Skessuhorn - 22.03.2006, Blaðsíða 15
§KESSUli©BE
MIÐVIKUDAGUR 22. MARS 2006
15
Freyjukórinn ásamt stjómanda og hljóðfaraleikurum.
Freyjukórmn í hljóðver
Laugardaginn 11. mars flykktust
konur af öllu Borgarfjarðarsvæðinu
til Reykjavíkur. Þar voru á ferð
Freyjukórskonur og var stefnan
tekin á hljóðver til upptöku á
geisladisk. Undanfamar vikur hafa
konumar staðið í stífum æfingum
fyrir upptökumar. Stjómandi kórs-
ins er Zsuzsanna Budai. Haukur
Gíslason spilaði tmdir á kontra-
bassa og Steinunn Arnadóttir á
flygil. Upptökustjóri var Vilhjálmur
Guðjónsson. Um 30 kórfélagar
Freyjukórins vora ánægðir og sáttdr
með daginn og hvernig til tókst og
bíða nú spenntir eftir að fá að
hlusta á árangurinn.
Nú hyggjast kórfélagar skipta lít-
illega tun áherslur í söngnum og
æfa gospel og trúartónlist og kemur
Oskar Einarsson til með að vera
með á einni æfingu til að koma
þeim af stað. Gospelsystur Reykja-
víkur undir stjórn Margrétar
Pálmadóttur ætla að heimsækja
Freyjukórinn og syngja með hon-
um á tónleikum sem verða í Reyk-
holtskirkju 13. maí í vor. Einnig á
Freyjukórinn von á heimsókn frá
Söngfélagi Þorlákshafnar þann 22.
apríl og verða sameiginlegir tón-
leikar kóranna í Logalandi þann
dag. ES
Að gefa Itjsleikni og
sjálfetrawt í
fermingargjöf
Hafa bömin okkar orðið neysl-
irnni að bráð eða höfum við for-
eldrar ekki verið nógu dugleg við
uppeldið og við að efla innri vamir
bama okkar gagnvart ölltun þeim
ótal áreitum sem herja á þau næst-
um hverja mínútu í daglega lífinu.
Grein séra Jóns Arna í Neskirkju
í Mbl. 17.3 vakti mig til umhugsun-
ar en þar er fjallað um hvað vænt-
anleg fermingarbörn þrá mest.
Bömin vom látin vitja síns innri
manns og látin skrifa niður langan-
ir sínar vonir og væntingar. Þar tjá
60% bamanna sig um þá löngun að
fjölskyldan verði hamingjusöm og
öllum líði vel. Unglingamir vilja
sem sé fremur góðan maka, góða
menntun, góða ffamtið og ham-
ingju en dót. Fram kemur einnig að
hjal í næði við eldhúsborðið vemdi
bernskuna og að hamingjan sé
heimafengin. Við heyrum líka oft
að forvamir hefjist heima og marg
oft er vimað tdl heimihs og fjöl-
skyldu á tyllidögum.
Tímaleysi virðist hrjá margar nú-
tímafjölskyldur og flestdr vildu helst
fá aukin tækifæri til samvera for-
eldra og bama. Eg efast ekki um að
ef foreldrar skoðuðu vel sinn innri
mann þá er það líka velferð fjöl-
skyldunnar og þá sérstaklega bam-
anna sem þar yrði sett á oddinn.
Margir vinna markvisst að því og
njóta næðis og ffiðar í faðmi fjöl-
skyldunnar en öðrrnn veitist sífellt
erfiðara að finna jaftivægi milli
starfs og einkalífe.
Stundum er talað um að það sé
tvennt sem ekki sé hægt að kaupa
fyrir peninga og er þá átt við ham-
ingju og heilsu. En stór hluti ham-
ingjunnar er talin felast í því að taka
á verkefnum lífsins með æðruleysi,
rækta okkar innri mann og auðsýna
fjölskyldu og öðrum ástvinum kær-
leika, skilning og stuðning í ólgusjó
nútímatilvera. Allt era þetta þættir
sem við eigum auðlind af og getum
veitt „ókeypis.“. Hver myndi ekki
vilja gefa bami aukið sjálfstraust í
fermingargjöf.
I grunnskólum landsins era nem-
endur að læra á lífið með námi sínu
í lífsleikni og er vert að minna for-
eldra á að fylgjast með því sem böm
þeirra era að takast á við í þeirri
námsgrein sem öðrum.
Foreldrar geta lagt sitt af mörk-
um með því að sýna börnum sínum
alúð m.a. með jákvæðu viðhorfi til
skólans þeirra og samfélagsins.
Með því að eiga gott samstarf við
starfsmenn skóla og mikilvæga full-
orðna sem starfa með bömum í ffí-
stundum þeirra era foreldrar að
sýna bömum sínum umhyggju, að-
hald og effdrlit. Þannig leggja þeir
sitt af mörkum að vera góðar fyrir-
myndir, kenna börnum sínum að
eiga góð samskipti, finna sam-
kennd og efla stjálfetraust þeirra.
Það era einmitt þau markmið sem
leitast er við að ná með lífsleikni-
kennslu í skólum. Nýlega kom út
hjá Námsgagnastofnun handbók
fyrir kennara og foreldra um hfs-
leikni. I bókdnni er leitast við að
varpa ljósi á hugtakið lífsleikni og
hvernig það tengist uppeldisstarfi
og menntun. Bókinni er ætlað að
renna styrkari stoðum undir lífe-
leiknikennsluna „og vera foreldram
og kennuram leiðarljós og hald-
reipi í því vandasama og krefjandi
verkefni að sinna uppeldi og
menntun barna í íslensku samfélagi
nútímans", segir í formála. Höf-
undar era Erla Kristjánsdóttdr, Jó-
hann Ingi Gunnarsson og Sæ-
mundur Hafsteinsson. Þau hafa
hvert um sig mikla reynslu og
þekkingu á þeim ffæðasviðum sem
tengjast lífsleikni hvað mest og
byggja umfjöllun bókarinnar á
þremur homsteiniun sem þau telja
grandvöll lífsleikninnar. Þessir
hornsteinar era sjálfstraust,
sjálfeagi og samkennd.
Helga Margre't Guðmundsdóttir
verkefhastjóri hjá Heimili og skóla -
landssamtökum foreldra.
LATTU OKKUR
FÁÞAÐ
ÓÞVEGIÐ
lllflKÖt
(f \
Efnalaiigin Múlakot ehf.
Borgarbraut 55
310 Borgarnesi
Sími 437 1930
SMIÐIR OG
VERKAMENN
Óskum eftir smiðum og verkamönnum
til starfa í fjölbreytt verkefni.
Tekið er á móti umsóknum á
www.verktaki.is
Nánari upplýsingar gefa:
Aðalgeir: 660-2408 - Gylfí: 660-2424
|SS| 1 VERKTAKI1 SVEINBJÖRN SIGURÐSSONÍ Sveinbjöm Sigurðsson ehf. er eitt elsta og framsœknasta byggingafyrirtœki landsins með yfir 60 ára reynslu.
IV IV IV . V erktaki.is
o
KJOLUR
Stéttarfélag starfsmanna
í almannaþjónustu
Aðalfundur
Aðalfundur KJALAR verður haldinn þann 25. mars 2006 í
Félagsheimilinu á Blönduósi og hefst fundurinn kl. 14:00
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf
Kosning fulltrúa á þing BSRB sem verður í okt. nk.
Önnur mál
Ferðatilhögun:
Farið frá Akureyri kl: 10:15
Farið frá Siglufirði kl: 10:00
Farið frá Borgarnesi kl: 10:00
24
Félagar vinsamlega jpantið far í síma 525 8383 fyrir
4. mars nk. Áætluð neimferð er að fundi loknum sem
verður á milli 16:30 til 17:00.
Veitingar og menningardagskrá fyrir fund frá
kl. 12:00 til 14:00.
Akureyri 1. mars 2006
Stjórn KJALAR
WWW.KJ0LUR.IS
www.skessuhom.is
^Polarolje
Selolía frá Noregi
i*örhanaa
Gttðmundsdóttir
Skrifstofumaður hjá SÍBS
cssss^
Niðurstöður kliniskra rannsókna sem
prófessor Arnold Berstad við
Haukeland háskólasjúkrahúsið í
Noregi framkvæmdi sýna að olían
hefur áhrif á:
- Ónaemiskerfið
- Gigt - auma og stífa líði
- Sár og exem
- Maga- og þarmastarfsemi
- Hárvöxt og neglur
- Kólestról og blóðþrýsting
Fæst i öiium
apótekum
heikubúðum