægt sé
að ekki sé tekin einhliða á-
kvörðun um þetta mál held-
ur sé staðsetning reiðhallar á
Vesturlandi hagsmunamál
fleiri aðila.
Undirritaður leggur til að
áhugasamir setji saman
nefnd sem muni vinna að
framgangi þessa mikilvæga
verkefnis.
Friðrik Már Sigurðsson,
tamningamaður FT frá
Háskólanum á Hólum.
Ahugamaður um hrossarækt
og hestamennsku.
Nemi við Búvísindadeild
Landbúnaðarháskólans á
Hvanneyri.
Geirmundur heiðraður
T^ennfJinl.
Snögg viðbrögð
Ég vil byrja á því að óska
I stjórn VFLA til hamingju
með snögg viðbrögð við skrif-
um mínum í Skessuhorn. Því
að á meðan verið var að bera
Skessuhorn út var sett inn á
heimasíðu félagsins tilkynn-
ing um aðalfund VFLA.
Grein mín var fyrst og
I fremst hvatning um að halda
vel á spöðunum, en einnig vil
ég minna á það að ein helsta
gagnrýni okkar á vinnubrögð
fyrrverandi starfsmanna og
meirihluta stjórnar var seina-
gangur og slugsháttur. Þegar
núverandi stjórn er búin að
setja í tæpt hálft ár fannst mér
! fyllilega ástæða til þess að
| hvetja núverandi stjórn til
þess að fara að lögum félags-
ins, og halda aðalfund.
Ég ætlast til þess að það fólk
sem meðhöndlar fjármuni
mína og minna félaga fari eft-
ir þeim reglum sem því er
sett.Við, hinn almenni félags-
maður, erum búnir að hlusta á
afsakanir út og suður sl. 5 ár,
og vænti ég þess að á aðal-
fundi félagsins varði settur
lokahnikkur á þessi mál,
þannig að félagið og allir fé-
lagsmenn geti farið að snúa
sér að framtíðinni.
Hins vegar verður stjórn fé-
lagsins að gera sér grein fyrir
því að lýðræðið er ekki ein-
göngu fjöldi stórnarfunda og
það eru fleiri stofhanir innan
félagsins sem ber að virða. Ég
harma það að stjórn félagsins
Lionessuklúbburinn Agla í
Borgarnesi hélt sinn árlega
dansleik í síðasta vetrardag, á
Hótel Borgarnesi. Að venju var
það hljómsveit Geirmundar
Valtýssonar sem lék fyrir dansi,
en sveiflukóngurinn hefur verið
einn af vorboðunum í Borgar-
firði síðustu ár eða áratugi.
Hann hefur reyndar verið
haustboðinn einnig því hljóm-
sveit Geirmundar hefur einnig
leikið á sambærilegum dans-
Ieikjum sem Lionsklúbbur
Borgarness heldur fyrsta vetrar-
dag.
Sem kunnugt er fagnaði
Geirmundur sextugsafmæli
sínu með pompi og prakt fyrir
skömmu og af því tilefni færðu
Lionsklúbburinn og Lionessu-
klúbburinn honum afmælisgjöf
sem þakklætisvott fyrir dygga
þjónustu. Þá stigu Lionsfélagar
á stokk og fluttu Geirmundi af-
mælissöng sem hagyrðingurinn
Unnur Halldórsdóttir hafði sett
saman, að sjálfsögðu við ekta
Geirmundarlag. Geirmundur
þakkaði fyrir sig með syngjandi
sveiflu fram á rauða nótt.
Sænsldr landbúnaðamemar í heimsókn
Dagana 18.-23. apríl sl.
dvöldu níu sænskir nemendur
og þrír kennarar þeirra hér-
lendis í boði Landbúnaðarhá-
skólans á Hvanneyri. Hópurinn
var frá Naturbruksgymnasiet i
Rattvik, sem stendur við vatnið
Siljan í Svíþjóð- svona rétt til
staðsetningar á landakortinu.
Heimsóknin er liður í nem-
enda- og starfsmannaskipmm
milli LBH og fyrrnefnds skóla
og eru að tilhlutan Nordplus
Junior sem styður við bakið á
slíkum kynnisferðum.
Naturbruksgymnasiet i
Ráttvik er framhaldsskóli sem
m.a. býður upp á nokkrar bú-
fræðitengdar brautir, auk marg-
víslegs annars náttúrufræði-
tengds náms.
Hópurinn kynnti sér nám og
starfsemi á Hvanneyri, heim-
sótti mjólkurframleiðendur,
hrossabændur og sauðíjárbú í
Georg Þorvaldsson
hafi neitað mér um að skrifa á
heimasíðu félagsins, það eru
ekki lýðræðisleg vinnubrögð,
en ég vona að stjórnin breyti
þeirri ákvörðun sinni. Félagar
í verkalýðsfélaginu verða að fá
að svara fyrir sig á þeim vett-
vangi þar sem að þeirn er veg-
ið.
Með félagakveðju.
Georg þorvaldsson
Borgarfirði. Þá var fiskverkun
HB á Akranesi heimsótt, Anda-
kílsárvirkjun skoðuð, riðið út í
nágrenni Hvanneyrar, skógrækt
tekin út í Skorradal og auðvitað
farinn hinn hefðbundni
„túristahringur“ í Borgarfirðin-
um í ákaflega góðu veðri, svo
gestirnir undruðust blíðviðrið á
eyju sem kennd er við ís! Einum
degi var varið til ferðar um
Suðurland, Nesjavallavirkjun
skoðuð, Þingvellir, blómarækt á
Espiflöt í Biskupstungum og
svo auðvitað Gullfoss og Geys-
ir.
Margir komu að móttöku
hópsins og senda þátttakendur
þeim öllum sínar bestu þakkir.
Eftir tæpan hálfan mánuð
munu nokkrir útkriftarnemar
úr Bændadeildinni á Hvanneyri
síðan halda í víking til Ráttvikur
- meira um það síðar.
■m
Frá Hcilsugæslustöðinni
Borgarnesi
Atvinna/sumarafleysingar
LæknaritQri
Starfsmann vantar í afleysingu læknaritara
Heilsugæslustöðvarinnar í sumarfrá l.júní
til 30.september. Um 100% starfshlutfall er
að ræða og æskilegt er að viðkomandi hafi
læknaritararéttindi.
Umsóknarfrestur er til 15.maí n.k.
Umsóknir sendist til:
Framkvæmdastjóra Heilsugæslustöðvarinnar
Borgarbraut 65
310 Borgarnesi