Skessuhorn


Skessuhorn - 28.04.2004, Síða 14

Skessuhorn - 28.04.2004, Síða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 28. APRIL 2004 j&tsaunuu Velheppnað öldungamót á Akranesi Öldungamót Blaksam- bands íslands, það 29. í röð- inni, var haldið á Akranesi í síðustu viku. Það var blakfé- lagið Bresi sem sá um móts- haldið en þetta er í þriðja sinn sem félagið sér um öld- ungamótið. Mótið hófst á sumardaginn fyrsta og stóð fram á laugar- dag en því var formlega slitið á glæsilegu lokahófi í í- þróttamiðstöðinni á Jaðars- bökkum. Áttatíu lið voru skráð til leiks á mótinu, 30 í karla- flokki og 50 í kvennaflokki, og voru þátttakendur um 700. Segja má að öldungarn- ir hafi verið á öllum aldri, frá þrítugu, sem var aldurslág- markið á mótinu og upp í átt- rætt. Óhætt er að segja að þessi íþróttaviðburður hafi sett svip sinn á bæjarlífið á Akra- nesi, enda fjöldi þátttakenda það mikill að bæði íþrótta- hús bæjarins voru undirlögð undir blak og ekkert annað alla mótsdagana. Mótið þótti takast með afbrigðum vel og voru þátttakendur, sem Skessuhorn ræddi við, hæstánægðir með skipu- lagningu og alla framkvæmd. Á meðal þeirra 30 liða sem kepptu í karlaflokki var að- eins eitt af Vesturlandi, lið Bresa sem lék í 2. deild en vann það einstaka afrek að falla í þá þriðju annað árið í röð. Liðið féll á síðasta ári en fékk sæti sitt aftur þar sem eitt liðið var ekki með að þessu sinni. Vestlenskar konur eru hins vegar mun sprækari og var Bresi með tvö kvennalið á mótinu. Hvannir frá Hvanneyri voru með að vanda en þær hafa tekið þátt í fjölmörgum mót- um. Einnig voru kvennalið frá Reyni á Hellissandi, Snæfelli og Víkingi Ólafsvík. Einu Vesturlandsliðin sem komust á verðlaunapall að þessu sinni voru B lið Bresa sem sigraði í 4. deild kvenna og öðlingalið Bresa sem hafnaði í 3. sæti. Alls var leik- ið í sex deildum í kvenna- flokki og fjórum í karlaflokki, en auk þess í Ijúflingaflokki hjá körlum en öðlingaflokki hjá konunum.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.