Skessuhorn


Skessuhorn - 22.03.2006, Blaðsíða 14

Skessuhorn - 22.03.2006, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 22. MARS 2006 Urslit í upplestrarkeppnimii • • Verðlaunahafamir í upplestrarkeppninni sem haldin var í Reykholti milli nemenda 6 grunnskóla. Úrslit liggja nú fyrir í Stóru upp- lestrarkeppninni meðal nemenda í 7. bekk grunnskólanna á Vestur- landi. I Skessuhorni í síðustu viku var sagt frá úrslitunum á Akranesi en nú liggja úrslit af öðrum svæð- um fyrir. Afburða lestrarhestar í 6 grunn- skólum á Vesturlandi lásu til úrslita á miðvikudag í liðinni viku og fór upplesturinn ffam í Snorrastofu í Reykholti. I fyrsta sæti varð Jónas Guðjónsson Varmalandsskóla, í 2. sæti Sigríður Þorvaldsdóttir í Varmalandsskóla og í 3. sæti Þórð- ur Helgi Guðjónsson í Grunnskóla Borgarfjarðarsveitar. Sérstaka við- urkenningu hlaut Magnús Daníel Einarsson í Borgarnesi. Aðrir þátt- takendur í keppninni voru Armann Hagalín Jónsson og Ivar Atli Brynj- ólfsson úr Heiðarskóla, Sigríður Kristín Guðlaugsdóttir í Grunn- skóla Borgarfjarðarsveitar, Arnar Olafsson og Þórunn Anna Magnús- dóttir í Grunnskólanum Búðardal og Bima Osk Aradóttir Grunnskól- anum í Borgarnesi. Axel Máni Gíslason Grunnskóla Borgarfjarð- arsveitar og Katrín Björg Gests- dóttir í Laugargerði vom fjarver- andi vegna veikinda. Sparisjóður Mýrasýslu veitti verðlaunahöfum peningaverðlaun og allir þátttak- endur fengu bókina Appelsínu- stelpan ffá Eddu útgáfu. Mjólkur- samsalan og Grunnskóli Borgar- fjarðarsveitar buðu gestum veiting- ar í hléi. I dómnefnd sátu Baldur Verðlaunahafamir á Snœfellsnesi. Sigurðsson, Magnús Sigurðsson, Steinunn Eiríksdóttir, Hildur Traustadóttir og Laufey Karlsdótt- ir. A Snæfellsnesi fór lokahátíð Stóra upplestrarkeppninnar fram í Olafsvík, einnig á miðvikudag í lið- inni viku. Það var Berglind Gunn- arsdóttir úr Gmnnskóla Stykkis- hólms sem varð í fyrsta sæti, Hug- rún Yr Sigurðardóttir Grunnskóla Snæfellsbæjar í öðm sæti og Jónína Riedel úr Grunnskóla Stykkis- hólms í þriðja sæti. MM Alfatrúin varþemað í sýningu 3. bekkjar nemenda. Árshátíð Brekkubæjarskóla Hin árlega árshátíð Brekkubæj- arskóla fór ffam dagana 14. og 15. mars. Framkvæmd hennar var með hefðbundnu sniði og þrátt fyrir mikil veikindi tókst að setja saman mjög ffambærilega dagskrá. Nem- endur í fyrsta bekk sýndu dans, álfatrúin var þemað í atriði þriðja bekkjar og 5. bekkur sýndi leikrit með beinni skírskotun til umhverf- isstefnu skólans. Framlag 7. bekkjar var ffábær stuttmynd auk þess sem fulltrúar árgangsins í Stóm upp- lestrarkeppninni fluttu ljóð. Bama- kór skólans söng og margverðlaun- að danspar setti glæsilegan svip á sýningar seinni daginn auk þess sem nemendur Brekkubæjarskóla sem eru í tónlistarnámi léku á hljóðfæri. Síðast en ekki síst vom það unglingar skólans sem stóðu sig ffábærlega. Þeir stmgu, spiluðu, kynntu atriði, sáu um tæknistjóm, vinnu á sviði, miðasölu og gæslu yngri bama. Það er mikil og skemmtileg vinna sem býr að baki árshátíðar og tvímælalaust góður skóli fyrir alla þá sem þar taka þátt. HFJ Innheimtu fasteigna- skatts sumarhúsalóða framhaldið Bæjarráð Borgarbyggðar hefur samþykkt að halda áfram inn- heimtu fasteignaskatta af óbyggð- um sumarhúsalóðum í samræmi við lög þar um. Forsaga málsins er sú að á fundi ráðsins fyrir nokkru var rædd athugasemd sem barst fyrir nokkru um innheimtuna. Var bæjarritara falið að afla frekari upplýsinga um málið og leggja fyrir bæjarráð. A fundi ráðsins í síðustu viku kynnti bæjarritari meðal annars að í reglugerð um fasteignaskatt segir að fasteigna- skattur skuli vera allt að 0,5% af fasteignamati meðal annars erfða- Húsnæði keramikverkstæðisins Arsólar í Garði brann í síðustu viku. Arsól ráku sysmmar Ingi- björg og Sigurborg Sólmundar- dætur ásamt móður þeirra Sigríði Stephensen og Lofti Sigvaldasyni eiginmanni Sigurborgar. Þau em öll ffá Akranesi. I Arsól fór fram ffamleiðsla ýmissa nytjahluta úr keramik og var verkstæðið eitt festulanda í dreifbýli, jarðeigna og allra hlunninda sem og sumarbú- staða ásamt lóðaréttindum. I bréfi sem bæjarritarinn lagði fram kemur einnig fram að í Grímsnes- og Grafningshreppi sé fasteignaskattur lagður á óbyggðar sumarhúsalóðir strax og þær hafa verið stofnaðar þó þær séu ekki teknar strax í notkun. „Það virðast ekki vera nein rök fyrir því að leggja ekki fasteignaskatt á þessar lóðir frekar en aðrar eignir sem hafa fasteignamat,“ segir orðrétt í bréfi bæjarritara. HJ stærsta sinnar gerðar hér á landi. Mikið var um að hópar legðu þangað leið sína og gat fólk fengið þar aðstöðu til að mála og brenna eigið keramik. I bmnanum eyði- lagðist allt lausafé fyrirtækisins. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort fyrirtækið verði endur- reist. MM Húsnœði fyrirtœkisins er rústir einar eftir brunann. Arsól brann Heimti fimm kindur Kristbjörn Steinarsson, bóndi á Hraunsmúla í Kolbeinsstaðahreppi heimti í liðinni viku tvær ær og þrjú lömb úr Skógarhlíðinni og er hann nú búinn að heimta sjö kindur síð- an á áramótum. Þegar blaðamaður kíkti við í fjárhúsunum hjá honum var hann í óða önn að klippa snoð- ið af kindunum. Kristbjörn sagði að kindurnar sem hann var að heimta hefðu allar verið í fínu ástandi nema eitt hrútlamb sem hefði verið orðið ffekar rýrt. ÞSK Dýpkun arframkvæmdir í Ólafsvík og Rifi Nýlega kom dýpkunarskipið Skandia til dýpkunarffamkvæmda í Rifshöfn og Olafsvíkurhöfn. Skipið á að dæla upp efhi úr höfhunum og er þetta fyrri áfangi verksins, talið er víst að einnig þurfi að grafa eða sprengja sumsstaðar. Fyrirhugað er að ná 5 metra dýpi. Efhismagnið sem fjarlægja á úr Rifshöfn er 77.400 rúmmetrar og er það bæði innan hafnar sem utan. I Olafsvík er áætlað að fjarlægja 45.500 rúmmetra og er það einnig bæði innan og utan hafhar. þess má geta að Skandía lestar 500 rúmmetra í ferð. Aætlað er að þessum áfanga verði lokið f apríl. Urjökli 16. mars.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.