Skessuhorn


Skessuhorn - 15.02.2006, Qupperneq 1

Skessuhorn - 15.02.2006, Qupperneq 1
VIKUBLAÐ Á VESTURLANDI 7. tbl. 9. árg. 15. febrúar 2006 - Kr. 300 í iausasölu Fyrstu kerin prufukeyrð í stækkun Norðuráls Til stendur að prufukeyra fyrstu ker- in í stækkun Norðuráls á Gnmdartanga í þessari viku og jafnvel í dag, en það fékkst þó ekki endanlega staðfest áður en blaðið fór í prentun í gærkvöldi. Prufukeyrsla allra kerjanna, vegna stækkunar verksmiðjunnar úr 90 í 220 þúsund tonna framleiðslugetu, mun standa yfir ffam á síðari hluta þessa árs. Kostnaður við stækkun verksmiðjunnar mun verða um 30 milljarðar króna og starfsmenn verða 350-360 talsins eftir stækkunina. MM Framkvæmdir að hefjast í gamla miðbænum I gær hófst vinna við fyrsta húsgrunn- inn á nýlega skipulögðu svæði í gamla miðbæ Borgarness. Húsið sem þar rís verður fyrsta af þremur tveggja hæða fjölbýlishúsum á fyrrum bílastæðum KB við Brákarbraut. Það er Búafl sem bygg- ir, en það fyrirtæki á jafnframt gamla Kaupfélagshúsið við Egilsgötu sem breytt hefur verið í íbúðir. A næstu vik- um hefjast einnig framkvæmdir á veg- um Stafna á milli ehf. á gamla timbur- plani Kaupfélgsins en fyrirtækið mun byggja þar um 40 íbúðir. Asýnd þessa bæjarhluta mun því breytast mikið á næstu mánuðum. Það er Borgarverk ehf. sem annast allar jarðvinnufram- kvæmdir á svæðinu. MM/ Ljósm. BG ATLANTSOLIA Dísel ’Faxabraut 9. I fl 1I3| Æk i .áJI ir VWbragðsaðilar víða um land; björgunarsveitir, lögregla, slökkvilið, júkraflutningamenn, Rauði krossinn og ýmsirfleiri héldu upp á 10 ára afmœli Neyðarlínunnar -112- um liðna helgi. Víða var opið hús hjá þessum aðilum þar sem almenningur gat kynnt sér starfsemi þessara lífsnauðsynlegu björgunaraðila. Hjá Rauða krossinum á Akranesi var m.a. h<egt aðfá mœldan blóðþrýstinginn. Hér er Guðlaug Bergþórsdóttir aðfá mœldan þrýstinginn. Ljósm. Hilmar. Hitaveita í Grundarfirði tefst um a.m.k. ár Orkuveita Reykjavíkur hefur neyðst til þess að seinka frarn- kvæmdum við lagningu hitaveitu í Grundarfirði. Vonast var til þess að fyrstu hús í Grundarfirði yrðu tengd veitunni síðla árs en nú er ljóst að það verður í fyrsta lagi ári síðar. Aform Orkuveitu Reykja- víkur um að klára verkefhið hafa hins vegar ekki breyst. Undanfarna mánuði, eða frá því í september, hafa staðið yfir dælingar á heitu vatni úr borholu á Berserkseyri og eins og ffam kemur í annarri frétt í blaðinu í dag hefur Skipulagsstofnun úr- skurðað að framkvæmdin þurfi ekki að fara í umhverfísmat. Þeir sem undirbúið hafa hitaveituna hafa hins vegar kallað vamið úr henni „erfiðasta jarðhitavatn á Is- landi“ því það er bæði súrt og inniheldur að auki óvenju mikið salt. Sú staðreynd setur skorður við efnisval á búnaði og rörum. Leiðni vatnsins og saltinnihald fer vaxandi eftir því sem dæling- artíminn lengist sem bendir til innstreymis sjávar í jarðhitakerfið og því er óráð að hefja fram- kvæmdir að svo komnu máli þar sem jafnvægi í efnainnihaldi hef- ur ekki verið náð. Dælingu verð- ur haldið áffam og þess beðið að jafnvægi náist. Þá er hitastig vatnsins heldur lægra og magn úr holunni heldur minna en ráð var fyrir gert. Hitastigið og niður- dráttur vamsborðs í jarðhitakerf- inu hafa hins vegar haldist nokk- uð stöðug. Að sögn Jakobs S. Friðriksson- ar, starfsmanns Orkuveimnnar er hönnun dreifikerfis hitaveitunnar innan bæjarmarkanna því sem næst lokið. Um aðveimlögnina frá Berserkseyri að bæjarmörkum gildir öðru máli og ekki er ennþá fullljóst hvort aðveitan verður lögð tvöföld með varmaskipta- stöð á Berserkseyri eða einföld með varmaskiptastöð við bæjar- mörkin. Frekari rannsókna er því þörf áður en hægt verður að ljúka hönnun aðveitulagnarinnar. Vegna þessara óvissuþátta telja sérfræðingar Orkuveimnnar ekki skynsamlegt að hefja fram- kvæmdir við dreifikerfið fyrr en á næsta ári, þegar ítarlegri upplýs- ingar liggja fyrir. Jakob segir að næsta skref Orkuveimnnar verði að bora nýja holu á Berserkseyri og reyna að skera ytri sprunguna sem ekki tókst við síðustu borun líkt og al- kunna er. Frekari ákvarðanir um tímasetningu framkvæmdanna bíða niðurstöðu borunarinnar og rannsókna í kjölfar hennar. Hann segir það vilja Orkuveimnnar að hefja framkvæmdir sem fyrst og þá væntanlega á næsta ári. Til þess að það takist þurfi borun og rannsóknir að ganga vel. Jakob segir þessa stöðu mála án efa verða Grundfirðingum nokk- ur vonbrigði því væntingar íbúa til hitaveimnnar hafi verið miklar og samstarf við íbúa hafi gengið mjög vel. Þeir muni því eflaust skilja þann ásetning Orkuveit- unnar að standa eins vel að ffam- kvæmdinni og möglulegt er. HJ Samkaup |u.rv«l Akureyri • Blönduós • Bolungarvík • Borgarnes • Dalvík • Egilsstaðir • Hafnarfjörður • Húsavik • Isafjörður • Neskaupsstaður • Njarövik • Ólafsfjörður • Selfoss • Siglufjörður • Skagaströnd Verð birt með fyrirvara um prentvillur • Tilboðin gilda 16.-19. feb.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.