Skessuhorn


Skessuhorn - 22.11.2006, Blaðsíða 4

Skessuhorn - 22.11.2006, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 22. NOVEMBER 2006 Nýr leikskóli á Hvanneyri? BORGARBYGGÐ: Fræðslu- nefnd Borgarbyggðar hefur sam- þykkt samhljóða ályktun þar sem athygli byggðaráðs er vakin á nauðsyn þess að á árinu 2007 verði ráðist í byggingu nýs leik- skóla á Hvanneyri. I ályktun nefndarinnar segir að núverandi húsnæði sé til bráðabirgða og uppfylli ekki þær kröfur sem eðlilegt er að gera til leikskóla- húsnæðis. Alyktunin var sam- þykkt í kjölfar þess að lagt var ffam á fundi nefndarinnar erindi frá Valdísi Magnúsdóttur leik- skólastjóra Andabæjar á Hvann- eyri um nýjan leikskóla á staðn- um. -hj Aflaaukning í október VESTURLAND: í október var landað 5.108 tonnum af sjávar- fangi í höfnum á Vesturlandi. Er þetta ríflega 53% aukning ffá því í sama mánuði í fyrra. Mestum afla var landað á Akranesi eða 2.848 tonnum. Af einstökum fisktegundum var mestu landað af þorski eða 908 tonnum. Fyrstu tíu mánuði ársins var landað 80.534 tonnum af sjávarfangi í höfiium Vesturlands en á sama tfina í fyrra var landað 87.680 tonnum. Samdrátturinn er því rúm 8%. Af einstökum höfnum hefur mestu verið landað á Akra- nesi eða 39.217 tonnum og af einstöku fisktegundum hefur mestu verið landað af þorski eða 24.488 tonnum. -hj Uppbygging samgöngukerfis haldi áfram SNÆFELLSNES: Héraðs- nefiid Snæfellinga hvetur stjóm- völd til að halda áffam uppbygg- ingu samgöngukerfis á Snæfells- nesi. Þetta kemur ffam í ályktun aðalfundar nefndarinnar sem haldinn var í vikunni. Þar segir að bylting hafi orðið á undan- fömum árum í samgöngum á Snæfellsnesi en nauðsynlegt sé að halda áfram uppbyggingu vega um Fróðárheiði, Skógar- strönd og Utnesveg. Beina þurfi meiri fjármunum til uppbygg- ingar og viðhalds safiivega og efrir því sem umferð og álag á vegakerfið aukist þurfi að tryggja meira fjármagn til viðhalds og breikkunar vega. -hj Óhappalítil umferðarvika BORGARFJÖRÐUR: Þrjú umferðaróhöpp urðu í umdæmi lögreglunnar í Borgamesi í sl. viku og öll minniháttar. Verður það að teljast vel sloppið miðað við færð og veðurlag undanfarið. Um 40 vom teknir fyrir of hrað- an akstur af lögreglunni í vik- unni. Eitt fíkniefhamál kom upp þar sem um var að ræða áhöld til fíkniefiianeyslu og lagði lögregl- an hald á það hjá tvítugum Borg- nesingi. -kh Stuðningur við fráveitur og jarðhitaleit verði auldnn Héraðsnefnd Snæfellinga hvetur til þess að aukinn verði stuðningur við jarðhitaleit og virkjun jarðhita á svokölluðum „köldum svæðum.“ Þetta kemur fram í ályktun sem samþykkt var á aðalfundi nefndar- innar sem haldinn var í Stykkis- hólmi í síðustu viku. Einnig benti fundurinn á nauðsyn þess að bæta stöðu þeirra sem ekki hafa aðgang að jarðvarma til kyndingar íbúðar- húsnæðis. Einnig töldu fundarmenn nauð- synlegt að ríkisvaldið komi með „stærri og ábyrgari hætti að úr- lausn fráveitumála,“ að því er segir í ályktun fundarins. Þar segir einnig að sveitarfélögin á Snæfells- nesi standi frammi fyrir risavöxnu verkefni á næstu tveimur árum „sem sveitarfélögin ráða ekki við ein og sér með núverandi fyrir- komulagi." Hjf Faxaflóahafioir vilja kaupa Faxabraut 7A Húsið við Faxahraut 1A erfyrir miðri mynd. Stjóm Faxaflóahafna hefur óskað efrir viðræðum við Verslunarþjón- ustuna hf. um hugsanleg kaup á hús- eigninni Faxabraut 7A og er ætlunin að húsið verði nýtt undir starfsemi fisk- markaðar. Fyrr á þessu ári sóttust Faxaflóahafnir eftir lóðinni nr. 3 við Faxa- braut og var hugmyndin að þar yrði reist tveggja hæða hús og var stefnt að því að það hús myndi hýsa veitingastað og fiskmarkað. Faxabraut 7A hefur hins vegar verið til sölu um nokkurt skeið. Fyrir eiga Faxaflóahafnir húseign- ina Faxabraut 1 en svæðið milli þess húss og Faxabraut 7A er óbyggt. Gísli Gíslason hafiiarstjóri Faxaflóa- hafha segir að gengið verði til við- ræðna með þeim fyrirvara að Akra- neskaupstaður samþykki að svæðið milli húsanna verði til ff amtíðar nýtt fyrir fisksækna starfsemi. Hann von- ast til þess að viðræður um kaupin geti tekið stuttan tíma og Fiskmark- aður Islands geti því fyrr en ella komist í góða aðstöðu nær höfninni en verið hefur fram að þessu. Faxabraut 7A er um 485 fermetr- ar að stærð á tveimur hæðum og var reist árið 2003. Brunabótamat húss- ins er tæpar 72 milljónir króna. W Fyrsta vélskóflustungan að Menntaskóla Arsæll Guðmundsson, verkefn- isstjóri og tilvonandi skólameistari Menntaskóla Borgarfjarðar tók í gær fyrstu vélskóflustunguna að hinu nýja skólahúsnæði við Borg- arbraut í Borgarnesi. Eins og frá var greint á sínum tíma, þá tók Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra fyrstu hand- skóflustunguna að húsinu sl. vor. Það er Borgarverk hf. sem sér um jarðvinnu. MM Lögreglan sendir foreldrum ökumanna bréf Allmikið hefur borið á brotum Lögreglan á Akranesi hefur nú gripið til þess ráðs að senda for- ráðamönnum ökumanna undir 18 ára aldri, sem hafa brotið af sér í umferðinni, bréf þar sem fram kemur hvort þeir eigi von á sekt eður ei. Þetta er nýbreytni í vinnu- brögðum lögreglunnar og vonast hún til að með þessu grípi forráðar- menn inn í hættulega hegðun barna sinna. ungra ökuínanna í umferðinni á síðustu mánuðum., Því miður hafa ekki allir látið segjast og tekið upp betri siði við afskipti lögreglu og sektir sem þeim hafa fylgt. Því var ákveðið að senda foreldrum eða forráðamönnum ökumanna undir 18 ára aldri þ.e. ólögráða, bréf þar sem greint er frá því að viðkomandi hafi verið staðinn að broti og eins hvort hann megi eiga von á sekt eða ekki. Fyrsm bréfin voru send nú í vikunni og hefur lögregla fengið viðbrögð við þeim ffá foreldrum sem eru á einu máli um að hér sé á ferðinni þarft framtak. Er það von lögreglumanna að með því að upplýsa foreldra ungra ökumanna með þessum hætti megi stuðla að öruggari umferð í ffam- tíðinni. M- KH Tölvuþjónustu Vesturlands stækkar Um síðustu mánaðamót samein- uðu E-bit ehf á Akranesi, sem rekið hefur Tölvuþjónustu og verslun á Akranesi og Tölvuþjónusta Vestur- lands í Borgamesi rekstur sinn, und- ir merkjum Tölvuþjónustu Vesmr- lands. Markmið fyrirtækisins verður að sinna fyrirtækjum og einstakling- um á Vesturlandi með tölvu- og skrifstofubúnaði, ásamt ýmsum tengdum vörum. Eggert Herbertsson, sem verið hefur framkvæmdastjóri E-bit ehf., verður framkvæmdastjóri hins nýja félags. Hann segir að fyrirtækið muni áffam sinna almennri tölvu- og tækniþjónusm, ásamt því að reka verslanir á Akranesi og í Borgamesi. Einnig sé ætlunin að auka almenna tölvu- og tækniþjónustu á Vestur- landi ásamt því að aukin áhersla verði lögð á að sinna fyrirtækjum með almennar skrifstofuvömr í samstarfi við Odda skrifstofuvörur. Omar Orn Ragnarsson mun starfa sem rekstrarstjóri í verslun Tölvuþjónusm Vesturlands í Borg- amesi og Olafur Rúnar Sigurðsson verður rekstrarstjóri í verslun fyrir- tælrisins á Akranesi. Eggert segir að sjö starfsmenn muni starfa hjá hinu sameinaða fyrirtæki. Fyrirtækið verður í samstarfi við öll helstu fyr- irtæki á sínu sviði og má þar nefina Odda skrifstofuvörur, Opin kerfi, EJS, Nýherja og Hátækni. Verslanir fyrirtækisins verða áffam til húsa á sama stað eða á Esjubraut 49 á Akranesi og Brúar- torgi 4 í Borgamesi. Heimasíða hins nýja fyrirtækisins er www.tolvuversltm.is HJ Kjördæmis- þingSF HRÚTAFJ ÖRÐUR: Kjör- dæmisþing Samfylkingarinnar í Norðvestur kjördæmi verður haldið í Reykjaskóla í Hrúta- firði um næstu helgi og hefst kl. 13 á laugardag. A fundinum mun kjörnefnd bera fram til- lögu að lista, flutt verða erindi, stefhumótunarvinna fer fram og vinnuhópar starfa á fundin- um. Fundurinn er opinn öllu Samfylkingarfólki þó að ein- ungis kjörnir fulltrúar hafi kosningarétt. -mm Mikið um óskoð- aða bíla AKRRANES: Aðeins tvö um- ferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglu í vikunni sem verður að teljast gott. Mikil hálka og slæm færð var um helgina og hefði allt eins mátt búast við einhverjum óhöppum. Sú varð ekki raunin og ekkert óhapp hefur verið tilkynnt eftir að færð tók að spillast. Tveir af þeim ökumönnum sem stöðv- aðir voru í eftirliti lögreglu voru handteknir og færðir til yfirheyrstu grunaðir um ölvun við akstur. Báðir höfðu gefið öndunarsýni sem gaf til kynna að þeir höfðu neytt áfengis. Mál þessara tveggja bíða niður- stöðu úr blóðrannsókn. Þá fengu 14 umráðamenn óskoð- aðra bifreiða boð um að mæta með þær til skoðunar á skoðun- arstöð. Með þessum 14 hafa 52 verið boðaðir til skoðunar með óskoðaðar bífreiðar. Siimí um- ráðamenn ekki boðunum sem þessum innan þess frests sem gefinn er mega þeir búast við að númer verði tekin af bifreið- unum. -kh Hótel Glymur skorar HVALFJ ARÐ ARSVEIT: Hótel Glymur í Hvalfirði fær hæstu einkunn á alþjóðlegum ferðavef, um hótel á Islandi þar sem um fimm milljónir ferða- langa gefa meðal annars hótel- um umsagnir um þá staði sem þeir hafa heimsótt. Vefurinn nefnist www.tripadvisor.com sem hefur þau einkunarorð, lauslega þýdd: „fáðu sannleik- ann og farðu svo.“ Hótel Glymur var tekið til gagngerra endurbóta síðásta vetur og virðist sem ferðalöngum hafi líkað það vel sem gert var. Að sögn Jóns Rafiis Högnasonar, eiganda hefur aðsókin aukist jafnt og þétt síðustu mánuði, reyndar svo mikið að um nærri 50% aukningu er að ræða frá sama tíma í fyrra. „Þessi um- mæli á tripadvisor eru náttúru- lega bara gleðileg viðbót við það sem við höfum verið að reyna að gera hér. Það er alltaf gott þegar maður fær áþreyfan- lega sönnun þess að fólki líkar verldn manns,“ sagði Jón Rafn. -bgk Kirkjubraut 54-56 - Akranesi Sími: 433 5500 Bjarnarbraut 8 - Borgarnesi Fax: 433 5501 Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14:00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skilafrestur smáauglýsinga er til 12:00 á þriðjudögum. Blaðið er gefið út í 3.000 eintökum og selt til áskrifenda og f lausasölu. Áskriftarverð er 1300 krónur með vsk á mánuði en krónur 1200 sé greitt með greiðslukorti. Elli- og örorkulíf.þ. greiða kr. 950. Verð í lausasölu er 400 kr. SkRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-16 ALLA VIRKA DACA Útgefandi: Skessuhorn ehf. - 433 5500 skessuhorn@skessuhom.is Ritstj. og ábm. Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Blaðamenn: Halldór Jónsson 892 2132 hj@skessuhom.is Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Birna G Konráðsdóttir 864-5404 birna@skessuhom.is Kolbrá Höskuldsdóttir 868-2203 kolla@skessuhorn.is Augl. og dreifing: Katrín Óskarsd. 616 6642 katrin@skessuhom.is Umbrot: Guðrún Björk Friðriksd. 437 1677 gudrun@skessuhorn.is

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.