Skessuhorn


Skessuhorn - 22.03.2006, Blaðsíða 1

Skessuhorn - 22.03.2006, Blaðsíða 1
Virka daga 10-19 Laugard. 10-18 Sunnud. 12-18 nettð alltaf gott - alltaf ódýrt VIKUBLAÐ Á VESTURLANDI 12. tbl. 9. árg. 22. mars 2006 - Kr. 300 í lausasölu Björg hættir í vor Björg Agústs- dóttir, bæjar- stjóri í Grund- arfirði hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér í starf bæjarstjóra eftir kosning- amar í vor, en því starfi hefur hún gegnt sl. 11 ár. I stjómam'ð hennar hefur Grundfirð- ingum gengið margt í haginn. „Eg hef verið þátttakandi í skemmtilegri upp- byggingu, en ég hef sagt að það að vera bæjarstjóri er ekki ævistarf. Rúmur ára- tugur er ágætur tími. Einhversstaðar stendur að hætta beri leik þá hæst hann stendur. Það er ekki verri skýring en hver önnur,“ segir Björg aðspurð um af hverju hún hafi tekið þessa ákvörðun. Hún bæt- ir við: „Undanfamar vikur hefur póli- tíska landslagið hér verið að breytast. Meirihlutasamstarf síðustu þriggja kjör- tímabila er á enda og breytingar þar með fyrírséðar, á þann veg að líklega verða hér aðeins tvö framboð í kosningum í vor. Annar hvor aðilanna mtm fá hreinan meirihluta og þegar svo er verður staða ópólitísks bæjarstjóra erfiðari," segir Björg Agústsdóttir. Itarlegt viðtal er við Björgu á miðopnu Skessuhorns í dag. Enn smygl í Dettifossi Lögreglan og tollgæslan í Borgarnesi, með aðstoð Tollgæslunnar í Reykjavík, lögðu hald á smyglvaming sem komið var frá borði MS Dettifoss um miðja síð- usm viku. Alls var um að ræða 24 lítra af áfengi, 120 munntóbaksdósir og um 30 kg af nautakjöti. Fjórir skipverjar viður- kenndu að eiga varninginn en fimm menn verða að líkindum kærðir í málinu. Þetta er í annað skiptið á sl. fjómm mán- uðum sem smyglvarningur er tekinn af skiverjum á m/s Dettifossi í Grundar- tangahöfh. MM ATLANTSOLIA Dísel *Faxabraut 9. Fegurðarsamkeppni Vesturlands 2006ferfram um neestu helgi. I Ofógurfljóð keppa þar til úrslita og eins og sjá má á myndinni er ómögulegt að vita hver hreppir titilinn. Sjá kynningu á stúlkunum á bls. 10. Ljósm. HS Loftorka Borgamesi í víking til Akureyrar Húsnæði Slippsins á Akureyn sem. Loftorka hefur nú keypt. Loftorka í Borgarnesi ehf. hef- ur keypt hús Slippsins við Naustatanga 1 á Akureyri en það er samtals 4730 fermetrar að grunnfleti. Skrifað var undir samning þess efnis í liðinni viku. I hluta húsnæðisins mun Loftorka setja upp nýja húseiningaverk- smiðju og er ráðgert að fram- leiðsla hefjist þegar í byrjun sum- ars. Hluti hússins, eða 1700 fer- metrar, verður áfram leigður undir starfsemi Slippsins sem auk þess á 2400 fermetra iðnaðarhús handan götunnar sem mun áffarn verða nýtt undir starfsemina. Þannig er ekki gert ráð fyrir að sala húsnæðis gömlu Slippstöðv- arinnar til Loftorku skerði starf- semi Slippsins. Afhending þess hluta húsnæðisins sem Loftorka mun nýta til eigin húseininga- framleiðslu verður í apríl nk. Gert er ráð fyrir að 30-40 ný störf verði til í verksmiðju Loftorku á Akureyri og mun hin nýja verk- smiðja auka enn ffamleiðslugetu fyrirtækisins á sviði mannvirkja. Að sögn Andrésar Konráðsson- ar, framkvæmdastjóra Loftorku er þegar byrjað að undirbúa upp- setningu nýrrar einingaverk- smiðju á Akureyri. „Við munum setja upp við húsið 2 steypustöðv- ar og annar búnaður til eininga- framleiðslu er í smíði eða hefur verið pantaður. Okkar áætlanir gera ráð fyrir að framleiðslugeta í húseiningum á Akureyri verði um 300 fermetrar af einingum á dag auk framleiðslu á loftaplötum, kúluplötum og öðrum fram- leiðsluvörum fyrirtækisins. Þá munum við starfrækja við Naustabryggju söludeild í sam- starfi við Mest ehf. sem dreifa mun öðrum framleiðsluvörum okkar, svo sem rörum, hellum og öðrum forsteyptum hús- og mannvirkjahlutum. I áframhald- andi samvinnu við Mest mun verða sett upp verslun fyrir iðn- aðarmenn og verktaka þar sem seldar verða múrvörur, verkfæri og annar búnaður til bygginga,“ segir Andrés. Hann segir að Loftorka Borgarnesi ehf. sjái fram á verulegan vöxt í bygging- arstarfsemi á Norður- og Austur- landi á næstu árum og hafi það ýtt undir ákvörðun fyrirtækisins að setja upp starfsstöð á Akureyri. Einnig segir hann að verið sé að koma til móts við óskir fjöl- margra verktaka sem vilja ein- dregið eiga þess kost að geta byggt hús úr forsteyptum eining- um frá Loftorku Borgarnesi ehf. MM Akureyri • Blönduós • Bolungarvík • Borgarnes • Dalvík • Egilsstaðir • Hafnarfjörður • Húsavík • ísafjörður • Neskaupsstaður • Njarðvík • Ólafsfjörður • Selfoss • Siglufjörður • Skagaströnd Verð birt með fyrirvara um prentvillur • Tilboðin gilda 23. - 26. mars

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.